Morgunblaðið - 16.03.2012, Blaðsíða 27
UMRÆÐAN 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MARS 2012
Loksins, loksins
tókst Jóni og Gunnu
að ná hreinum meiri-
hluta í sveitarstjórn
Eyjabyggðar. Þau
höfðu setið í 30 ár í
sveitarstjórninni –
valdalítil og í stöð-
ugum deilum við
flokksmenn sína sem
og við aðra flokka. En
nú var komið að því
að Jón og Gunna gátu myndað
fyrsta „hreina“ vinstri meirihlutann
í sveitarfélaginu saman. Þau eru
reyndar ósammála um allt en eitt
sameinaði þau og það var að halda
vondu borgaralegu öflunum frá
völdum og tilgangurinn helgaði
meðalið.
Eyjabyggð er gott sveitarfélag –
skuldsett en öflugt. Íbúarnir vinna
flestir hörðum höndum við fram-
leiðslu og þjónustu, borga sína
skatta og skyldur. Jón og Gunna
sáu að það hrópandi óréttlæti sem
ætti sér stað í sveitarfélaginu
skyldi laga. Það gengi ekki að
þegnarnir hefðu of háar ráðstöf-
unartekjur, fyrirtækin væru rekin
með hagnaði og fjárfestu í áfram-
haldandi uppbyggingu í sveitarfé-
laginu og sköpuðu störf. Margir í
flokki Jóns voru algerlega á móti
því að bændurnir í sveit Eyja-
byggðar gætu reist rafstöðvar við
bæjarlækina og selt fyrirtækjunum
rafmagn. Það væri óréttlátt því all-
ir íbúarnir ættu siðferðilegan rétt á
arðinum af rafstöðinni. Bændurnir
héldu því að sér höndum.
Nú skyldi innleidd stefna jöfn-
uðar, gegnsæis og vel-
ferðar. Til að ná fram
markmiðum sínum
hækkuðu Jón og
Gunna útsvarið marg-
falt, hækkuðu skóla-
gjöld, hafnargjöld,
fasteignaskatta, rusla-
gjöld, matinn í grunn-
skóla bæjarins – yf-
irleitt öll þau gjöld
sem hægt var að
hækka í sveitarfé-
laginu. Einnig voru
búin til ný gjöld og
álögur á íbúana til að standa undir
vegferð þeirra skötuhjúa og fylg-
ismanna þeirra. Forgangsmál
Gunnu var að koma Eyjabyggð inn
í Samband stórra sveitarfélaga þar
sem allt var í rjúkandi rúst og
hafði ekki áður komið til álita hjá
íbúum Eyjabyggðar að jafnvel
hugsa þann möguleika, enda meiri-
hluti íbúanna á móti sameiningu.
Jón sem hlaut meðal annars ágætis
kosningu fyrir að vera á móti Sam-
bandinu fórnaði hugsjón sinni fyrir
stól forseta bæjarstjórnar. Til að
standa undir kostnaði við aðlög-
unarferlið að Sambandinu var
fækkað um tvo kennara í skólanum
og fæðisgjaldið í skólunum enn
hækkað.
Eftir því sem liðið hefur á kjör-
tímabilið hefur vegferð þeirra Jóns
og Gunnu reynst bera feigðina í
sér. Sýslumaður hefur ítrekað þurft
að úrskurða um ólögmæti fram-
kvæmda þeirra eins og með að
banna virkjanir bændanna, ætla að
breyta reglum sveitarfélagsins,
hafa brotið jafnréttislög bæjarins
og fleira og fleira. Fyrirtækin fjár-
festa ekki en draga saman seglin
og bíða af sér óværuna. Atvinnu-
leysið eykst. Engar fjárfestingar
hafa verið hjá Hraðfrystihúsi Eyja-
byggðar og trillukörlunum á staðn-
um þar sem Jón og Gunna eru búin
að vera í stöðugum deilum við út-
gerðina og hafa meira að segja
reynt að telja íbúunum trú um það
að eigendur og starfsmenn Hrað-
frystihússins og trillukarlarnir séu
hinir verstu menn sem ekkert gott
láti af sér leiða til atvinnuuppbygg-
ingar eða framlags í sveitarsjóð.
Þeir séu afætur á sveitarfélaginu.
Íbúarnir ná ekki endum saman
sökum þess að stöðugt hærra hlut-
fall ráðstöfunarteknanna er tekið í
útsvar. Þau reka nú heimili sín á
uppsöfnuðum sparnaði frá árunum
áður og skuldastöfnun. En þetta er
allt saman réttlætanlegur fórn-
arkostnaður Jóns og Gunnu í hinni
heilögu vegferð til jöfnuðar
gagnsæis og réttlætis.
Réttlætiskennd þeirra skötuhjúa
eru engin takmörk sett og í nafni
réttlætis ákváðu þau að rétta yfir
fyrrverandi bæjarstjóra Eyja-
byggðar og ná þannig fram póli-
tískri hefnd á honum. Mikið er lagt
undir og kostnaður við málsóknina
mikill og því verður að loka einni
deild á leikskólanum og hækka
leikskólagjöldin um leið. Margar
barnafjölskyldur sjá sér þann einn
kost að yfirgefa æskustöðvarnar og
flytja til nágrannasveitarfélagsins
Norðurbyggðar.
Jón og Gunna upplifa hlutina
reyndar ekki á þennan hátt ólíkt
öðrum íbúum Eyjabyggðar. Jón
hefur fyllst oflæti og ferðast um
heiminn og lýsir sér sem bjarg-
vætti sem líkja mætti við þann sem
fæddist fyrir 2012 árum en Gunna
er horfin inn í skel og starir í loga
af kertaljósi sem hún og aðstoð-
armaður hennar Annar Valur
kveiktu í ráðhúsinu við valdatök-
una.
Framangreind saga er ekki eitt
af Grimmsævintýrunum. Sagan er
lýsing á stærstu ný-félagshyggjutil-
raun sem nú er gerð á Vest-
urlöndum. Hvað skyldu íbúarnir í
Eyjabyggð gera þegar næst verður
kosið?
Ný-félagshyggjutilraun Jóns og Gunnu
Eftir Jens Garðar
Helgason » Framangreind saga
er ekki eitt af
Grimmsævintýrunum.
Sagan er lýsing á
stærstu ný-félags-
hyggjutilraun sem nú er
gerð á Vesturlöndum.
Jens Garðar Helgason
Höfundur býr í Fjarðabyggð, er í
framboði til 2. varaformanns Sjálf-
stæðisflokksins.
Nú liggur fyrir að flokksráðið
kjósi í nýtt embætti 2. varafor-
manns. Hlutverk hans verður
margþætt en meginstefið er að
opna fyrir rödd hins almenna sjálf-
stæðismanns í forystunni.
Í mínum huga er það kristaltært
að í þetta embætti skuli veljast ein-
staklingur utan hins hefðbundna
valdakjarna kjörinna flokksmanna.
Nú hefur Geir Jón Þórisson gefið
kost á sér í þetta mikilvæga fram-
tíðarembætti flokksins. Þetta emb-
ætti mun vaxa og þróast með þeim
einstaklingi sem fyrstur verður
kosinn í það. Hann vinnur mik-
ilvægt brautryðjandastarf og það
er mjög mikilvægt að þarna komi
einstaklingur sem ekki einungis
nýtur trausts
flokksmanna
heldur meg-
inþorra lands-
manna.
Sjálfstæð-
isflokkurinn hef-
ur stigið mik-
ilvægt skref inn í
framtíðina með
nýjum vinnu-
brögðum, nú
gengur hann til fulls með kosningu
Geirs Jóns Þórissonar til 2. vara-
formanns.
Meira: mbl.is/greinar
Úr grasrótinni fyrir grasrótina
Jón Kristinn Snæhólm
alþjóðastjórnmálafræðingur.
Varaformannskjör
Jón Kristinn
Snæhólm
Morgunblaðið birtir greinar, sem skrifaðar eru til stuðnings við frambjóðendur í
nýtt embætti varaformanns, á vefnum. Úrdráttur úr greinunum birtist í blaðinu.
BJÓÐUM NOKKRAR GERÐI
R AF
FERMINGARBORÐUM.
Fjölbreyttir réttir smáréttabo
rðanna okkar
henta bæði í hádegis- og kv
öldveislur. Steikar-
hlaðborðin eru alltaf vinsæl,
sérstaklega ef um
kvöldveislu er að ræða. Bjóð
um upp á tvær
gerðir kaffihlaðborða, en ein
nig er í boði að
panta einstaka hluta úr þeim
. t.d Kaffisnittur,
fermingartertur. Pinnahlaðb
orð eru þægileg
og slá hvenær sem er í gegn
.
Okkar margrómuðu marsípan
fermingartertur henta
með öllum veitingum, en þær
fást áritaðar með nafni og
fermingardegi.
Hólshraun 3 · 220 Hafnarjörður · Símar: 555-1810, 565-1810
Fax: 565-2367 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
æðisleg
veislan
verður
Fermingar
-Góð fermingar-
veisla lifir lengi
Tapas Kalt borð Pinnamatur
www.veislulist.is
37 ára reynsla að baki sem nýtist í að ger
a veisluna æðislega
þú finnur allt um fermingarveisluna á
SÚPA BRAUÐ OG SMÁRÉTT
IR
Hádegisveisla á milli kl 12 -
14
Verð frá kr. 2.070
AFHENDING Á VEISLUM Í H
EIMAHÚS EÐA AÐRA SALI:
MATARVEISLUR KOMA TILB
ÚNAR Á VEISLUBORÐIÐ.
Í STÆRRI VEISLUM FYLGJA
MATREISLUMENN FRÁ OKK
UR OG SJÁ
UM MATINN. KÖKUHLAÐB
ORÐ KOMA TILBÚIN Á VEIS
LUBORÐ NEMA
KAFFISNITTUR SEM AFGRE
IDDAR ERU Í ÖSKJUM.
TAPASVEISLA 9 RÉTTIR
Síðdegisveisla 16 -19
Verð frá kr. 2.990
TERTU OG TAPASBORÐ.
Miðdegisveisla 13 - 15
Verð frá kr. 2.896
STEIKARBORÐ
Kvöldveisla 17 - 20
Verð frá kr. 3.031
FERMINGARKAFFIHLAÐBO
RÐ
Miðegisveisla 14 - 17
Verð frá kr. 1.966
LÉTTIR FORRÉTTIR OG
STEIKARBORÐ
Verð frá kr. 3.420
PINNAMATUR
Miðdegisveisla 14-17
Verð frá kr. 2.340
KALT HLAÐBORÐ
FISKRÉTTIR
Verð frá kr. 4.398