Morgunblaðið - 16.03.2012, Síða 6

Morgunblaðið - 16.03.2012, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MARS 2012 - á föstudögum BAKSVIÐ Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Stjórn Sambands sveitarfélaga á Suð- urnesjum, SSS, samþykkti á fundi í vikunni að óska eftir lögbanni á akst- ur ferðaþjónustufyrirtækisins Ice- land Excursions Allrahanda ehf. á milli Reykjavíkur og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Berglind Kristinsdóttir, fram- kvæmdastjóri SSS, segir að þótt þetta hafi verið samþykkt sé ekki þar með sagt að þau láti verða af því að óska eftir lög- banni. „Við erum búin að skrifa undir samning við Vegagerðina og höfum fengið einkaleyfi á al- menningssam- göngum á Suður- nesjum. Eins og staðan er núna eru tveir aðilar að keyra þessa leggi, annar er með samning við okkur en hinn ekki,“ seg- ir Berglind og vísar til þess að sveit- arfélögin séu með samning við Kynn- isferðir sem sjá um almenningssamgöngur á svæðinu en ekki Allrahanda sem keyrir þrátt fyr- ir það flugfarþega milli Reykjavíkur og Leifsstöðvar. „Við höfum haft sérleyfi til fólks- flutninga á svæðinu frá 2008. Sam- kvæmt Allrahanda var glufa í lögun- um sem þeir nýttu sér en um áramótin var farið í það að breyta lög- unum svo glufan lokaðist. Þeir halda samt áfram að keyra,“ segir Berglind. Spurð hverju hafi verið breytt í lög- unum svarar hún að orðinu sérleyfi hafi verið breytt í einkaleyfi. SSS setur almenningssamgöngur á svæðinu í útboð í vor. Berglind segir alla geta tekið þátt í því útboði, þar á meðal Allrahanda. Hún segir útboðið stuðla að samkeppni um farþega- flutningana til og frá Leifsstöð. „Það hafa allir tækifæri til að bjóða í. Það er ekki hægt að segja að það sé ekki samkeppni.“ Flugstöð, ekki þéttbýlisstaður Þórir Garðarsson, framkvæmda- stjóri Iceland Excursions Allrahanda ehf., segir að honum hafi borist bréf frá lögfræðingi SSS hinn 13. febrúar sl. þar sem kynnt var að Vegagerðin hefði veitt einkaleyfi á reglubundnum fólksflutningum á milli Suðurnesja og höfuðborgarsvæðisins. Í bréfinu hafi ekki komið fram krafa um að Allra- handa hætti akstri á leiðinni. Þórir segir þetta einkaleyfi á almennings- samgöngum ekki standast reglugerð nr. 128/2011 um gildistöku reglugerð- ar Evrópusambandsins nr. 1370/2007, um almenna farþegaflutninga á járn- brautum og vegum. Þess vegna haldi Allrahanda áfram akstri til og frá flugvellinum auk þess sem fyrirtækið stundi ekki reglubundar áætlunar- ferðir, þeirra áætlun taki aðeins mið af lendingartíma flugvéla. „Við bjóðum upp á ákveðna þjón- ustu fyrir ferðamenn, t.d. ferðir í tengslum við allt áætlunarflug þegar vélarnar lenda á mismunandi tíma. Í samgönguáætlun er talað um að tryggja almenningssamgöngur milli þéttbýlissvæða og innan þéttbýlis. Þetta er flugstöð, ekki þéttbýlissvæði. Þessi akstur er frjáls alls staðar ann- ars staðar á Norðurlöndum, hér er þetta bara valdníðsla og mjög sér- stakt að setja lög til að koma í veg fyr- ir samkeppni,“ segir Þórir. Það kemur honum verulega á óvart að SSS skuli hafa samþykkt að óska eftir lögbanni á þjónustu Allrahanda við ferðamenn. „Ég tel það vanhugs- aða aðgerð ef af verður. Það er okkar skoðun að menn eigi að setjast niður, finna sameiginlega hagsmuni og vinna út frá þeim. Það getur ekki ver- ið raunverulegur vilji að fara með svona mál fyrir dómstóla þar sem ég myndi telja að niðurstaðan yrði að SSS yrði gert skylt að endurgreiða frá upphafi styrkinn frá Vegagerðinni þar sem hann uppfyllir ekki reglur Evrópusambandsins. Vísa ég þar sér- staklega til gjaldþrots ríkisflugfélags Ungverjalands eftir að framkvæmda- stjórn Evrópusambandsins krafði fé- lagið um endurgreiðslu ríkisstyrkja sem ekki uppfylltu reglur sambands- ins.“ Á ekki að skaða ferðaþjónustuna Allrahanda hóf fólksflutning á milli Reykjavíkur og Flugstöðvar Leifs Ei- ríkssonar í mars í fyrra. Þórir segir þessar ferðir fela í sér viðbótarþjón- ustu sem er samningsbundin við fjölda ferðaþjónustuaðila, t.d. séu þau með svokallaða Heim að dyrum-þjón- ustu. Í umræðu á Alþingi um breyt- ingu á lögunum kom skýrt fram að þau ættu ekki að skaða hagsmuni ferðaþjónustunnar. „Við teljum ekki að sú þjónusta sem fyrirtækið sinnir á leiðinni milli flugstöðvarinnar og höfuðborgar- svæðisins falli undir það einkaleyfi sem SSS hefur fengið frá Vegagerð- inni. Sérstaklega þar sem ferðir okk- ar geta ekki talist reglubundnar áætl- unarferðir eins og kveðið er á um í almenningssamgöngum í einkaleyfi,“ segir Þórir. SSS ætlar að óska eftir lög- banni á akstur Allrahanda Morgunblaðið/ÞÖK Keflavíkurflugvöllur Iceland Excursion Allrahanda keyrir flugfarþega á milli Reykjavíkur og Leifsstöðvar.  Sveitarfélögin segjast vera með einkaleyfi á að flytja flugfarþega frá Leifsstöð Samkvæmt 7. gr. laga nr. 73/2001, sbr. 3. gr. laga nr. 162/2011, getur Vegagerðin veitt sveitarfélögum, byggðasamlögum og landshluta- samtökum sveitarfélaga einkaleyfi til að skipuleggja og sjá um al- menningssamgöngur með bifreið- um á tilteknu svæði og á tilteknum leiðum. Á grundvelli heimildar 1. mgr. 7. gr. laganna hefur Vegagerð- in gert samninga um almennings- samgöngur við ýmis landshluta- samtök sveitarfélaga. Samningarnir fela í sér veitingu einkaleyfis en skv. 2. mgr. 7. gr. er öðrum en einkaleyfishafa óheimilt nema með samþykki einkaleyf- ishafa að stunda reglubundna fólksflutninga á svæðum og leið- um þar sem einkaleyfi til reglu- bundinna fólksflutninga hefur ver- ið veitt. Vegagerðin veitir einkaleyfi LÖGIN UM FÓLKS- OG FARMFLUTNINGA Ólafur Þorsteinn Jóns- son óperusöngvari lést eftir stutt veikindi í Þýskalandi 13. mars sl., 76 ára að aldri. Hann hóf söngnám 17 ára gamall og út- skrifaðist frá Leiklist- arskóla Þjóðleikhúss- ins 1956. Um tveggja ára skeið starfaði Ólaf- ur sem leikari við Þjóðleikhúsið áður en hann hélt árið 1958 til söngnáms í Salzburg og Vínarborg. Hafði hann þá verið í söng- tímum hjá Sigurði Skagfield, Sig- urði Demetz og fleirum. Haustið 1963 var hann ráðinn að óperunni í Heidelberg og síðan í Hamborg, Lübeck, Mainz og Luzern og söng einnig mjög víða gestaleiki. Ólafur lauk starfs- ævinni við leikhúsið í Eggenfelden í Suður- Þýskalandi. Íslensk sönglög voru honum mjög hug- leikin og liggja eftir hann fjölmargar upp- tökur hjá Ríkisútvarp- inu. Þá tók hann þátt í tveimur óperuupp- færslum hér á landi. Eftirlifandi eiginkona Ólafs Þor- steins er Jóhanna Sigursveins- dóttir. Andlát Ólafur Þorsteinn Jónsson óperusöngvari Nýjar öryggismyndavélar, sem stefnt er að að verði komnar upp í byrjun sumars í miðbæ Reykjavík- ur, verða 16 talsins og staðsetning þeirra hefur þegar verið ákveðin. Að sögn Stefáns Eiríkssonar, lög- reglustjóra lögreglunnar á höfuð- borgarsvæðinu, verða vélarnar í eigu Reykjavíkurborgar, sem mun bera kostnað af endurnýjun þeirra, Neyðarlínan mun sjá um gagna- flutning, þrif og uppsetningu en lögreglan annast eftirlit og móttöku og geymslu gagna. Viðræður standa enn milli aðila um endanlega tilhögun mála en þeir funduðu síðast á mánudag. Stefán segir að meðal þess sem enn eigi eftir að útfæra sé hvers konar myndavélar verði á hverjum stað. Þó sé stefnt að því að komast að niðurstöðu eins fljótt og kostur er. holmfridur@mbl.is Morgunblaðið/Golli Eftirlit Öryggi miðborgargesta verður aukið til muna á næstunni. 16 nýjar myndavélar í miðbæinn  Búið að ákveða staðsetningar Ríkissjóður og Seðlabanki Ís- lands end- urgreiða í mán- uðinum 116 milljarða króna af lánum frá Al- þjóðagjaldeyr- issjóðnum (AGS) og Norðurlönd- unum. Um er að ræða fyrirframgreiðslu á 289 millj- ónum SDR, jafnvirði um 55,6 millj- arða króna til AGS og 366 millj- ónum evra, jafnvirði um 60,5 milljarða kr., til Norðurlandanna. Fjárhæðin sem endurgreidd er nemur rösklega 20% þeirra lána sem tekin voru hjá AGS og Norð- urlöndunum í tengslum við efna- hagsáætlun stjórnvalda og AGS. Í fréttatilkynningu frá Seðlabank- anum segir að aðgerðin í gær miði að því að greiða niður lán til skemmri tíma og draga þannig úr kostnaði við gjaldeyrisforðahald. Ákvörðun um endurgreiðslu var tekin með hliðsjón af tiltölulega rúmri lausafjárstöðu ríkissjóðs og Seðlabankans í erlendri mynt næstu misseri. Endurgreiðslan nær til gjalddaga 2013 í tilfelli AGS-lána. Greiðslur til Norðurlandanna eru vegna gjald- daga 2014, 2015 og að hluta árið 2016. Lán AGS og Norðurlandanna námu í upphafi um 3,4 milljörðum evra eða sem svarar um 564 millj- örðum króna miðað við núverandi gengi. Endurgreiðslan hefur ekki áhrif á hreinar skuldir ríkissjóðs. Greiða 116 millj- arða af lánum  Nóg var til af lausafé í ríkissjóði Þórir Garðarson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.