Helgafell - 01.12.1953, Síða 48

Helgafell - 01.12.1953, Síða 48
46 HELGAFELL tré við hann og afvopnar hann, en hyggst síÖan bæta fyrir ódrengskap sinn og heitir því að hitta ekki Grímu framar. Ekki vill þó Starkaður þiggja slíkt boS og býst til utanfarar. En er Erpur hefur rnisst LofnheiSi, lætur hann Vilmundi eftir arfleifS sína í Fellsey og snýr aftur til Skotlands, þar sem Fergus konungur hefur heitiS hon- um jarlstign. Þannig kemur þaS fram, sem lesandann grunaSi í byrjun, aS ástamál þeirra félaga hljóti aS enda með ósköpuim. Jafnvel trúðurinn og stórlygarinn Tanni Gellisson fer ekki varhluta af ástasorgunum, og gerist það með nokkuÖ kátlegum hætti, sem vonlegt er. Kappinn Darri Austr.aSur er sá eini þeirra félaga, sem tekst að forðast alla kvennaklæki, en hann hafði raunar brennt sig á þeim fyrr á árum heima í Noregi og er því var um sig. Er nú ísarr um kyrrt heima í Valla- nesi um veturinn og byrjar á kvæði sínu, Spásögn tíölvunnar, sem hann hefur lengi ætlað að yrkja. En hann er dapur og eirðarlaus og sækist semt verkið. Verður þá Ireina hin gríska, er komið hafði til landsins sem ambátt Tanna Gellissonar, til aS sefa hugar- víl hans á sinn kvenlega hátt. Tekst síðan með þeim góS vinátta, og segir hún honuim margt frá heimkynnum sínum, þar á meðal frá miklum fræð- ara, er hafist við í fjöllunum skammt frá Aþenu. Þykist Isarr vita, aS þar muni vera launhelgar Grikklands. Um voriS ákveður ísarr að fara til Mikla- garðs og býður íreinu í þakklætisskyni aS taka hana með sér og koma henni heim til sín. Darri og Tanni eru auÖ- vitað með í förinni. Er ferðalagið gegnum GarSaríki hiS ævintýralegasta, og í MiklagarSi kemur í ljós, að Tanni er ekki eins lyginn og flestir höfðu ætl- að. Er hann þar öllum hnútum kunn- ugur og raunverulega inn undir hjá ýmsum áhrifamönnum. Dvölin í Mikla- garði verSur Isarri mjög lærdómsrík, og þar heldur hann áfram aS yrkja Spásögn tíölunnar, allt fram að ragna- rökum. En þá skilur hann, að kvæð- inu verði hann að ljúka heima á Is- landi. AtburSir lífs hans muni skapa endi þess, og örlögin bíði hans við BreiðafjörÖ. Halda nú þeir félagar til Grikklands, og þar finnur Ireina skyldfólk sitt og vísar Isarri á helli fræðarans í fjöllun- um. Eru það launhelgar, eins og Isarr grunaði, og tekur hann þar aðra vígslu. SíSan sigla þeir áfram og alla leiS til Skotlands, en þar er nú Erpur orÖinn jarl og kvæntur Blanad konungsdótt- ur frá írlandi. Kemur nú í ljós, a3 frændi Fergusar konungs, Dagfer mac Roth, sem barizt hafði við hann um völdin og situr nú í fangelsi, er faðir Isarrs. HafSi ísarr raunar lengi grun- að að svo væri. Um haustið kem.ur kaupfar Erps jarls frá Islandi, og hefur skipstjórnar- maðurinn illar fréttir að færa. Segir hann, að StarkaSur Illugason sé heim koiminn úr siglingunni ásamt flokki óróaseggja og fari nú með yfirgangi um Dali. HafSi Vilmundur í Fellsey kvongazt Ulfrúnu systur hans moti vilja móður þeirra, meðan hann var i burtu, og fékk hann nú Vilmund dæmd- an sekan skóganm.ann. SíSan fór StarK- aður til Fellseyjar og drap þar feður Erps og Vilmundar báða, en Vilmund- ur og Ulfrún komust meS naumindum undan. Lét nú StarkaSur greipar sópa um bæ þeirra og brenndi hann siÖan, kom svo við í Vallanesi, þar sem sveinar hans hæddu og hröktu Kað-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Helgafell

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.