Morgunblaðið - 05.10.2013, Qupperneq 27
Pétur Snæbjörnsson
’
Innanlandsflugið er dauðadæmt að óbreyttu. Erlendir ferða-
menn koma til að sjá náttúruna og best er að bjóða þeim upp á
beint flug frá Keflavík út á land í stað viðkomu í Reykjavík. Þannig
má bjarga innanlandsfluginu.
Dagbjört Jónsdóttir
’
Vont er að búa við stöðuga óvissu um það hvað taki við í opin-
berri þjónustu. Endalausar umræður um niðurskurð og hag-
ræðingu hjá ríkinu fara illa með fólk. Samfélögin þurfa á festu og
stöðugleika að halda.
Björn Valdimarsson
’
Við þurfum að taka umræðuna um heilbrigðismálin á Norð-
urlandi í stað þess að vera með upphrópanir. Hugmyndin um
eina heilbrigðisstofnun mætti almennri andstöðu og var blásin af
án þess að málið hefði verið rætt.
27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2013
Samgöngumál eru Norðlendingum
ofarlega í huga. Miklar úrbætur hafa
orðið á því sviði með Héðinsfjarð-
argöngum. Væntingar eru um að
með Vaðlaheiðargöngum styrkist og
eflist atvinnulíf og mannlíf á Ak-
ureyri, Húsavík og í nærsveitum.
„Allar samgöngubætur hafa náð að
sanna sig,“ segir Sigrún Björk Jak-
obsdóttir.
Flugið er hitamál. Andstaða við
flutning Reykjavíkurflugvallar úr
Vatnsmýrinni er almenn á lands-
byggðinni. Ekki kemur á óvart að
Norðlendingar eru sama sinnis.
Flugið til Keflavíkur
Frá þessu er þó ein undantekning
við hringborðið. Pétur Snæbjörnsson
hótelstjóri er þeirrar skoðunar að
flugvöllurinn í höfuðborginni eigi
ekki framtíð fyrir sér og ráðlegast sé
að efla Keflavíkurflugvöll. Þar eigi að
vera miðstöð innanlandsflugsins.
Pétur er sannfærður um að
óbreytt ástand leiði til endaloka inn-
anlandsflugsins. Það sé orðið allt of
dýrt og óhagkvæmt. Hann bendir á
að erlendir ferðamenn séu fyrst og
fremst komnir til að skoða náttúru
Íslands. Hentugast sé að bjóða þeim
upp á flug beint frá Keflavík á
áfangastaði úti á landi í stað þess að
aka með þá til gistingar í Reykjavík
áður en ferðin út á land hefjist. Þann-
ig megi bjarga innanlandsfluginu.
Ekki sterk rök
Pétri finnst rökin fyrir Reykjavík-
urflugvelli sem snúast um greiðan
aðgang að Landspítalanum ekki
sterk. Aðstæður séu víða þannig úti á
landi að vetrarlagi að ekki sé grund-
völlur fyrir sjúkraflugi. Þá megi al-
veg spyrja hvort ekki sé réttast að
byggja upp bráðamóttöku fyrir land-
ið allt í Keflavík um leið og innan-
landsflugið sé flutt þangað. Fjórð-
ungssjúkrahúsin úti á landi verði
jafnframt styrkt til að gegna stóru
hlutverki í heilbrigðisþjónustunni.
Aðalsteinn segir að fyrir þá sem
búsettir eru úti á landi og eigi oft er-
indi til Reykjavíkur sé núverandi
staðsetning flugvallarins afar hent-
ug. Það mundi auka kostnað þeirra
mikið yrði hann fluttur úr borginni.
Ekkert flug á Króknum
En ekki eiga allir kost á flugi til
Reykjavíkur. Áætlunarflug frá Sauð-
árkróki hefur lagst af vegna þess að
ríkið neitar að taka þátt í að nið-
urgreiða það. Ásta Björg Pálmadótt-
ir er ósátt við þetta. Hún segir þetta
hafa talsverð óþægindi og kostnað í
för með sér fyrir þá Skagfirðinga
sem háðir eru skjótum samgöngum
suður.
Flugmiðaverð innanlands kemur
til tals. Allir eru sammála um að það
sé orðið allt of hátt. Aukin skattlagn-
ing á farmiðana sé fluginu mjög skað-
leg. Sigrúnu Björk finnst áherslurnar
einkennilegar. Á sama tíma og greitt
sé fyrir almenningssamgöngum í
strætó með miklum opinberum
styrkjum séu almenningssamgöngur
í flugi skattlagðar þannig að þær séu
ekki valkostur fyrir almenning.
Ferðamannavegir vanræktir
Pétur er óánægður með hve illa sé
staðið að viðhaldi ferðamannaveg-
anna svokölluðu. Það rími ekki við
lengingu ferðamannatímans að þeim
sé ekki sinnt nema yfir hásumarið.
Hann nefnir leiðina að Dettifossi sem
dæmi, en þar sé ekki mokað að vetr-
arlagi þótt farið sé með ferðamenn
þangað allan ársins hring.
Við hringborðið eru menn ánægðir
með þjónustu Strætó. Björn Valdi-
marsson bendir þó á að hún sé of dýr
og kannski sé framboðið óþarflega
rausnarlegt. Menn eru sammála um
að taka megi skipulag þessarar þjón-
ustu til endurskoðunar.
Allar samgöngubætur náð að sanna sig
Morgunblaðið/RAX
Ferðaþjónusta Hótelstjórinn í Reykjahlíð í Mývatnssveit telur að flutn-
ingur til Keflavíkur gæti orðið innanlandsfluginu mikil lyftistöng.
Getur flutningur til Keflavíkur leyst
kreppu innanlandsflugsins?
„Maður sér gífurlegan mun á löggæslunni á Norðurlandi í kjölfar niðurskurð-
arins,“ segir Ásta Björg Pálmadóttir, sveitarstjóri í Skagafirði. „Það er varla að
lögreglubíll sjáist á leiðinni frá Sauðárkróki til Reykjavíkur.“
Fram kemur við hringborðið að lögreglan á Akureyri sé öflug, en niður-
skurður fjárveitinga hafi bitnað mjög á Þingeyingum. „Menn eru að aka ölvaðir
á norðausturhorninu vegna þess að þar er engin lögregla á ferð,“ segir Aðal-
steinn Á Baldursson á Húsavík.
Viðmælendur við hringborðið eru sammála um að hraðaakstur á vegum hafi
einnig aukist eftir að lögreglan hætti að geta sinnt eftirliti með þeim hætti
sem áður var. Þau hafa öll áhyggjur af þessari þróun.
Morgunblaðið/Júlíus
Umferð Samdráttur í löggæslu skapar óöryggi á þjóðvegunum.
Aukinn ölvunar- og hraðaakstur