Morgunblaðið - 16.03.2012, Page 40
40 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MARS 2012
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
SMUR-OGSMÁVIÐGERÐIR
BREMSUSKIPTI
Á 1.000 KRÓNUR!
FRAM AÐ PÁSKUM SKIPTUM VIÐ UM BREMSUKLOSSA AÐ
FRAMAN FYRIR AÐEINS ÞÚSUND KRÓNUR. TILBOÐIÐ ER
Á VINNU EF ÞÚ KAUPIR BREMSUHLUTI HJÁ OKKUR.
DUGGUVOGI RVK AUSTURVEGI SELFOSS
PITSTOP.IS WWW
HELLUHRAUNI HFJRAUÐHELLU HFJ
568 2020 SÍMI
Engar
tímapantanir
Ásdís Rósa Ásgeirsdóttir, útvarpskona og meistaranemi í lög-fræði, er 39 ára gömul í dag. Hún segist vera svo mikið af-mælisbarn að henni dugi ekkert minna en þrír dagar til þess
að halda upp á það.
„Það er svo gaman að eiga afmæli þannig að mér finnst eitthvað
svo asnalegt að halda bara upp á það einn dag. Ég svona teygi þetta
einn dag fyrir og einn til tvo eftir það. Það er engin afsökun fyrir
fólk að segjast ekki komast í afmælið mitt. Það hlýtur að geta kom-
ist á þessu þriggja til fjögurra daga tímabili að hitta mig. Sú afsökun
er ekki tekin gild!“ segir hún og hlær.
Það stendur enda mikið til hjá Ásdísi Rósu á fyrsta degi afmæl-
ismaraþonsins. Ætlar hún að taka daginn snemma og skella sér í spa
með vinkonum sínum og svo í „happy hour“ og út á borða. Á laug-
ardagskvöld verður svo afmælispartí sem endar á síðasta Nasaballi
Páls Óskars áður en staðurinn verður rifinn. Páll Óskar á einmitt
einnig afmæli í dag en hann verður 42 ára.
„Við höfum í mjög mörg ár haldið upp afmælið okkar saman;
hann spilar og ég dansa. Þetta hefur verið ákveðið samvinnuverk-
efni,“ segir Ásdís Rósa kímin. Á sunnudeginum, síðasta degi afmæl-
isins, segist hún svo ætla að leyfa fólki að koma sér á óvart fyrri
hluta dags áður en hún fer í bíó með vinkonunum um kvöldið. „Þetta
er mjög stíft prógramm,“ segir hún full tilhlökkunar. kjartan@mbl.is
Ásdís Rósa Ásgeirsdóttir er 39 ára í dag
Síung Ásdís Rósa segist ekki kannast ekki að eiga 39 ára afmæli nú
heldur sé hún að verða 29 ára í tíunda sinn.
Heldur upp á af-
mælið í þrjá daga
A
rnfinnur fæddist í
Reykjavík og ólst þar
upp, auk þess sem hann
var á Eskifirði, hluta úr
sumri, frá fæðingu og
fram að tólf ára aldri, hjá afa sínum
og ömmu.
Arnfinnur lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík 1962,
stundaði nám í viðskiptafræði við
Háskóla Íslands, 1962-64, sótti ýmis
námskeið við Kennaraháskóla Ís-
lands og námskeið í skólastjórnun í
Stavanger í Noregi. Hann fór auk
þess náms- og kynnisferðir til Dan-
merkur, Noregs, Bandaríkjanna og
Þýskalands.
Skólastjóri Vinnuskólans
Arnfinnur var kennari við Austur-
bæjarskólann í Reykjavík 1965-73,
kennari við Ármúlaskóla í Reykjavík
1971-73, yfirkennari við Ármúlaskóla
í Reykjavík 1973-79, skólastjóri í for-
Arnfinnur U. Jónsson 70 ára
Morgunblaðið/Ómar
Arnfinnur og Austurbæjarskólinn. Í þessum skóla var Arnfinnur nemandi, síðar kennari og er nú fyrsti formaður
Hollvinafélags skólans. Auk þess var nafni hans og frændi skólastjóri Austurbæjarskólans.
Ávallt skáti og sjálf-
boðaliði af lífi og sál
Morgunblaðið/Ómar
Skógrækt Arnfinnur var skólastjóri Vinnuskóla Reykjavíkur í tæpa tvo
áratugi. Á þeim tíma hafði hann yfirumsjón með skógrækt þúsunda reyk-
vískra ungmenna sem síðan hefur breytt heildarmynd borgarinnar.
Valgerður Jónsdóttir hefur lokið fyrst Íslendinga, dokt-
orsprófi í músíkþerapíu frá Álaborgarháskóla í Danmörku.
Ritgerð hennar nefnist „Music-caring within the framework
of early intervention. The lived experience of a group of mot-
hers of young children with special needs, participating in a
music therapy group“.
Viðfangsefni rannsóknarinnar var m.a. byggt á 20 ára
starfsreynslu Valgerðar sem músíkþerapisti og tónlistarsér-
kennari. Hún hefur starfað með einstaklingum á öllum aldri
sem glímt hafa við ólíkar fatlanir og sjúkdóma. Niðurstöður
rannsóknarinnar styðja þá hugmynd að viðfangsefni tónrænnar umönnunar efli
samhygð, geri þátttakendur meðvitaðri um eigin líðan og tilfinningar og auðveldi
og dýpki tjáningu þeirra með því að veita þeim útrás á tónrænan hátt.
Valgerður lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1978, pí-
anókennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík 1980, B.Mus. í tónlistar-
kennslu og músíkþerapíu frá University of Kansas 1986 og meistaraprófi í
músíkþerapíu frá Tónlistarháskólanum í Ósló 2004. Foreldrar Valgerðar eru
Jón R. Einarsson og Erla Elíasdóttir. Börn Valgerðar eru Jón Emil Guðmunds-
son og Álfheiður Erla Guðmundsdóttir. Valgerður rekur Tónstofu Valgerðar,
sem er tónlistarskóli fyrir nemendur með sérþarfir.
Doktor í músíkþerapíu
Þorsteinn Örn Guðmundsson hefur verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri Ráðstefnuborgarinnar Reykjavíkur.
Þorsteinn Örn lauk mastersprófi (M.Sc.) í byggingarverk-
fræði frá Tækniháskólanum í Kaupmannahöfn (DTU) árið
1999 og hefur setið í stjórn eða verið formaður stjórnar í
fjölda fyrirtækja og þar á meðal á flug- og ferðamannamark-
aði bæði hérlendis og erlendis. Þorsteinn Örn hefur und-
anfarið starfað að ýmsum viðskiptaþróunar- og ráðgjaf-
artengdum verkefnum. Hann var forstjóri Northern Travel
Holding 2007-2008, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs FL
Group 2006-2007, forstjóri FL Travel Group 2005-2006 og framkvæmdastjóri
stefnumótunar og viðskiptaþróunar FL Group 2005.
Ráðstefnuborgin Reykjavík er nýstofnað fyrirtæki sem leggur grunn að sam-
starfsvettvangi um markaðssetningu á Reykjavík sem alþjóðlegri ráðstefnu- og
viðburðaborg.
Framkvæmdastjóri
Ráðstefnuborgarinnar Reykjavíkur