Morgunblaðið - 16.03.2012, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MARS 2012
Bæjarlind 16 Kópavogur S: 553 7100 www.linan.is Opið mán - fös 12 - 18 lau 11 - 16
TIMEOUT
Íslensk hönnun í fermingarpakkann
Flottir kjólar
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is Ríta tískuverslun
kvarterma og ermalausir
2 litir
Laugavegi 82,á horni Barónsstígs,
sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Yndisleg
alsilki nærföt
Ný sending
Nýtt kortatímabil
Laugavegi 63 • S: 551 4422
VORFRAKKARNIR
KOMNIR
Ljósmynd/Börkur Kjartansson
Uppsjávarafli Aðalsteinn Jónsson SU á leið á loðnumiðin fyrr í vetur en
skipið hefur verið drjúgt í makrílveiðum austur af landinu á síðustu árum.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Noregur og Evrópusambandið hafa
gert með sé tvíhliða samning um
makrílveiðar á þessu ári. Í hlut Norð-
manna koma 18l.085 tonn af makríl í
ár og 396.485 tonn í hlut Evrópusam-
bandsins. Þetta gerir rúmlega 90% af
ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins,
ICES, um veiðar úr stofninum og er
þá miðað við efri mörk ráðgjafarinn-
ar eða 639 þúsund tonn.
Færeyingar hafa gefið út einhliða
makrílkvóta fyrir árið 2012 og er
þetta þriðja árið sem þarlend stjórn-
völd grípa til þess ráðs. Kvóti Fær-
eyinga í ár verður 148.375 tonn.
Íslendingar hafa sömuleiðis til-
kynnt um kvóta þessa árs og verður
hann 145 þúsund tonn. Sumrin 2008,
2009 og 2010 var aflinn um 112, 116
og 122 þúsund tonn. Í fyrra veiddust
alls um 155 þúsund tonn, að meðtöld-
um um 8 þúsund tonnum sem flutt
voru frá árinu á undan. Á síðasta ári
var makríllinn sú fisktegund sem
skilaði Íslendingum næstmestu út-
flutningsverðmæti, aðeins þorskur-
inn skilaði meiru.
Gjörbreytt staða
Strandríkin hafa ekki náð sam-
komulagi um skiptingu makrílkvót-
ans. Íslendingar hafa hvatt til þess að
dregið verði úr heildarveiði og að
veitt verði samkvæmt vísindaráðgjöf.
Á undanförnum árum hefur verið
miðað við að hlutur Íslands í heildar-
veiðinni sé á bilinu 16-17%.
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri LÍÚ, segir að ákvarð-
anir ESB og Norðmanna um að taka
sér yfir 90% af ráðlögðum afla síð-
ustu ár og ætla Íslandi, Færeyjum og
Rússum innan við 10% hafi óhjá-
kvæmilega leitt til að veiðin hefur
verið langt umfram ráðgjöfina.
„Sama verður uppi á teningnum í
ár. Ísland leggur mikið upp úr því að
samningar náist um skiptingu mak-
rílstofnsins og að hann verði nýttur á
sjálfbæran hátt. Í því skyni hefur Ís-
land lagt til að veitt verði samkvæmt
ráðgjöf ICES en jafnframt að skipt-
ing aflans verði sanngjörn. Í því sam-
bandi verður að taka tillit til gjör-
breyttrar stöðu frá fyrri árum þar
sem makríllinn gengur í miklum
mæli í íslensku lögsöguna,“ segir
Friðrik.
Taka yfir 90%
makrílráðgjafar
ESB og Noregur ákveða kvóta ársins
Samningur við fyrirtækið Stolt Sea
Farm Holdings, sem hyggst reisa
fiskeldisstöð við Reykjanesvirkjun,
var í gær samþykktur í bæjarráði
Reykjanesbæjar. Framkvæmdir
gætu hafist á næstu dögum eða vik-
um en samkvæmt samningi við HS
Orku á fyrsti áfangi að vera tilbúinn
í ágúst.
Um er að ræða eldi á senegalflúru
(Solea senegalensis) í strandstöð við
Reykjanesvirkjun HS Orku. Nýta á
frárennslisvatn Reykjanesvirkjunar
og sjó úr borholum til að tryggja
kjörhita fisksins, 19-22 stig, allt árið.
Talið er að samningurinn feli í sér
tugi nýrra starfa á Suðurnesjum,
fyrst við framkvæmdir og uppbygg-
ingu en síðar við rekstur eldisins.
Samningar náðust við HS Orku í
ágúst síðastliðnum en verkefnið mun
vera flókið tæknilega.
Í fyrstu er gert ráð fyrir fram-
leiðslu á um 500 tonnum á ári en hún
verði komin upp í tvö þúsund tonn
frá og með 2017.
Ætla að ala senegalflúru
Nota frárennslisvatn frá Reykjanesvirkjun og sjó
Nýting Eldisstöðin verður í
grennd við Reykjanesvirkjun.