Morgunblaðið - 16.03.2012, Qupperneq 12
Morgunblaðið/RAX
Jarðvegslosun Efnistaka hefur lengi verið stunduð í Bolaöldum og þar verða sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu með sameiginlegan jarðvegstipp.
SVIÐSLJÓS
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Hólmsheiði hefur verið losunar-
staður Reykjavíkurborgar fyrir jarð-
veg frá 2001 en frá og með nk. mánu-
degi, 19. mars, verða sveitarfélögin á
höfuðborgarsvæðinu með sameig-
inlegan rekstur á jarðvegstipp í Bola-
öldum, skammt frá Litlu kaffistof-
unni við Suðurlandsveg.
Reykjavíkurborg áætlar að mögu-
legur sparnaður borgarinnar vegna
breytingarinnar verði 15 til 50 millj-
ónir króna á ári.
Jón Halldór Jónasson, upplýsinga-
fulltrúi á framkvæmda- og eignasviði
Reykjavíkurborgar, segir að verk-
efnahópur á vegum Samtaka sveitar-
félaga, sem fjallaði um sameiginlega
sýn á framtíð flokkunar sorps og
sorphirðumála á höfuðborgarsvæð-
inu, hafi lagt til að stefnt yrði að sam-
eiginlegum rekstri sveitarfélaganna
og Bolaöldur hafi verið nefndar sem
möguleiki í því sambandi.
Frá opnun losunarsvæðisins á
Hólmsheiði í maí 2001 hefur eftirlits-
maður verið á svæðinu en nú leggst
starfið niður. Förgunarkostnaður
jarðefna hefur verið 500 kr. á rúm-
metra á Hólmsheiði en vegna sam-
legðaráhrifa er áætlað að þessi
kostnaður lækki í 100 til 150 kr. á
rúmmetra, að sögn Jóns Halldórs.
Aðrir kostir eru meðal annars
sagðir felast í því að losunarsvæðið
færist fjær byggð, verkefnið sé um-
hverfisvænt, ekki þurfi lengur að ýta
yfir óhreyft land í Hólmsheiði og
vandamál vegna ryks þaðan verða
ekki lengur fyrir hendi.
Í minnisblaði kemur fram að
helstu gallarnir við breytinguna séu
þeir að kostnaður við framkvæmdir
aukist þegar fyllingarefni sé ekki tek-
ið í Bolaöldum í bakaleiðinni, akst-
ursleiðin lengist til muna og til dæmis
um 22 km fram og til baka sé ekið úr
Reykjavík um Suðurlandsveg. Síðast
en ekki síst sé jarðvegslosun í Bola-
öldum óhagkvæmari fyrir smæstu
framkvæmdir.
Bolaöldur taka við af Hólmsheiði
Reykjavíkurborg áætlar að mögulegur sparnaður borgarinnar vegna breytingarinnar verði 15 til
50 milljónir króna á ári Akstursleiðin lengist til muna eða um 22 til 33 km úr Reykjavík
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MARS 2012
„Mönnum líst illa á þessar breyt-
ingar og verðið hjá húsbyggjendum
á eftir að hækka mikið,“ segir
Garðar Þorbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri hjá verktakafyr-
irtækinu Urð og grjóti.
Helsta nýbyggingarsvæði
Reykjavíkur er í Úlfarsárdal og við
Reynisvatnsás. Með því að fara það-
an um ókláraðan Reynisvatnsveg er
hringurinn um 7 km á losunar-
svæðið á Hólmsheiði og til baka en
hann lengist um 28 km og enn
meira sé malbikaði vegurinn far-
inn. Algengt verð fyrir flutning á
jarðvegi er 330 kr. auk 25,5% virð-
isaukaskatts. Um 1.000 rúmmetrar
af jarðvegi koma gjarnan úr ein-
býlishúsagrunni. Malarflutningabíll
tekur um 15 rúmmetra í hverri ferð
og fer því 66 ferðir. Aukaflutnings-
kostnaður vegna hverrar ferðar um
Hólmsheiði í Bolaöldur er um
500.000 kr.
Garðar segir að breytingin komi
illa við alla – húsbyggendur, verk-
taka og ekki síst borgina. „Öll verk
fyrir borgina verða kláralega miklu
dýrari,“ segir hann og vísar til þess
að bara kostnaður vegna upp-
graftar aukist um 30-40%. Einnig
aukist aksturstíminn til muna.
Líst illa á breytingarnar og
segir að allt hækki í verði
Kostnaður hús-
byggjenda og borg-
arinnar eykst mikið
Morgunblaðið/RAX
Reynisvatnsvegur Jafna á yfirborð og leggja mulning í sumar.
Aukinn akstur flutningabíla á Suð-
urlandsvegi með þverunum við
Bolaöldur eykur eldsneytisnotkun
þeirra, slit á bílum og dekkjum auk
þess sem slit á vegum og mengun á
svæðinu eykst í hlutfalli við aukna
umferð.
Framkvæmdir á höfuðborg-
arsvæðinu hafa að mestu legið niðri
frá bankahruni haustið 2008 en það
ár voru 150.000 rúmmetrar af jarð-
vegi losaðir í Hólmsheiði, 80.000
2009, 50.000 ári síðar og 60.000 í
fyrra. Ekki fengust upplýsingar um
fyrri ár en einn viðmælandi taldi að
losunin hafi að minnsta kosti numið
milljón rúmmetrum þegar mest var
á einu ári.
Bolaöldur eru við mörk fjar-
svæðis vatnsverndar höfuðborg-
arsvæðisins. Í áliti Skipulagsstofn-
unar um mat á umhverfisáhrifum
vegna efnistöku í Bolaöldum kemur
m.a. fram að stór mengunaróhöpp
þar geti haft áhrif á gæði grunn-
vatns innan vatnsverndarsvæðisins.
Aukin
mengun og
slysahætta
Morgunblaðið/RAX
Losun Um 1.000 rúmmetrar af jarðvegi koma úr húsagrunni að jafnaði.