Morgunblaðið - 16.03.2012, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 16.03.2012, Blaðsíða 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MARS 2012 ✝ GuðlaugurHallgrímsson fæddist í Reykjavík 25. maí 1948. Hann lést 12. febrúar 2012 á Landspít- alanum við Hring- braut. Foreldrar hans eru Valgerður Guð- laugsdóttir frá Seyðisfirði, f. 10. ágúst 1927, og Hall- grímur Hallgrímsson frá Skála- nesi við Seyðisfjörð, f. 14. maí 1923, d. 14. september 1998. Guð- laugur var elsta barn þeirra hjóna. Systkini Guðlaugs eru: Herdís Rut Hallgrímsdóttir, f. 4. október 1952, Hallgrímur Sigurður Hall- 2011 kvæntist Guðlaugur Ásdísi Bernburg, f. júlí 1941. Hennar börn eru: Sigrún Birgisdóttir, f. 13. október 1959, og Unnur Björg Birgisdóttir, f. 17. maí 1967. Guðlaugur rak á tímabili ásamt föður sínum verktakafyr- irtæki sem sérhæfði sig í jarð- vegsvinnu. Þeir störfuðu mest fyrir Rafmagnsveitu Reykjavík- ur og Húsameistara ríkisins á sínum tíma en einnig fyrir aðra, m.a. Hafnarfjarðabæ. Guðlaugur hóf störf hjá Toll- stjóranum í Reykjavík árið 1968. Hann starfaði þar til dauðadags. Stóran hluta starfsævinnar var hann hjá tollinum í Hafnarfirði. Útför Guðlaugs hefur farið fram í kyrrþey að hans ósk. grímsson, f. 19. mars 1961, og Óli Svavar Hallgrímsson, f. 15. mars 1968. Guðlaugur kvænt- ist 12. júlí 1969 Erlu Bil Bjarnardóttur, f. 13. apríl 1947. Þau skildu. Börn þeirra eru: 1) Valgerður Guðlaugsdóttir, f. 22. febrúar 1970, hennar sambýlis- maður er Helgi Hjaltalín Eyjólfs- son, f. 15. júlí 1968, og þeirra barn er Eyjólfur Orri Helgason, f. 16. mars 2010 í Reykjanesbæ. 2) Magnús Guðlaugsson, f. 7. maí 1977 í Reykjavík. Sonur Erlu Bilj- ar er Guðröður Ágústsson, f. 12. apríl 1966. Hinn 1. nóvember Ég minnist þín Gulli minn með þakklæti og hlýju. Þakklæti fyrir að hafa kynnst þér og þínu örlæti. Þú varst alltaf til í að lána okkur Toyotuna þína, hvort sem það var yfir heiðina í vetrarfæri eða austur á Seyðisfjörð til að komast út í Skálanes. Þakklæti fyrir að passa kisurn- ar okkar þegar við þurftum á því að halda. Þakklæti fyrir alla hjálpina þeg- ar við Halli bróðir þinn vorum að byggja í Hjallahlíðinni. Þakklæti fyrir allar gleðistundirnar sem við Halli áttum með þér. Og gleðin við að fá að hjálpa þér að koma íbúðinni þinni í stand í Hörðalandinu. Þarna leið þér svo vel, og seinna kynntist þú svo henni Ásdísi þinni, í sama stiga- gangi og við Halli minn kynntumst. Skútusmíðin með Ninna vini þínum var stór hluti af lífi þínu seinni árin. Þú settir þig inn í allt hvað skútusmíðar varðar. Og í þessu umhverfi undir þú þér vel, blómstraðir. Ég minnist líka stundanna um jólin þegar þið bræður voruð að elda rjúpurnar. Þá fylgdist ég með úr fjarlægð og horfði á ykkur bræður vinna saman í eldhúsinu, yndislegt. Ég minnist þess líka hve það var yndislegt að fá að vera með ykkur Ásdísi á brúðkaupsdeginum ykkar 1. nóvember sl. Svo er líka lítil kisa sem á eftir að sakna þín Gulli minn og það er hann Fúsi minn. Þið voruð svo miklir vinir. Þegar þú komst í kaffi til okkar og fórst að rúlla sígarett- urnar á borðiðnu áttir þú alla hans athygli. Nú er hann búinn að missa tvo bestu vini sína á skömm- um tíma, því Viggi bróðir hans fór tveimur dögum á undan þér. Minningarnar eru margar þeg- ar kemur að þér Gulli minn. Ég veit að þú hlakkaðir svo til sum- arsins. Þú náðir því ekki, en það er örugglega sumar þar sem þú ert núna og góður byr í seglin. Sakna þín Gulli minn, takk fyrir allt. Við sjáumst síðar. Helga. Guðlaugur Hallgrímsson Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Sumarhús Sumarhús - Gestahús - Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla - Endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892 3742 og 483 3693, www.tresmidjan.is Rafvirkjun Raflagnir, dyrasímar - S. 6630746 Bjóðum hagstætt verð í töfluskipti. Úttekt á raflögnum í eldra húsnæði, án endurgjalds. Straumblik ehf. löggilltur rafverktaki straumblik@gmail.com Óska eftir KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum allt gull. Kaupum silfur- borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar- leg viðskipti. Aðeins í verslun okk- ar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. Kaupi silfur Vantar silfur til bræðslu og endur- vinnslu. Fannar verðlaunagripir. Smiðjuvegi 6, rauð gata, Kópavogi, s. 551-6488 fannar@fannar.is - KAUPI GULL! Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða- meistari, kaupi gull, gullpeninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Skattframtöl Skattframtal 2012 Framtalsþjónusta fyrir einstaklinga og rekstraraðila. Mikil reynsla - hagstætt verð. Uppl. í síma 517-3977. www.fob.is. netf. info@fob.is. Þjónusta Vefsíðugerð Tek að mér hönnun og uppsetningu á vefsíðum. Bæði tilbúnar lausnir og sérforritun. Axel Davíð, sími 770-3160, axel@austurnet.is Nú er rétti tíminn fyrir trjáklippingar og fellingar Látið fagmenn okkar nostra við garðinn þinn. Öll almenn garðþjónusta á einum stað. 577 4444 www.gardalfar.is Malbikun og malbiks- viðgerðir S 551 4000 & 690 8000 www.verktak.is Byggingavörur Byggingakranar til sölu Tilboð óskast í Liebherr krana (á mynd) og Benazzato árg. 2005. Upplýsingar á sala@visir.is Málarar Alhliða málningarþjónusta Aðeins löggiltir málarar, hagstætt verð í boði. Upplýsingar í síma: 696 2748, 692 2290. Ýmislegt                SUNDBOLIRNIR KOMNIR Teg. BAHAMAS - Flott snið, mátast frábærlega í D,DD,E,F,FF,G,GG,H,HH,J skálum á kr. 12.900. Laugavegi 178, sími 551 3366. Opið mán.-fös. 10-18, laugardaga 10-14. Þú mætir - við mælum og aðstoðum. www.misty.is - vertu vinur TILBOÐ - TILBOÐ Dömustígvél úr leðri, fóðruð, mjúk og þægileg. Stakar stærðir. Tilboðsverð: 9.500. Komdu og líttu á úrvalið hjá okkur! Sími: 551 2070, opið: mán. - fös. 10 - 18. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.mistyskor.is Erum einnig á Facebook. Vandaðir þýskir herraskór í úrvali: Teg. 36900 Léttir og þægilegir herra- skór úr leðri, fóðraðir og með góðan sóla. Stærðir: 41-47. Verð: 15.885. Teg: 26901 Léttir og vandaðir herra- skór úr leðri, fóðraðir og með góðan sóla. Stærðir: 41-47. Verð: 19.250. Teg. 25205 STÓRAR STÆRÐIR. Léttir og vandaðir herrskór úr leðri með góðan sóla. Stærðir: 42-50. Verð: 17.650. Komdu og líttu á úrvalið hjá okkur! Sími: 551 2070, opið: mán. - fös. 10 - 18. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.mistyskor.is Erum einnig á Facebook. Bílar óskast Bílalíf • Kletthálsi 2 • www.bilalif.is bílasala ...í bílum erum við sterkir! ☎ 562 1717 Skráðu bílinn þinn frítt hjá bilalif.is Bílaþjónusta GÆÐABÓN Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Húsviðhald Stigahúsateppi Strönd ehf. Suðurlandsbraut 10, 108 Reykjavík. S.533 5800. www.strond.is. - nýr auglýsingamiðill  569-1100finnur@mbl.is Eldri borgarar Hafnarfirði Föstudaginn 9. mars var spilað á 18 borðum hjá FEBH með eftirfarandi úrslitum í N/S: Magnús Jónsson – Óskar Ólafsson 411 Ragnar Björnsson – Pétur Antonsson 377 Tómas Sigurjónss. – Björn Svavarsson 364 Gunnar Guðbjörnss. – Grethe Iversen 350 Ólafur Gíslason – Örn Einarsson 339 A/V: Guðjón Eyjólfsson – Sigurður Tómasson 393 Sverrir Gunnarsson – Kristrún Stefánsd. 375 Birgir Sigurðsson – Jón Svan Sigurðss. 358 Skafti Þórisson – Dagur Ingimundarson 342 Svanhildur Gunnarsd. – Magnús Láruss. 338 Bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Ásgarði, Stangarhyl 4, mánudaginn 12. mars. Spilað var á 15 borðum. Með- alskor: 312 stig. Árangur N-S: Haukur Harðarson – Ágúst Helgason 424 Ægir Ferdinandss. – Helgi Hallgrss. 347 Siguróli Jóhannss. – Auðunn Helgason 346 Magnús Oddsson – Oliver Kristóferss. 339 Árangur A-V: Ragnar Björnsson – Oddur Halldórss. 413 Friðrik Jónsson – Tómas Sigurjónss. 381 Oddur Jónsson – Jón Þór Karlsson 379 Magnús Jónsson – Óskar Ólafsson 346 Gullsmárinn Spilað var á 14 borðum í Gullsmára mánudaginn 12. mars.Úrslit í N/S: Guðbjörg Gíslad. – Sigurður Sigurðss. 333 Birgir Ísleifsson – Jóhann Ólafss. 291 Gunnar Sigurbjss. – Sigurður Gunnlss. 290 Þórður Jörundss. – Þorleifur Þórarinss. 284 A/V Bernhard Linn – Ragnar Haraldss. 349 Ágúst Vilhelmss. – Kári Jónsson 305 Pétur Jónsson – Páll Ólason 297 Ernst Backman – Hermann Guðmundss. 295 Sveitakeppni Bridsfélags Reykjavíkur Að loknum 6 umferðum af 12 í aðalsveitakeppni BR 2012, er hnífjafnt á toppnum. Staðan er þessi: Lögfræðistofa Íslands 117 Sölufélag Garðyrkjumanna 116 Chile 110 Grant Thornton 106 Sveitarokk á Suðurnesjum Guðni Sigurðsson og Kolbrún Guðveigsdóttir náðu hæstu skorinni í sveitarokki sl. miðvikudagskvöld. Þau fengu 29 impa. Gunnlaugur Sævarsson og Rand- ver Ragnarsson urðu í öðru sæti sem og Óli Þór Kjartansson og Arnór Ragnarsson með 2 impa. Hinir síðastnefndu leiða mótið með skorina 87,3. Karl G. Karlsson og Garðar Garðarsson eru í öðru sæti með 79. Bræðurnir Árni og Oddur Hannessynir þriðju með 60 og bræðurnir Kristján og Ólafur Karvel Pálssynir fjórðu með 57,2. Það verður spilað næst á miðvikudagskvöldið kl. 19 í félagsheimilinu á Mánagrund. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.