Morgunblaðið - 16.03.2012, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 16.03.2012, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MARS 2012 Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is Flísar framtíðarinnar gæði og glæsileiki á góðu verði María Ólafsdóttir maria@mbl.is Þ að var líf og fjör í Mýr- arhúsaskóla á Seltjarn- arnesi fyrr í vikunni. En þar gengu nem- endur í 1.-6. bekk frá sendingu af ýmiss konar ritföng- um til jafnaldra sinna í Namazizi- barnaskólanunum í þorpinu Chi- rombo í Malaví. Sendingin á nokk- uð langa ferð fyrir höndum en fjarlægðin á milli landanda er um 9.800 kílómetrar. Vinaskólar í yfir áratug Namazizi-barnaskólinn við Apaflóa og Mýrarhúsaskóli hófu vináttusamband árið 2000 en þá hafði Þróunnarsamvinnustofnun Íslands (ÞSSÍ) nýlokið við að byggja fyrsta grunnskólann af mörgum á svæðinu. Til stóð að senda gám með veiðarfærum á svæðið og í honum var pláss fyrir skóladót handa vinaskólanum. Söfnuðu þá nemendur á Seltjarn- arnesi saman ýmsum gagnlegum hlutum sem sendir voru til Malaví og eftir það hafa verið góð sam- skipti milli skólanna. Í haust voru haldnir Afríkudagar í Mýrarhúsa- skóla og unnu nemendur þá skart- gripi og myndir sem seldar voru foreldrum. Afraksturinn var send- ur með hjálp ÞSSÍ með viðbót- arframlagi frá Fjölbraut á Suð- urnesjum nú í febrúar. Vonast nú Gumbala, skólastjóri í Namazizi- skólanum, og skólanefndin til að með þessu fjármagni verði hægt að koma á varanlegu rafmangi í skólanum. Þannig munu nem- endur, sem búa úti í sveit án raf- magns, en vilja læra á kvöldin, koma í skólann til að læra. Skortur á ritföngum Árið 2007 sendu nemendur í Mýrarhúsaskóla kassa með skóla- dóti með hjálp DHL til Malaví. Í ár var mögulegt að end- urtaka leikinn en í gegnum bréfa- skriftir við nemendur skólans og skólastjórann mátti ráða að skort- ur væri á ritföngum í Namazizi. Var þá leitað til nemenda og for- eldra og brugðust allir vel við. Einnig gáfu Office1 og A4 heil- mikið af ritföngum. „Við vitum að það gleður þau mjög að fá svona sendingu og við vitum nokkurn veginn hvað það er sem nýtist þeim vel eftir að hafa heimsótt skólann árið 2008,“ segir Margrét Sigurgeirsdóttir, verk- efnastjóri hjá Grunnskóla Sel- tjarnarness. Tengt við skólastarfið „Við reynum að tengja þetta vináttusamband eins og hægt er inn í skólastarfið. Kennararnir Ritföng frá Seltjarn- arnesi til Malaví Mýrarhúsaskóli á Seltjarnarnesi og Namazizi-barnaskólinn í Malaví hafa verið vinaskólar frá árinu 2000. Síðan þá hefur reglulegt samband verið á milli nem- enda og starfsfólks skólanna en í vikunni fór sending af ritföngum frá nemendum af stað frá Seltjarnarnesi til Malaví. Afríkudagar hafa verið haldnir í skólanum og ýmislegt gert til að kynna landið og efna til ýmissa safnana. Morgunblaðið/Árni Sæberg Verkefnastjóri Margrét Sigurgeirsdóttir með tilbúna sendingu. Skólastund Nemandi við Namazizi-barnaskólann önnum kafinn við námið. Ljósmynd/Árni Árnason Ein er sú vefsíða íslensk sem vert er að benda á en hún heitir Seiðkonur, grasaguddur og allt það lið. Þar er að finna allskonar upplýsingar um ásatrú, jurtir, grænan lífsstíl, upp- skriftir, drauma og tákn, Harry Potter og óteljandi aðra hluti. Til dæmis er sérstakur flokkur sem heitir gyðjur og er mjög áhugaverður, en þar má meðal annars finna þetta heillaráð um hvernig skal fá útrás fyrir reiði, í eldhúsinu: Taktu stóran hníf og hvít- lauksrif, settu blaðið á rifið og lemdu á það með krepptum hnefa og jafnvel öskra á meðan, sérstaklega ef enginn annar er heima. Á þessari bráð- skemmtilegu síðu eru líka uppskriftir að heimatilbúnum snyrtivörum fyrir andlit, hendur, hár, líkaman allan og fæturna. Sérstakur flokkur er um græn heimili, annar um jóga og enn annar um konuna og líkama hennar. Margir ættu að hafa gagn af því að kíkja á flokkinn, lesa um kvefið, flensuna og allan pakkann, en þar eru meðal annars uppskriftir að heilsu- bætandi kvefdrykkjum. Einnig skal nefna flokk um Múmínálfa og nornir. Vefsíðan www.seidkona123.is Múmínást Sérstakur flokkur um Múmínálfana dásamlegu er á vefsíðunni. Seiðkonur og grasaguddur Í gær frumsýndi Fúría, Leikfélag Kvennaskólans í Reykjavík, hinn ógn- vænlega gamanleik Frankenstein. Næsta sýning er á sunnudagskvöld og aðrar sýningar verða næstu daga þar á eftir. Sagan gerist í litlum bæ í Þýskalandi þar sem allt hefur gengið sinn vanagang öldum saman en á einni niðdimmri nóttu breytist allt. Viktor Frankenstein er ungur metn- aðargjarn raunvísindanemi sem tekst að kollvarpa sýn mannsins á heimi vísindanna með sköpunarverki sínu. Draumar hans breytast fljótlega í martröð og spinnst upp atburðarás sem Viktor ræður ekki við. Igor vinur hans hjálpar honum að reyna að bæta fyrir misgjörðirnar. Miðasala í hádeginu í Kvennó. Hægt er að panta miða á leikfelagidfuria@gmail.com og símleiðis: 856 2732 og 866 2614. Endilega … … tékkið á Frankenstein Frankenstein Ekki árennilegur. Leik- og grunnskólanemendur munu- fylla miðbæ Akureyrar á Söngdögum á 150 ára afmælisári Akureyrar. Í dag verða samankomnir í miðbænum 1500 leik- og grunnskólanemendur sem munu fylla miðbæinn kraftmikl- um og fallegum tónum. Viðburðurinn verður á milli 10-11 í dag en þá koma krakkarnir saman í göngugötunni (neðst í stöllunum í Skátagilinu). Söngdagarnir eru skipulagðir af starfsfólki leik- og grunnskóla Ak- ureyrar og eru haldnir í tilefni af 150 ára afmæli bæjarins en sjálfur af- mælisdagurinn er 29. ágúst. Staðið hafa yfir miklar æfingar í skólunum síðustu mánuði þar sem tónstiginn hefur komið að góðum notum í upp- hituninni. Krakkarnir munu hefja upp raust sína með lögum á borð við “Ak- ureyri og norðrið fagra, Snert hörpu Söngdagar leik- og grunnskólanema Fylla miðbæ Akureyrar af fallegum söng Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.