Morgunblaðið - 26.05.2012, Qupperneq 21
FRÉTTIR 21Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2012
Njóttu þess að
vera í sólinni!
Án parabena, ilmefna og litarefna.www.proderm.is
Ótrúlega góð sólvörn. Ég nota eingöngu Proderm og brenn ekki þó ég æfi
tímunum saman í vatni og sterkri sól. Húðin verður mjúk og fallega sólbrún.
Ragnheiður Ragnarsdóttir, sundkona
Proderm er sænsk sólarvarnaruppfinning, langvirkandi og verndar húð barna og fullorðinna
við erfiðustu aðstæður. Viðkvæm húð getur notið sólarinnar og náð fallegum sólbrúnum lit.
Engin fituáferð og auðvelt að bera á. Athuganir sýna að Proderm sem er í froðuformi er
helmingi drýgra en krem. Fyrir allar húðgerðir, börn og fullorðna.
www.bäst-i-test.se
BESTA
SÓLAR
VÖRNIN
2012
Ingvar P. Guðbjörnsson
ipg@mbl.is
Þeir Guðmundur Haukur Gunnars-
son og Jón Óttar Ólafsson, lögreglu-
mennirnir fyrrverandi sem sérstak-
ur saksóknari hefur kært fyrir brot á
þagnarskyldu í embætti, hófu störf
fyrir þrotabú Milestone í september
á síðasta ári. Þetta hefur Morgun-
blaðið eftir áreiðanlegum heimildum.
Í tölvupóstssamskiptum á milli
saksóknara hjá embætti sérstaks
saksóknara og skiptastjóra Mile-
stone má sjá að saksóknari vísaði
honum á Guðmund Hauk og Jón Ótt-
ar varðandi upplýsingaöflun. Í tölvu-
pósti kemur fram beiðni slitastjóra
um upplýsingar vegna vinnu við
þrotabúið, en embættið lagði hald á
bókhald þrotabús Milestone ehf. í
húsrannsókn og því hafði skipta-
stjóri ekki aðrar leiðir að því en þar.
Vildi meira en bókhaldsgögn
Skiptastjóri segir meðal annars í
tölvupósti frá 29. ágúst í fyrra til
Guðmundar Hauks: „Af fundi okkar
um daginn réð ég að þið eruð að
vinna í málum sem eru náskyld okk-
ar málum – og þær málsástæður sem
þið munuð væntanlega byggja á í
ákærum, ef kemur til útgáfu þeirra,
eru af sömu rót runnar og máls-
ástæður okkar í riftunarmálunum.
Af því leiðir að öll gögn sem þið búið
yfir nýtast í málarekstri þrotabús-
ins. Mig langar að varpa fram þeirri
fyrirspurn hvort við getum fengið
aðgang að þeim gögnum sem emb-
ættið hefur viðað að sér eða búið til
við rannsókn á málefnum Milestone
ehf. Þá á ég auðvitað ekki við bók-
hald Milestone, sem ég hef beinan
aðgang að, heldur önnur (mikilvæg-
ari) gögn sem eiga t.d. uppruna sinn
hjá öðrum lögaðilum en Milestone,
eða hafa einfaldlega orðið til hjá
embættinu við rannsókn þess.“
Guðmundur framsendir umrædd-
an póst hinn 5. september til sak-
sóknara hjá embættinu sem svo
svarar skiptastjóra 9. september.
Þar segist saksóknari verða að
leggja frekara mat á beiðnina og
hann þurfi að fá frá skiptastjóra
fyllri upplýsingar um hvaða mál
hann hafi áhuga á að leita frekari
gagna með. Hvort um sé að ræða
gögn úr lögreglurannsókn sem sé í
gangi, gögn um atriði sem falli þar
utan við eða gögn frá þriðja aðila.
„Hvort um sé að ræða lögreglu-
skýrslur, greiningarvinnu sem unnin
er hér innanhúss eða hvað yfir höfuð
þú ert að horfa til, með það fyrir aug-
um að geta metið frekar hvort okkur
sé heimilt að verða við beiðni þinni.“
Saksóknari tekur svo fram að skipta-
stjóra standi eftir sem áður til boða
atbeini af hálfu embættisins innan
þess ramma sem um ræðir. Hann
sendi Guðmundi Hauki afrit af þess-
um tölvupósti.
Næsta svar til saksóknara frá
skiptastjóra er 21. október þar sem
segir: „Við ræddum það um daginn
að ég myndi senda embættinu af-
markaða beiðni um þau gögn sem
þb. Milestone ehf. óskar eftir
að fá að skoða, og eftir at-
vikum nota í þeim mála-
rekstri sem búið stend-
ur í. Hjálögð er slík
beiðni. Ég vona að
embættið sjái sér fært
að aðstoða okkur við öflun þessara
gagna.“
Saksóknari svarar sama dag: „Við
munum leggjast yfir þetta fljótlega
og sjá hvaða gögnum við höfum yfir
að ráða sem gætu mætt beiðni þinni.
Vertu endilega í sambandi við Guð-
mund Hauk og Jón Óttar vegna
þessa.“ Saksóknari biður einnig um
svigrúm í tíma til að vinna gögnin, en
segir: „Láttu okkur endilega vita ef
þú ert í einhverju tímahraki varð-
andi einhver málanna þinna og þá
gögn.“
Rannsökuðu mál tengd Sjóvá
Samkvæmt heimildum sem Morg-
unblaðið hefur munu Jón Óttar og
Guðmundur Haukur hafa verið hluti
af svokölluðum „Sjóvárhópi“ hjá sér-
stökum saksóknara, en annar hópur
starfaði sem kenndur var við Mile-
stone. Það má þó leiða líkum að því
að einhver samvinna hafi verið á milli
hópanna, enda var Sjóvá eitt af
nokkrum dótturfélögum Milestone.
Eins og áður hefur komið fram er
óvíst hvaða áhrif meint brot mann-
anna kunna að hafa á mál sem emb-
ætti sérstaks saksóknara hefur til
skoðunar tengd Milestone eða þau
mál sem þrotabú félagsins er með í
gangi, meðal annars tíu riftunarmál
á viðskiptum Milestone fyrir hrun fé-
lagsins. Eins ákærur á hendur
tveimur fyrrverandi stjórnendum
Glitnis. Þá kom fram í fréttatilkynn-
ingu slitastjóra að hann væri að
skoða réttarstöðu búsins vegna
þessa máls.
Í vinnu fyrir slitastjóra allt haustið
Lögreglumennirnir tveir gerðu verksamning við slitastjóra Milestone í september Störfuðu sam-
hliða hjá sérstökum saksóknara Á þeim tíma lét saksóknari þá vinna gögn fyrir þrotabú Milestone
Morgunblaðið/Ernir
„Það er stigsmunur á milli þess
sem skiptastjóri Milestone þarf
að hafa aðgang að og hefur
heimild til þess að nálgast og
síðan annarra gagna sem hann
þarf vegna rannsóknarinnar.
Það opnast ekki aðgengi inn á
öll gögn við það að hann þarf að
komast inn á bókhaldið. En
rannsóknargögn eru náttúrlega
ekki bara bókhaldið,“ sagði
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur
saksóknari, aðspurður um að-
gang skiptastjóra Milestone að
gögnum hjá embættinu tengd-
um þrotabúinu.
Ólafur veitti ekki upplýsingar
um hvaða störf mennirnir inntu
af hendi hjá embættinu í fyrra-
haust. „Því miður gef ég
ekki upplýsingar um þau
verkefni sem þessir að-
ilar sinntu innan emb-
ættisins umfram það
sem komið er fram.
Rannsókn ríkissaksókn-
ara mun síðan leiða í
ljós atvik þessa máls
sem hér um ræðir,“
sagði Ólafur.
Munur á þörf
og heimild
SÉRSTAKUR SAKSÓKNARI
Ólafur Þór
Hauksson.