Morgunblaðið - 16.03.2012, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 16.03.2012, Blaðsíða 48
48 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MARS 2012 Það er greinilega ekki tekið út með sældinni að vera prins ef marka má orð Harrys Bretaprins. Flestir myndu halda að lífið væri ljúft með þjóna á hverju horni, aðgang að einkaþotum, flota glæsibifreiða og kastala. Í viðtali CBS-sjónvarps- stöðvarinnar við prinsinn segir hann erfitt að finna ástina því ekki sé auðvelt að finna kvenmann sem vilji deila með honum öllum þeim konunglegu skyldum sem fylgja sambandi með konungsbornum manni. Í kjölfarið sagði hann að þeir bræður óskuðu þess stundum að þeir væru almúgamenn en ekki prinsar. Prinsinn er nú á tíu daga ferðalagi um Karíbahafið þar sem hann er fulltrúi Elísabetar Eng- landsdrottningar, en ferðin er farin í tilefni 60 ára krýningarafmælis hennar. Konungsfólk Þótt konungsdæmi séu gamaldags er víða að finna þetta forna form í Evrópu. Harry segir oft erfitt að vera prins AP Þrjár nýjar myndir verða frum- sýndar um helgina og er eitthvað fyrir alla. Act of Valor Hér er á ferðinni hörkuspennandi hasarmynd um bandaríska sér- sveitarmenn sem fá það verkefni að bjarga CIA-starfsmanni úr klóm mannræningja. Allt er gert til að gera myndina sem raunverulegasta og því notast við raunverulegar að- ferðir sem sérsveitamenn nota og hvorki sprengingar né atriði líkt og oft eru í myndum frá Hollywood. Myndir fjallar um baráttu þessa einstaka hóps manna sem leggja líf sitt að veði fyrir hvert verkefni. Mistök í starfi kosta oftar en ekki lífið og fá menn því sjaldan annað tækifæri ef þeir klúðra málum. Það eru Mike McCoy og Scott Waugh sem leikstýra myndinni og með að- alhlutverk fara Roselyn Sanchez, Emilio Rivera og Timothy Gibbs. Rotten Tomatoes: 85% IMDB: 63/100 W.E. Frá Madonnu kemur ein magnað- asta og þekktasta ástarsaga 20. aldarinnar. Játvarður prins, sem var erfingi bresku krúnunnar, af- salaði sér konungstign til að geta verið með bandarískri unnustu sinni, Wallis Simpson. Myndin hleypur til í tíma en hún fjallar að nokkru leyti um Wally Winthrop sem verður hugfanginn af þessari einstöku ástarsögu sem með sanni breytti gangi heimssögunnar eða í það minnsta sögu breska heims- veldisins. Leikstjórn myndarinnar er í hönd- um Madonnu og með aðalhlutverk fara Abbie Cornish, Oscar Isaac, Annabelle Wallis og Natalie Dorm- er. Rotten Tomatoes: 57% IMDB: 51/100 Project X Skemmtileg og fyndin gamanmynd hér á ferð um Thomas Mann sem á afmæli og eins og flestir ungir menn vill hann halda stærsta, flott- asta og besta afmælispartí sem völ er á. Það sem hjálpar Thomas er að foreldrar hans, sem annars hefðu orðið honum steinn í götu, verða ekki heima. Foreldrarnir eru ríkir og búa í stóru húsi. Hér er því upp- skrift að góðu partíi og því sem mögulega getur farið úrskeiðis þegar ungviðið er eitt og leikur sér ábyrgðarlaust. Nima Nourizadeh leikstýrir mynd- inni og með aðalhlutverk fara Thomas Mann, Jonathan Daniel Brown og Oliver Cooper. Rotten Tomatoes: 73% IMDB: 59/100 Bíófrumsýningar Spenna, rómantík og gott glens um helgina Hetjudáð Act of Valor fjallar um þá sem setja öryggi annarra framar sínu. LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Toppmyndin á Íslandi í dag 30.000 manns DV HHHH FBL HHHH FT HHHH MBL HHHH ÞRÆLMÖGNUÐ SPENNUMYND! PRESSAN.IS HHHH KVIKMYNDIR.IS HHHH FYRSTA STÓRMYND ÁRSINS „PLEASANT SURPRISE“ -C.B. JOBLO.COM HHHH „EXPLOSIVE“ -J.D.A. MOVIE FANATIC „PURE MAGIC“ -H.K. AIN´T IT COOL NEWS „VISUALLY STUNNING“ -K.S. FOX TV MÖGNUÐ ÆVINTÝRAMYND Í 3D SVARTUR Á LEIK Sýnd kl. 5:50 - 8 - 10:15 PROJECT X Sýnd kl. 6 - 8 - 10:15 JOHN CARTER 3D Sýnd kl. 4 (950 kr.) - 7 SKRÍMSLI Í PARÍS Sýnd kl. 4 (750 kr.) JOURNEY 2 3D Sýnd kl. 4 (950 kr.) SAFE HOUSE Sýnd kl. 10:20 Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU -bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar www.laugarasbio.is Meðal efnis : Hönnuðir,arkitektar og aðrir þátttakendur. Ný íslensk hönnunn. Húsgögn og innanhúshönnun. Skipuleggjendur og saga hönnunarMars. Dagskráin í ár. Erlendir gestir á hátíðinni. Ásamt fullt af öðru spennandi efni um hönnun. Morgunblaðið gefur þann 22. mars út glæsilegt sérblað um HönnunarMars Á HönnunarMars gefst tækifæri til að skoða úrval af þeim fjölbreytilegu verkefnum sem íslenskir hönnuðir og arkitektar starfa við. Hátíðin verður haldin víðsvegar um Reykjavík –– Meira fyrir lesendur PÖNTUN AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, FÖSTUDAGINN 16. MARS Katrín Theódórsdóttir Sími 569 1105 kata@mbl.is NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: SÉRBLAÐ FT FBL MBL DV PRESSAN.IS KVIKMYNDIR.IS 33.000 MANNS SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.ISGLERAUGU SELD SÉR 5% ACT OF VALOR KL. 5.30 - 8 - 10.30 16 THE VOW KL. 5.30 - 8 - 10.20 L SVARTUR Á LEIK KL. 5.30 - 8 - 10.30 16 SVARTUR Á LEIK LÚXUS KL. 5.30 - 8 - 10.30 16 TÖFRATENINGURINN KL. 3.30 L THIS MEANS WAR KL. 8 - 10.15 14 STAR WARS EPISODE 1 3D ÓTEXTUÐ KL. 5 10 SKRÍMSLI Í PARÍS 3D KL. 3.30 L ALVIN OG ÍKORNARNIR 3 KL. 3.30 L BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS ACT OF VALOR KL. 5.30 - 8 - 10.30 16 THE VOW KL. 5.40 - 8 - 10.20 L SVARTUR Á LEIK KL. 5.30 - 8 - 10.30 16 THIS MEANS WAR KL. 10.15 14 LISTAMAÐURINN KL. 5.45 - 8 L ACT OF VALOR KL. 8 - 10.10 16 SVARTUR Á LEIK KL. 6 - 8 - 10 16 THE VOW KL. 6 L HVAÐ EF SÍÐUSTU FIMM ÁR ÆVI ÞINNAR HYRFU Á EINU AUGNABLIKI? BYGGÐ Á SANNSÖGULEGUM ATBURÐUM. STARFANDI SÉRSVEITARMENN BANDARÍKJAHERS US NAVY SEALS FARA MEÐ HLUTVERK PERSÓNANNA Í MYNDINNI. SAGAN ER SKÁLDSKAPUR EN VOPNIN OG AÐFERÐIRNAR RAUNVERULEGAR. BYGGT Á RAUNVERULEGUM VERKEFNUM SÉRSVEITA BANDARÍKJAHERS US NAVY SEALS. EKKI MISSA AF ÞESSARI!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.