Morgunblaðið - 16.03.2012, Blaðsíða 52
FÖSTUDAGUR 16. MARS 76. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Bobbi Kristina trúlofuð …
2. „Veit ég á honum lífið að launa“
3. Heilabilun af völdum áfengis
4. „Ég gæti … bætt á mig 20 kg“
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Hljómsveitin Pascal Pinon heldur
til Japans hinn 28. mars og leikur þar
á átta tónleikum, í Tókýó, Kyoto, Kan-
zawa og víðar. Hún heldur kveðju-
tónleika í Neskirkju föstudaginn 23.
mars vegna þessa.
Pascal Pinon á
leiðinni til Japans
Amma Lo-fi,
mynd Orra Jóns-
sonar, Kristínar
Bjarkar Kristjáns-
dóttur og Ingi-
bjargar Birg-
isdóttur um
tónlistarkonuna
Sigríði Níels-
dóttur hefur vakið
mikla athygli ytra að undanförnu,
m.a. mærði Rolling Stone hana fyrir
stuttu. Myndin verður frumsýnd hér á
landi 30. mars í Bíó Paradís.
Amma Lo-fi sýnd
á Íslandi 30. mars
Anna Þorvaldsdóttir og
Þuríður Jónsdóttir eru
tilnefndar til Nor-
rænu tónlistarverð-
launanna, en alls
eru tólf tónskáld
tilnefnd. Anna er
tilnefnd fyrir verk-
ið „Dreymi“ sem
er að finna á plötu
hennar Rhízoma
en Þuríður fyrir
verkið „Flut-
ter“.
Norrænu tónlist-
arverðlaunin
Á laugardag NV-læg átt, 5-13 m/s og él, en þurrt SA-lands. Lægir
og léttir til V-lands síðdegis. Frost 0 til 10 stig, kaldast NA-lands.
Á sunnudag Suðaustlæg átt með snjókomu, en slyddu eða rign-
ingu S-lands seinnipartinn, suðvestlægari SV-til um kvöldið.
Minnkandi frost og hlánar S- og SV-lands.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Kólnandi og víða vægt frost.
VEÐUR
„Hún fékk frábæra send-
ingu frá hægri bakverðinum
og átti flott hlaup á milli
miðvarðanna. Þær reyndu
að hanga í henni, Sara hefði
eflaust getað fengið víta-
spyrnu en hún er Íslend-
ingur, hristi þær af sér og
skoraði glæsilega,“ segir
Þóra B. Helgadóttir um sig-
urmark Söru B. Gunnars-
dóttur fyrir Malmö í
Meistaradeild Evr-
ópu. »1
Íslendingur og
hristi þær af sér
Haukur og Kristján Andréssynir hafa
náð stórum áfanga með sænska
handknattleiksliðinu Guif sem vann
úrvalsdeildina í fyrsta skipti í sög-
unni í fyrrakvöld. Haukur er
fyrirliði og Kristján þjálf-
ari og Haukur segir að
félagið ætli sér að ná
langt í evrópskum
handbolta á næstu ár-
um. »1
Bræðurnir á toppnum í
sænska handboltanum
Kylfingurinn Stefán Már Stefánsson
er búinn að hella sér út í atvinnu-
mennskuna á ný af fullum krafti.
Hann hefur hrist af sér meiðsli og
spilar nú á fullu í mótaröðinni í
Þýskalandi eins og hann gerði áður.
„Ég er í toppmálum og stefni á að
vera á meðal fimm efstu,“ segir Stef-
án Már sem ætlar að reyna að kom-
ast á Áskorendamótaröð Evrópu. »3
Stefán Már stefnir
hátt í Þýskalandi
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Slökkviliðsmenn af höfuðborgar-
svæðinu voru við nokkuð sérstakar
æfingar í Hafnarfirðinum í gær. Þar
reyndu þeir að tileinka sér reynslu
blindra af því að skynja umhverfið
og nýta sér það í reykköfun, meðal
annars með því að nota hvíta staf-
inn.
Námskeiðin eru samstarfsverk-
efni slökkviliðs höfuðborgarsvæð-
isins og Þjónustu- og þekkingar-
miðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta
og daufblinda einstaklinga. Á því
eru kenndar aðferðir fyrir blinda
við að rata og átta sig á umhverfinu,
skynja hljóð og rými.
„Þegar reykkafari fer í reykköfun
er hann náttúrlega blindur líka.
Blindir búa við þetta alla daga og
hafa gífurlega reynslu og þjálfun.
Þarna erum við að fá að læra þeirra
tækni og skynja þeirra umhverfi,“
segir Jón Viðar Matthíasson,
slökkviliðsstjóri höfuðborgarsvæð-
isins, um æfinguna.
Menn séu þó ekki aðeins að æfa
sig í að nota hvíta stafinn heldur
einnig að læra hvernig þeir eigi að
hugsa, hlusta eftir hljóðum og
skynja umhverfið í kringum sig.
Eykur leitargetuna til muna
Jón Viðar veit ekki til þess að
hvíti stafurinn sé notaður af slökkvi-
liðum í nágrannalöndunum en hann
sér fyrir sér að íslenskir slökkviliðs-
menn geti notað hann við reykköfun
í náinni framtíð.
Hingað til hafi menn verið að
nota fætur og hendur til að þreifa
fyrir sér við leit að fólki í reykfylltu
rými. Með því að nota stafinn verði
auðveldara að leita.
„Þó svo að við myndum aðeins ná
tækni í því að nota hvíta stafinn við
reykköfun myndi það eitt og sér
auka leitargetu reykkafara og hraða
um helming,“ segir hann.
Lærðu í Búdapest
Jón Viðar segir að verkefnið hafi
farið af stað þegar Blindrafélagið
bauð tveimur slökkviliðsmönnum til
Búdapest í Ungverjalandi, þar sem
slíkar aðferðir fyrir slökkviliðsmenn
hafa verið þróaðar, í fyrra.
Til viðbótar fóru tveir fulltrúar
Þjónustu- og þekkingarmiðstöðv-
arinnar með í ferðina. Þeir kenna
nú slökkviliðsmönnum borgarinnar
hvernig nýta megi reynsluheim
blindra við reykköfun.
„Þarna mætast þessir tveir
reynsluheimar sem verður þá von-
andi til góðs fyrir þá sem við erum
að þjónusta á höfuðborgarsvæðinu,“
segir Jón Viðar.
Blindir leiða reykkafara
Slökkvilið æfir
sig með hvíta stafi
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Æfing Slökkviliðsmenn reyndu að tileinka sér reynslu blindra af því að skynja umhverfið.
Með staf Með því að nota hvíta stafinn yrði auðveldara fyrir slökkviliðs-
menn að leita að fólki í reykfylltu rými.