Morgunblaðið - 26.05.2012, Side 44
44 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2012
Tryggvi „Hringur“ Gunnlaugsson er 67 ára í dag. Hann segistekki ætla að gera neitt sérstakt á afmælisdeginum en stefniþó að því að fara á AA-fund í Héðinshúsinu eins og hann ger-
ir þrisvar í viku. „Það eina sem breytist er að ég fer af örorku yfir á
ellilífeyrisbætur,“ segir Tryggvi.
Tryggvi var útigangsmaður í 17 ár en hefur verið edrú frá árinu
2000. ,,Ég er 12 ára 17. júní eins það er kallað í AA-samtökunum. Ég
hætti þegar læknarnir pikkuðu í belginn á mér og sögðu mér að ég
væri með lifrarbólgu. Jæja, sagði ég. Er ég þá ekki með brjósklos?
Þeir neituðu því og sögðu að ég væri bara alkóhólisti. Í þann mund
reið yfir jarðskjálfti upp á 7 á Richter og ég ákvað að nóg væri kom-
ið,“ segir Tryggvi sem fór í kjölfarið í meðferð í Gunnarsholti þar
sem hann var í 4 ár. „Ég var búinn að drekka í 400 sólarhringa í röð.
Þeir sögðu að ég hefði drukkið um tonn af brennivíni.“
Hann fæddist í Vestmannaeyjum árið 1945. Hann flutti svo til afa
síns og ömmu þegar hann var 6 ára og bjó með þeim á Fáskrúðsfirði
fram á unglingsár. Hann vann á trillu og á togara sem stýrimaður
og vélstjóri í fyrstu en starfaði svo við járnsmíði í 10 ár. ,,Mér gekk
vel í skólanum. Ég var þriðji hæstur á miðsvetrarprófinu í unglinga-
skólanum á Reyðarfirði. Strákurinn sem var hærri en ég, Árni Jens-
son, er prófessor í háskólanum í dag. Þetta var á þeim tíma sem ég
var uppnefndur dúxinn að austan,“ segir Tryggvi og hlær við.
Tryggvi Gunnlaugsson er 67 ára í dag
Edrú Tryggvi „Hringur“ Gunnlaugsson á afmæli í dag og er 67 ára.
„Dúxinn að austan“
fer á AA-fund
arbakka, byggingar á Hvolsvelli og
byggingu Kjöríss í Hveragerði og í
Reykjavík.
Segja má að Sigfús hafi verið allt
í öllu í eigin rekstri um langt árabil.
S
igfús fæddist í Litlu-
Sandvík 27.5. 1932 en
flutti á fyrsta ári á Sel-
foss, þar sem hann hefur
átt heima síðan. Hann
byggði þar eigið hús, að Skólavöll-
um 3, árið 1955, en festi kaup á
húsi Einars heitins Pálssonar
bankastjóra árið 1971, og býr þar
enn. Það hús heitir Svalbarð og var
einmitt reist af föður Sigfúsar 1931.
Sigfús lauk landsprófi frá Hér-
aðsskólanum á Laugarvatni 1950,
lærði húsasmíði hjá föður sínum og
tók sveinspróf 1954 og öðlaðist síð-
an meistararéttindi.
Stórhýsasmiður Suðurlands
Sigfús hóf sjálfstæðan atvinnu-
rekstur við byggingastarfsemi á
Selfossi og nágrenni 1961. Heitir
fyrirtækið Byggingafélagið Árborg
ehf. frá 1997.
Sigfús hefur reist fjölda stórhýsa
sem hafa orðið áberandi í bæjar-
mynd Selfoss og víðar á Suður-
landi, s.s. Vöruhús KÁ, Sjúkrahús
Suðurlands, Íþróttahús á Laug-
arvatni, Fjölbrautaskóla Suður-
lands og Laugardælakirkju. Auk
þess má nefna Póst- og símahús á
Selfossi, í Hveragerði og á Flúðum,
lögreglustöðina á Selfossi, verk-
stæði Kaupfélags Árnesinga, fisk-
vinnsluhús í Þorlákshöfn og Eyr-
Sigfús Kristinsson byggingameistari á Selfossi 80 ára
Vanir menn Sigfús, (þriðji frá hægri) ásamt nokkrum starfsmönnum sínum 1972. Ekki urðu allir strákarnir húsa-
smiðir. Sá sem er lengst til hægri er Guðni Ágústsson, síðar alþm., ráðherra og formaður Framsóknarflokksins.
Smiðurinn á Selfossi
Fjölskyldan Sigfús og Sólveig, ásamt börnunum sínum, frá vinstri: Aldísi,
Guðjóni, Þórði, Kristni og Sigríði. Í bakgrunni er málverk Eiríks Smith af
Sigfúsi og málverk Örlygs Sigurðssonar af Kristni, föður Sigfúsar.
Reykjavík Brynhildur
Klara fæddist 27. mars
kl. 21.32. Hún vó 3.310
g og var 48 cm löng.
Foreldrar hennar eru El-
ín Rún Sizemore og
Valbjörn Júlíus Þor-
láksson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Hólmfríður Ósk Þór-
isdóttir í Egilsstaðaskóla
og Sunneva Rós Björns-
dóttir í Fellaskóla fengu
það verkefni eins og fleiri
nemendur skólanna í til-
efni af umhverfisfræðslu í
skólunum að safna tómum
rafhlöðum á heimilum sín-
um. Til þess höfðu þær
með sér lítil pappabox.
Þeim fannst þó að við
svo búið mætti ekki standa
og ákváðu að ganga í hús á
Egilsstöðum og safna tóm-
um rafhlöðum og árang-
urinn lét ekki á sér standa.
Þær söfnuðu rafhlöðum í
þrjá innkaupapoka sem
voru orðnir svo þungir að
þær gátu varla borið fenginn heim.
Á myndinn eru Hólmfríður Ósk og Sunneva Rós með rafhlöðurnar sem
þær söfnuðu. Á milli þeirra má sjá pappaboxið sem þær fengu til að safna í.
Söfnun
Söfnuðu tómum rafhlöðum
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
SUMARIÐ ER KOMIÐ - Í ALVÖRUNNI!
MAUI SÓLSTÓLL
Verð frá 12.500 kr.
FLAMINGO PÚÐI
3.500 KR.
DELI SKÁL
1.900 KR.
LIMONE-LÍNAN
tveir frísklegir litir
Kauptúni
Kringlunni
www.habitat.is