Morgunblaðið - 28.03.2013, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 28.03.2013, Blaðsíða 3
Að gefnu tilefni Álverið í Straumsvík hefur árum saman verið í hópi þeirra lögaðila sem greiða hæstan tekjuskatt á Íslandi. Fyrirtækið hefur greittmörg hundruð milljónir króna í tekjuskatt á hverju einasta ári í a.m.k. 15 ár. Er áreiðanlega vandfundið það einkafyrirtæki hér á landi sem greitt hefur hærri tekjuskatt á því tímabili. Tekjuskattur Rio Tinto Alcan á Íslandi hf. Rekstrarár 2007 2008 2009 2010 2011 Alls * Tekjuskattur, almennt tryggingagjald, atvinnutryggingagjald, iðnaðarmálagjald, Ábyrgðarsjóður launa, markaðsgjald. ATH. Orkuskattur (u.þ.b. 360 milljónir á ári), fasteignagjöld og ýmis önnur opinber gjöld eru ótalin hér. Opinber gjöld* 1.457.000.000 985.000.000 537.000.000 2.051.000.000 1.467.000.000 6.497.000.000 Þar af tekjuskattur 1.277.000.000 769.000.000 297.000.000 1.738.000.000 1.115.000.000 5.196.000.000 Rio Tinto Alcan Straumsvík Pósthólf 244 222 Hafnarfjörður Sími 560 7000 www.riotintoalcan.is Fram til ársins 2005 greiddi fyrirtækið 33% tekjuskatt samkvæmt upphaflegum fjárfestingarsamningi. Um tíma greiddi því fyrirtækið mun hærri tekjuskattsprósentu en nokkurt annað fyrirtæki hér á landi, enda var almenn skattprósenta fyrirtækja lækkuð í 18% árið 2002. Frá árinu 2005 hefur fyrirtækið fallið undir almennar skattareglur og nýtur engra sérkjara um tekjuskatt. Fyrirtækið greiddi langhæst opinber gjöld allra lögaðila í Reykjanessskattumdæmi vegna rekstraráranna 2007 og 2008, eða þrisvar til fjórum sinnum hærri gjöld en þeir sem næstir komu, sem voru sveitarfélög. Þá greiddi fyrirtækið hæst opinber gjöld allra lögaðila fyrir utan ríkið, Reykjavíkurborg og fjármálafyrirtæki vegna ársins 2010, og var einnigmeðal 10 hæstu gjaldenda vegna ársins 2011. Hér eru ótaldar ýmsar greiðslur til ríkis og sveitarfélaga, svo sem raforkuskattur sem nemur um það bil einni milljón króna á dag. Rio Tinto Alcan á Íslandi hf. hefur að nær öllu leyti fjármagnað sjálft þær 60 milljarða framkvæmdir sem staðið hafa yfir í Straumsvík undanfarin misseri og skuldar móðurfélagi sínu óverulega fjármuni. > > > > > >

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.