Helgafell - 01.12.1953, Side 78

Helgafell - 01.12.1953, Side 78
76 HELGAFELL hinn allra efnilegasti rr.eðal yngri tón- skálda íslenzkra, heldur er hann einn- ig að komast í röð hinna beztu píanó- leikara. Á þriðju tónleikunum var Es-dúr sinfónían eftir Mozart endurtekin frá fyrri tónleikum og auk þess leikin sin- fónía nr. 3. (Eroica) eftir Beethoven. Aðalviðfangsefni hljómsveitarinnar á þessum þremur tónleikum voru sinfón- íurnar eftir Brahms, Mozart og Beet- hoven. Á þær ber einkum að líta, þeg- ar meta skal afrek hljómsveitar og stjórnanda. Og ef til vill er það til marks um það þroskastig, sem hljóm- sveitin hefur náð undir handleiðslu Kiellands, að það þykir nú naumast í frásögur færandi, þótt hún leysi sitt hlutverk óaðfinnanlega af hendi, held- ur beinist athygli áheyrenda æ meir að skilningi og túlkun stjórnandans á ein- stökum viðfangsefnum. Hljómsveitin er með öðrum orðum orðin það hljóð- færi í hendi stjórnandans, sem henni ber aðvera. Hitt er svo eðlilegt, þegar mikilhæfur hljómsveitarstjóri á í hlut, að meiningarmunur geti verið ui.m með- ferð hans á einstökum tónverkum. Slíkur skoðanamunur hlýtur alltaf að verða, þegar um er að ræða sterkt mót- aða og persónulega túlkun listaverka. Þess vegna skiptast menn í flokka um snillinga eins og Toscanini og Furt- wángler. Olav Kielland er skáld fremur en byggingarmeistari, og meðferð hans á verkum rómantízku skáldanna, svo sem Tschaikowsky og Wagners, er hafin yfir alla gagnrýni. Túlkun hans á klassískum tónverkum hefur hins vegar af eðlilegum ástæðum vakið um- tal og jafnvel deilur, enda að ýmsu leyti mjög sérstæð og óvenjuleg. Sá Mozart og sá Beethoven, sem Kielland kynnir okkur, eru ekki hinir sömu og við höfum kynnzt hjá Sir Thomas Beechaim eða Bruno Walter, en and- ríki þeirra og hiti, tilþrif og viðkvæmni er ekki minni. Það hefur ekki farið dult, að Helga- fell hefur talið ráðningu Kiellands hingað eitt hið mesta happ, sem ís- lenzku tónlistarlífi hefur hlotnazt á síð- ari árum. Þetta kemur æ skýrar í ljós, eftir því sem hljómsveitin þroskast og þjálfast í höndum hans. Því að hann er ekki aðeins sá afburða , .tamninga- maður“, sem hingað til hefur borið mest á, heldur sérstæður, persónuleg- ur túlkandi, svo mikill í sniðum, að samanburður við hina frægustu hljóm- sveitarstjóra er óhjákvaemilegur. Þess vegna sitja rnenn nú á sinfóníutónleik- um og taka naumast eftir því, að leik- ur hljómsveitarinnar er óaðfinnanleg- ur, — gleyma meira að segja að hlusta eftir og hafa tölu á hugsanlegum feil- nótum. Kammertónleikar Ríkisútvarpsins sem haldnir voru í fyrsta skipti opin- berlega í Listasafni ríkisins í haust, hlutu góðar undirtektir tónlistarunn- enda, sem gerðu sér vonir um að fram- hald yrði á þeim. Síðan hafa tvennir kamjmertónleikar verið haldnir í ut' varpssal, og nokkrum áheyrendum gef- inn kostur á að sækja þá, en aðsókn mun hafa verið lítil. Á fyrri tónleikunum lék kvartett Björns Olafssonar strengjakvartett 1 F-dúr op. 96 (Negrakvartettinn) eftir Dvorak, og blásarar úr Sinfóníuhljom- sveitinni fluttu blásarakvintett eftir Carl Nielsen. Kvartett Björns Ólafs- sonar er í stöðugri framför og naut sin

x

Helgafell

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.