Morgunblaðið - 16.03.2012, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 16.03.2012, Blaðsíða 23
AP Spilling Liðsmenn Hosnis Mubaraks vilja kaupa sig lausa úr fangelsi. Forustumenn úr stjórn Hosnis Mub- araks, fyrrverandi forseta Egypta- lands, sem sitja í fangelsi fyrir spill- ingu hafa boðist til þess að láta af hendi eignir sínar verði þeir látnir lausir, að því er fram kom í egypsk- um ríkisfjölmiðlum í gær. Egypsk stjórnvöld segja að þau séu að skoða málið og ekki veiti af peningum. „Það væri hagur Egyptalands að fá peningana aftur frá þeim, sem sitja í fangelsi, svo lengi sem lögin mæla ekki gegn sátt í spillingarmálum,“ sagði Mumtaz Said fjármálaráðherra. Líklegt er hins vegar að slíkur samningur myndi vekja mikla reiði mómtælenda, sem kröfðust þess að spilltir forustumenn yrðu sóttir til saka. Tugir manna sitja nú í fang- elsi vegna spillingar og bíða dóms. Meðal þeirra er Mubarak. Tveir þeirra sem hafa boðið fé fyrir frelsi hafa verið nafngreindir. Egypska ríkisdagblaðið Al-Ahram segir að „225 milljónum dollara hafi verið stolið af Egyptalandi“. Reyna að kaupa sér frelsi  Liðsmenn Mubaraks vilja losna úr fangelsi í Egyptalandi AP máli Wangs og þótti þeim orðum beint sérstaklega að Bo. Hann fékk hins vegar ekki mikinn tíma til að til- einka sér lexíuna því að daginn eftir var hann rekinn. Skapraunaði valdamönnum „Hann fór í skapið á mörgum valdamiklum mönnum þegar hann blés til sóknar gegn spillingu og „rauðu“ söngvarnir bökuðu honum óvinsældir hjá öllum, sem teljast frjálslyndir, þannig að hann hafði afl- að sér margra óvina,“ sagði ónefnd- ur, vestrænn stjórnarerindreki um Bo í samtali við fréttastofuna AFP. Haft er eftir Guo Yingjie, prófess- or í málefnum Kína við Tækniháskól- ann í Sydney, að brottvikning Bos beri vitni valdabaráttu milli íhalds- arms kommúnistaflokksins og hins frjálslynda arms flokksins, þar sem Wen Jiabao forsætisráðherra og Hu Jintao forseti eru í forustu. Þessir tveir armar eru nokkurn veginn jafn- ir að völdum, þótt sá frjálslyndi sé ívið sterkari. Stjórnmálaráðið er æðsta valda- stofnun Kína og sitja þar 25 manns. Voldugust er þó níu manna fasta- nefnd ráðsins, sem tekur allar lyk- ilákvarðnir í kínverskum stjórnmál- um. Í haust er gert ráð fyrir að Hu, Wen og fimm aðrir yfirgefi sæti sín í fastanefndinni. Þeir muni síðan láta af embættum forseta og forsætisráð- herra í mars á næsta ári. Aðeins Xi Jinping varaforseti, sem veðjað er á að muni taka við af Hu, og Li Keqiang aðstoðarforsætisráð- herra munu sitja áfram í fastanefnd- inni. „Ég tel að Hu Jintao og Wen Jiabao séu að senda Xi Jinping merki til að koma í veg fyrir að hann sveigi of langt til vinstri,“ segir fræðimað- urinn Guo. Hann telur að brottvikn- ing Bos sé vísbending um að Wang Yang, sem hefur verið helsti keppi- nautur Bos – þeir hafa verið kallaðir fallbyssurnar tvær – sé nú fremstur í röð væntanlegra fastanefndar- manna. Frétt ríkisfréttastofunnar Xinhua af brottrekstri Bos fylgdu engar skýringar. Hins vegar spannst þegar mikil umræða á kínverskum fé- lagsvefjum á borð við örskilaboða- vefinn Weibo, sem svipar til Twitter, þegar fyrstu vísbendingar um að framtíð Bos væri í óvissu komu fram fyrir rúmum mánuði. „Brottrekstur Bos var grímulaus stjórnmálabar- átta,“ skrifaði einn. „Í kommúnista- flokknum virðist ríkja mikil eining, en armarnir takast allir á bæði ljóst og leynt.“ FRÉTTIR 23Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MARS 2012 Maður ársins Bo Xilai hefur skorið sig úr í kínverskum stjórnmálum. Hann berst á og hefur ekki farið dult með sókn sína eftir völdum. Hann hefur náð til almennings og var kjör- inn maður ársins í almennri netkosningu Dagblaðs alþýð- unnar 2009. Stíll hans hefur hins vegar ekki verið ýmsum forustumönnum að skapi. Gegn spillingu Bo réðst gegn spillingu þegar hann komst til valda í Chongqing, þar sem búa rúmlega 30 milljónir manna. Tugir embættismanna voru handteknir og flett ofan af gjálífi þeirra. Margir voru teknir af lífi. Harmsaga Þegar Bo var tán- ingur hóf Maó menningarbylt- inguna sem var tími ofbeldis og glundroða þar sem nem- endur snerust gegn kennurum og víðtækar hreinsanir áttu sér stað. Faðir Bos, Bo Yibo, var byltingarforingi, en féll í ónáð og var handtekinn og pyntaður. Bo Xilai var sendur í þrælkunarbúðir og móðir hans var barin til dauða. Uppreisn æru Fjölskyldan fékk uppreisn æru þegar Maó dó og Deng Xiaoping tók við og inn- leiddi umbætur. Bo Yibo varð einn valdamesti maður Kína og sonur hans naut góðs af því þar til nú. Ris og fall Bo lærði fjölmiðla- fræði, en flestir af forustu- mönnum Kína eru með gráður í verkfræði eða raunvísindum. Hann er nú 62 tveggja ára og hefur komið víða við á valda- ferli sínum. Árið 2004 varð hann viðskiptaráðherra og heillaði erlenda ráðherra, sem hann tók á móti. Þegar hann fór til Chongqing töldu margir að hann myndi hverfa úr sviðsljósinu, en hann kom í veg fyrir það með herferðinni gegn spillingu. Mörgum þótti hann ganga of langt og fara á svig við lög í þeirri herferð og varð hún honum á endanum að falli. Fallin stjórnmála- stjarna í Kína Belgísk stjórn- völd lýstu yfir því í gær að í dag yrði þjóðarsorg í Belgíu vegna hins hörmulega rútuslyss í Sviss á miðvikudag þar sem 22 börn og sex fullorðnir létu lífið. 21 hinna látnu var Belgi og sjö voru með hollenskt rík- isfang. Í rútunni voru 11 og 12 ára börn úr tveimur katólskum skólum í Belgíu. 24 börn til viðbótar slös- uðust. Mínútu þögn verður klukkan 11 að staðartíma í fyrramálið og verð- ur flaggað í hálfa stöng og næstu daga verða haldnar minning- arathafnir. „Allt landið grætur börn sín,“ sagði Elio Di Rupo, for- sætisráðherra Belgíu á þingi í gær. BELGÍA Þjóðarsorg út af rútuslysi Þjóðarsorg var lýst yfir í Belgíu. Argentínsk stjórnvöld lýstu yfir því í gær að þau myndu grípa til lögformlegra aðgerða gegn ol- íufélögum, sem starfa við hinar umdeildu Falk- landseyjar. Hector Ti- merman, utan- ríkisráðherra Argentínu, sagði á blaðamannafundi að olíufélögum, sem nú boruðu við eyjarnar, yrði stefnt. Vaxandi spenna hefur verið vegna eyjanna, sem Argentína hef- ur krafist yfirráða yfir frá 1833, en eru undir stjórn Breta. Í byrjun apríl verða 30 ár liðin frá Falk- landseyjastríðinu. ARGENTÍNA Stefna olíufélögum við Falklandseyjar Port Stanley á Falklandseyjum. Norskrar herflutningavélar með fimm manns um borð var saknað yf- ir norðurhluta Svíþjóðar síðdegis í gær og voru leitar- og björg- unarsveitir sendar á vettvang. „Norsk flutningavél af gerðinni Hercules var á leið frá Evenes í Noregi til Kurana í Svíþjóð og hef- ur verið tilkynnt að hennar sé sakn- að skammt frá Kiruna,“ saðgi Matthias Hansson, talsmaður björg- unaraðgerðanna. Flugmaður vélarinnar hafði sam- band við flugturninn í Kiruna klukkan 13.40 að íslenskum tíma í gær og eftir það hvarf vélin af ratsjá. Slæmt veður var á svæðinu. Þyrlur voru sendar frá Noregi, Sví- þjóð og Danmörku til að leita. SVÍÞJÓÐ Norskrar her- flugvélar saknað Trésmiðja GKS ehf, Funahöfða 19, sími 577 1600, gks@gks.is, gks.is Gæði - Kunnátta - Sveigjanleiki Dreymir þig nýtt eldhús! Hjá þaulvönum starfsmönnum GKS færðu sérsmíðað eldhús og allar innréttingar sem hugurinn girnist. Við bjóðum framúrskarandi þjónustu og gæðasmíði alla leið inn á þitt heimili.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.