Helgafell - 01.12.1953, Side 85

Helgafell - 01.12.1953, Side 85
LISTIR 83 hendurnar á okkur hin einfalda skýr- ing hlutanna. Nærri þrjú ár eru lang- ur tírni á þróunarbraut hins leitandi listamanns. Þó eru þau sjálfsagt enn lengri gagnvart því hverfanda hveli, se.m við öll og þessi heimur okkar skoppar á í svipinn. Hefur sjón okkar kannske breytzt svona á þessum tíma, uða jafnvel hugarfarið sjálft ? Við höfum öll ríka tilhneigingu til að láta okkur finnast fátt um það nýja hverju sinni, en það vinnur samt á okkur flestum. Myndirnar, sem í dag verka kalt og hranalega, lifna kennske næsta ár viS hliðina á þess árs fram- leiðslu. Flestum listamönnum hefur reynzt wjög afdrifaríkt að taka stór stökk í list sinni, og það gæti verið ein skýr- ingin á því, aS þessi gáfaði og há- menntaði listamaður hefur ekki ennþá gefið þjóð sinni eins mikiS af heil- steyptum, óumdeilanlegum listaverk- um og efni virðast standa til. Hefur honum ef til vill láðst aS taka það með í reikninginn, hversu lífið er stutt en listin löng, og að sjaldan grær um oft hreyfðan stein ? En nú er Þ. S. væntanlega kominn þangað, sem hugurinn hefur alltaf leit- að. Hann stendur einmitt nú á hátindi lífsins og menn fylgjast með hinni sér- stæðu þróun listar hans, fullir trausts, og segja: Þitt er að yrkja, okkar að skilja.

x

Helgafell

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.