Morgunblaðið - 16.03.2012, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRViðskipi | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MARS 2012
ISS.IS • SÍMI: 580 0600
LEIÐANDI Í FASTEIGNAUMSJÓN
FASTEIGNAUMSJÓN ISS
Öll þjónusta við fasteignina á einni hendi.
Þjónusta ISS:
• Húseftirlit og daglegur rekstur
• Viðhaldsmál og viðhaldsáætlanir
• Fjármálaumsýsla
• Lóð og umhverfi
• Ræstingar og hreingerningar
• Samskipti við leigjendur
Með FASTEIGNAUMSJÓN ISS losnar þú við
áreiti og umstang ásamt því að tryggja virði
fasteignarinnar.
F J Á R F E S TA R O G F A S T E I G N A E I G E N D U R
!"# $% " &'( )* '$*
+,-.,/
+00.1
+,/.23
,,.1,-
,+.0,4
+/.5,/
+1-.20
+.3,4-
+04.-,
+55.2,
+,-.3/
+00.-/
+,/.4,
,,.10,
,+.0/0
+/.5/1
+1-.4-
+.3,0,
+03.1
+55.4/
,,/.4100
+,-.//
,22.,5
+,/.-0
,,.43-
,,.234
+/.-1/
+1-./3
+.311-
+03.//
+55.04
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Heildar-
launakostnaður á
greidda stund jókst
um 11,1% frá fyrri
ársfjórðungi í sam-
göngum og flutn-
ingum, 9,6% í
verslun og ýmissi
viðgerðarþjónustu,
8,3% í iðnaði og
6,4% í bygging-
arstarfsemi og
mannvirkjagerð að því er fram kemur í
frétt frá Hagstofu Íslands.
Heildarlaunakostnaður án óreglu-
legra greiðslna á greidda stund jókst
einnig. Í slíkum útreikningi eru greiðslur
útilokaðar sem ekki eru gerðar upp á
hverju útborgunartímabili eins og des-
emberuppbót.
Launakostnaður eykst á
milli ársfjórðunga
Vinna Meira fólk,
meiri kostnaður.
● Fyrirtæki í eigu
Creditinfo hefur
fengið starfsleyfi á
Jamaíku. Um er að
ræða fyrsta fyr-
irtækið á Jamaíku
sem fær leyfi til að
innleiða fjárhags-
upplýsingakerfi
(Credit Bureau),
samkvæmt tilkynn-
ingu.
Starfsleyfið veit-
ir fjármálaráðherra á grundvelli laga
sem samþykkt voru árið 2010. Credit-
info Jamaica mun nú starfa undir eft-
irliti Seðlabankans á Jamaíku.
Kristinn Örn Agnarsson, sem hefur
unnið að verkefninu fyrir Creditinfo, tel-
ur að öll skilyrði fyrir leyfisveitingu
verði uppfyllt eigi síðar en í lok júlí á
þessu ári, samkvæmt tilkynningu.
Credit til Karíbahafsins
CreditInfo Fer til
sólarstrand-
arinnar.
Stuttar fréttir ...
Ingvar P. Guðbjörnsson
ipg@mbl.is
Íslendingar geta uppfyllt Maast-
richt-skilyrðin árið 2016, sagði
Oddný G. Harðardóttir iðnaðarráð-
herra á Iðnþingi í gær sem haldið var
undir yfirskriftinni „Verk að vinna“.
„Vegna þess árangurs sem náðst
hefur í fjármálum hins opinbera og
trúverðugrar áætlunar á því sviði,
bendir allt til þess að verg skulda-
staða hins opinbera að frádregnum
skuldum vegna gjaldeyrisvaraforð-
ans gæti verið komin undir 60% af
landsframleiðslu árið 2016,“ sagði
Oddný og að gjaldeyrishöftin væru
skýr birtingarmynd þess að íslenska
krónan gæti ekki talist góður kostur.
„Síðustu þriggja ára verður minnst
sem týndu áranna eða glötuðu ár-
anna á Íslandi, áranna þegar tæki-
færin voru ekki nýtt,“ sagði Helgi
Magnússon, fráfarandi formaður
Samtaka iðnaðarins. „Við verðum að
bíða enn um sinn og treysta á að hér
komi til valda ríkisstjórn sem vill
vinna með atvinnulífinu og fólkinu í
landinu að öflugri uppbyggingu og
kraftmikilli athafnastefnu,“ sagði
Helgi.
Evran kemst yfir erfiðleikana
Jón Daníelsson hagfræðingur hélt
erindi og sagði hönnun evru-
samstarfsins hafa verið svo gallaða
frá upphafi að erfiðleikar hennar
hefðu verið óhjákvæmilegir. Hann
taldi að evran myndi lifa erfiðleikana
af, en það myndi gerast á ómarkviss-
an hátt og með smáskammtalækn-
ingum. Hann nefndi fjóra kosti fyrir
Íslendinga; að halda gjaldeyrishöft-
um óbreyttum til langs tíma, að af-
nema höftin og halda krónunni, að
taka einhliða upp annan gjaldmiðil,
sem væri fráleit leið að hans mati og
fjórði kostur væri ESB aðild og upp-
taka evrunnar.
Rannveig Rist, forstjóri Alcan, hélt
erindi og sagði rót vandans hérlendis
slæmt siðferði, eiginhagsmunasemi,
óheiðarleika og virðingarleysi. Hún
sagði fólk helst bara vilja tala um
ágreiningsatriði og þess vegna væri
lítið rætt um 60 milljarða yfirstand-
andi fjárfestingu Alcan í Straumsvík.
Sigsteinn P. Grétarsson, aðstoðar-
forstjóri Marels, hélt einnig erindi
þar sem hann kynnti starf fyrirtæk-
isins, en fyrirtækið rekur 17 fram-
leiðslueiningar um allan heim.
Forsendur til að uppfylla
Maastricht-skilyrðin 2016
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Iðnþing Helgi Magnússon, fráfarandi formaður Samtaka iðnaðarins, hélt
ræðu á Iðnþingi í gær. Svana Helen Björnsdóttir tók við formennsku í gær.
Evrusamstarfið
gallað í byrjun, segir
hagfræðingur
Helstu punktar Iðnþings
» Skilyrði til upptöku evru
verður komið á í ríkisfjár-
málum árið 2016.
» Síðustu þriggja ára verður
minnst sem hinna týndu eða
glötuðu ára.
» Íslendingar hafa fjóra kosti í
gjaldeyrismálum.
» Slæmt siðferði, eiginhags-
munasemi, óheiðarleiki og
virðingarleysi einkenna sam-
félagsumræðuna.
Hagnaður Arion banka nam 11,1
milljarði króna á liðnu ári eftir skatta
borið saman við hagnað upp á 12,6
milljarða árið 2010, að því er fram
kemur í afkomutilkynningu frá bank-
anum. Arðsemi eigin fjár minnkaði
nokkuð á milli ára – úr 13,4% fyrir ár-
ið 2010 í 10,5% á síðasta ári. Á móti
kemur að arðsemi bankans af reglu-
legri starfsemi jókst úr 8,8% í 10,8%.
Eiginfjárhlutfall bankans í árslok
2011 var 21,2% sem er töluvert yfir
því 16% lágmarkshlutfalli sem Fjár-
málaeftirlitið gerir kröfu um.
Í ársreikningi bankans fyrir árið
2011 er sérstaklega tekið tillit til
gengislánadóms Hæstaréttar frá 15.
febrúar síðastliðnum í tengslum við
fyrirhugaðan endurútrekning á
gengistryggðum lánum Arion. Áætl-
aður kostnaður Arion banka vegna
endurútreiknings þeirra lána sem
bankinn telur að falli undir ákvæði
dómsins er um 13,8 milljarðar.
Í tilkynningu frá bankanum er
haft eftir Höskuldi Ólafssyni, banka-
stjóra Arion banka, að „uppgjör
bankans fyrir árið 2011 er ásættan-
legt, sérstaklega í ljósi áhrifa af ný-
föllnum dómi Hæstaréttar, en dóm-
urinn hefur veruleg áhrif á afkomu
bankans. Dómur sem þessi sýnir vel
hversu mikilvægt það er að við höf-
um byggt upp fjárhagslegan styrk og
getum tekið á okkur fjárhagslegt
högg“.
Á fjórða ársfjórðungi 2011 nam tap
Arion banka 2,6 milljörðum króna
eftir skatta samanborið við jákvæða
um 3,6 milljarða króna árið 2010.
Áhrif dóms Hæstaréttar eru gjald-
færð á ársfjórðungnum en á móti
kemur 3,6 milljarða hagnaður af sölu
hluta Eignabjargs í Högum hf. og
hækkun á virði fyrirtækjalána upp á
um fimm milljarða króna.
Vaxtamunur Arion – mismunur
inn- og útlánavaxta – jókst nokkuð á
árinu og var 3,4% að meðaltali borið
saman við 2,8% frá fyrra ári. Á sama
tíma þurfti bankinn að greiða 1.046
milljónir króna vegna sérstaks
bankaskatts, sem er næstum fjórfalt
hærri upphæð en 2010.
Á fyrri helmingi ársins greiddi
bankinn sex milljarða króna arð til
ríkisins samkvæmt samkomulagi
milli skilanefndar Kaupþings og rík-
isins frá september 2009.
Hagnaður dregst lítillega saman en arðsemi af reglulegri starfsemi eykst töluvert
Arion hagnast um 11,1 milljarð
Morgunblaðið/Ómar
Uppgjör Bankastjóri Arion segir af-
komu síðasta árs „ásættanlega“.
Íbúðaverð mun
hækka um 16%
yfir þetta og
næsta ár, sam-
kvæmt spá Grein-
ingar Íslands-
banka, sem spáir
8% hækkun hvort
ár. Að teknu tilliti
til verðbólguspár
þeirra er þetta
um 8,5% raun-
verðshækkun yfir þessi tvö ár. Gangi
spáin eftir mun sú lækkun sem varð
á nafnverði íbúðarhúsnæðis frá
hruni hafa gengið að fullu til baka
um mitt þetta ár. Raunverð íbúða
verður hinsvegar enn um sinn langt
undir því sem það fór hæst í aðdrag-
anda hrunsins. Margir fyrirvarar
eru á spánni sem byggist á þeim for-
sendum að efnahagsbati verði.
Íbúðaverð
mun hækka
Margir fyrirvarar
á spá Íslandsbanka
Íbúð Á að kaupa
eða selja núna?