Morgunblaðið - 05.10.2013, Page 16

Morgunblaðið - 05.10.2013, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2013 VÍB styður Víking Heiðar Ólafsson til góðra verka. FAGMENNSKA SKILAR ÁRANGRI til starfsins á grundvelli mikillar þekkingar. Um 20 manns sitja í starfs- hópnum, sem er óháður stjórnvöld- um og hagsmunaaðilum. Þarna sitja m.a. hagfræðingar, fiskifræðingar, náttúrufræðingar, loftslagsfræð- ingar, forsvarsmenn stórfyrirtækja og baráttufólk fyrir umhverfisvernd svo dæmi séu tekin. Allt fólk sem nýtur alþjóðlegrar viðurkenningar og allur heimurinn er undir í starfinu. Á heimasíðu GPO segir að í blá- borðanefndinni séu óháðir og al- þjóðlega viðurkenndir sérfræðingar og leiðandi hugmyndasmiðir. Þeir hafi það verkefni að veita leiðsögn og ráðgjöf um stefnu og skipulag í starfsemi GPO. Kerry boðar til ráðstefnu Víst er að verkefnið er risavaxið, en Ragnar segir að starf þessarar bláborðanefndar sé langt komið. Þrír fundir hafa verið haldnir og nefndin er að leggja lokahönd á skýrslu sína og þau sjónarmið sem þar verða sett fram. Líklegt er að skýrslan verði kynnt á ráðstefnu um hafið sem John Kerry, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, boðar til í lok október. Ákvörðun um framhald verkefnis- ins verður síðan tekin á alþjóðlegri ráðstefnu um hafið sem haldin verð- ur sennilega í Hollandi á næsta ári. Fjársterkir aðilar koma að verkefn- inu eins og olíufélög og risastór út- gerðarfyrirtæki, auk ríkisstjórna. Ætla má að hundruð milljóna Bandaríkjadollara verði nýtt árlega á næstu árum til að fylgja eftir stefnumörkun bláborðahópsins. Of mikil og röng nýting Áhyggjuefnin og verkefni til úr- lausnar eru margvísleg, nefna má mengun í höfunum, ofveiði á fiski, olíu- og námavinnslu að ógleymdum loftslagsbreytingum. „Nefndarmenn eru sammála um að heimshöfin og lífríki þeirra séu í hnignun,“ segir Ragnar. „Þar með fari geta hafanna til að stuðla að mannlegri velsæld einnig minnkandi bæði nú og ekki síður í framtíðinni. Þetta stafar í grundvallardráttum af of mikilli en jafnframt rangri nýt- ingu á auðlindum hafsins. Kemur þar margt til. Höfin hafa lengi verið notuð sem staður fyrir úrgangsefni frá mann- heimum. Auk þess sem beinlínis er Að nýta og varðveita auðlindir sjávar  Tekur þátt í starfi alþjóðlegs hóps sérfræðinga sem á að leiðbeina í alþjóðasamstarfi um hafið  Fjalla um hnignun hafanna og leiðir til úrbóta  Milljónir dollara settar í verkefnið á næstu árum VIÐTAL Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Alþjóðleg samvinna þvert á haf- svæði og landamæri gæti verið mik- ilvægur þáttur í verndun og upp- byggingu hafanna. Margir hafa lýst miklum áhyggjum af hnignun þeirra og nú síðast mátti lesa um slíkt í Morgunblaðinu í gær. Þar var greint frá niðurstöðum skýrslu alþjóð- legrar stofnunar og sagt að ástand lífríkisins í heimshöfunum versnaði hraðar en áður var talið. Á alþjóða- vettvangi er vandinn ofarlega á baugi og ríkisstjórnir, vísindastofn- anir og sérfræðingahópar láta sig málið varða. Ragnar Árnason, hagfræðipró- fessor við Háskóla Íslands, tekur um þessar mundir þátt í starfi „úrvals- hóps“ á vegum Alþjóðasamstarfs um hafið (Global Partnership for Oceans, GPO), en það eru samtök yfir 160 landa, fyrirtækja, samtaka og alþjóðlegra stofnana eins og t.d. Alþjóðabankans. Samtökin voru sett á laggirnar í kjölfar Ríó+20 ráð- stefnunnar í fyrrasumar. Sérfræðingar úr ólíkum áttum Samtökin skipuðu sérstaka blá- borðanefnd (Blue Ribbon Panel) á grundvelli tilnefninga hvaðanæva að úr heiminum. Ekki var um það að ræða að þjóðlönd ættu kvóta til setu í nefndinni heldur voru ein- staklingar úr ólíkum áttum fengnir Ljósmynd/Teitur Ragnar Árnason „Aðalatriðið er að þeir sem ráða nýtingu auðlinda sjávarins, sem gætu verið fyrirtæki og samtök rétt eins og ríkisstjórnir, taki höndum saman um þá nýtingu sem hagkvæmust er fyrir heildina.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.