Morgunblaðið - 05.10.2013, Síða 39

Morgunblaðið - 05.10.2013, Síða 39
UMRÆÐAN 39Bréf til blaðsins MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2013 X E IN N IX 13 10 001Húsgögnin frá BoConcept sameina framúrskarandi hönnun, gæði, góð verð og óteljandi möguleika. Þú getur notað teikni- forritið á www.boconcept.is til að hanna þinn eigin sófa – og líka borðið, stólana, skenkinn eða hvað sem hugurinn girnist. Þú smellir einfaldlega á flipann „Design in 3D“ undir hverri mynd, byrjar að hanna og reiknar verðið! Skannaðu QR kóðann og sjáðu hvernig teikniforritið virkar Nýr vörulisti! Nýjar vörur! www.boconcept.is Trjáklippingar Trjáfellingar Stubbatæting Vandvirk og snögg þjónusta Sími 571 2000 | hreinirgardar.is Forsætisráðherra hefur lýst því yfir að ríkisstjórnin ætli að standa við loforðin um afnám verðtrygging- arinnar og skuldaleið- réttingu heimilanna og gott væri að af því verði fljótt og vel. En hvað ætlar hún að gera í raun? Verðtryggingin af- numin, frá hvaða tíma? Ég tel fulla ástæðu til að óttast það að verðtryggingin verði ekki afnumin afturvirkt, heldur aðeins frá og með einhverjum tilteknum degi. Ef það verður niðurstaðan verður erfiðara að leiðrétta stökk- breyttu lánin svonefndu, en það eru verðtryggðu lánin, sem þegar hafa verið tekin, sem skapa öll vandræð- in og þarfnast leiðréttingar, en ekki framtíðarviðskipti. Verður farið alla leið eða í eitthvert hálfkák? Ég tel að það sé einnig full ástæða fyrir þá tugi þúsunda, sem málið varðar, að óttast það að farin verði einhver málamyndaleið en ekki að allt verði leiðrétt og að björgin muni þá ekki duga nema skammt. Það er svo algengt á Ís- landi að tala um eitthvert jafnræði, sem getur hins vegar verið hið mesta ójafnræði þegar upp er stað- ið. Ef ríkisstjórnin velur t.d. það að skammta einhverja flata summu til allra eða einhverja hámarkssummu eftir einhverjum væntanlega flókn- um úthlutunarleiðum, allt í nafni jafnræðisins, mun það augljóslega gagnast fólki mjög misjafnlega vel og þá illa. Þá spyr ég hver væri skilgreiningin á jafnræðinu eða til- gangurinn með því að fara í leið- réttingaraðgerðirnar ef ekki á að hjálpa öllum þeim, sem eru í sínum miklu og alvarlegu vandræðum? Hvernig á að kosta aðgerðirnar? Ég tel að það sé líka full ástæða til að óttast hvernig leiðréttingar- aðgerðirnar verða fjármagnaðar. Ef það á að kosta aðgerðirnar úr ríkissjóði er líklegt að þær verði ekki stórar í sniðum og að afsök- unin verði sú að ríkissjóður standi svo höllum fæti að ekki sé meira en svo og svo til skiptanna. Menn eða mýs Ég ætla að benda skuldurunum og ríkisstjórninni enn og aftur á að það er til leið sem tryggir öllum skuldurunum bjargræðið og það án þess að það lendi á ríkissjóði. Það þarf ekki mikið hugrekki til þess að fara leiðina, aðeins smáhugmynda- flug og skilning. Verðtryggingin er þegar ólögleg Alþingi Íslands samþykkti lögin nr. 108/2007, sem tóku gildi 1.11. 2007, m.a. um bann við sölu á af- leiðum til almennings vegna neyslulána, þ.m.t. húsnæðislána, þ.e. lánum sem tengjast einhverju ut- anaðakomandi eins og vísitölum, sem gera það að verkum að skuld- arinn veit ekki fyrr en upp er stað- ið hvað hann skuldar mikið. Það þarf ekki að segja meira um það. Hins vegar er það ráðgáta hvers vegna ekki hefur verið farið að lög- um landsins. Það eina, sem rík- isstjórnin þarf að gera, er að fara eftir lögunum og ef hún endilega vill staðfesta þau þá sérstaklega. Þá er neysluverðsvísitalan vegna húsnæðislánanna komin, eða 278,1 stig hinn 1.11. 2007, og auðvelt að reikna hlutfallsleg áhrif hennar á lánin. Leiðréttingarsjóðurinn Með aðferð magnbundinnar íhlutunar, sem ég vona að lesendur þekki nú þegar, en þá er stofnaður sjóður innan Seðlabankans sem færir lánin eins og þau voru daginn góða, 1.11. 2007, eða síðar, og gefur út ný óverðtryggð skuldabréf til þess tíma eins og lántakendur þurfa og búið spil. Ekkert lendir á ríkissjóði, leiðréttingin er gerð og lánardrottnarnir fá sitt. Allt gengur upp og allir hagnast. Jafnrétti hvað? Er það ekki verkefnið að hjálpa fólkinu, að allir séu þannig jafnir að því að fá leiðréttingu sinna mála eða hvað? Ég fæ ekki séð nauðsyn- ina á að gera einfalt mál að flóknu. Ég hvet því ríkisstjórnina til að láta hendur standa fram úr ermum og klára málið fljótt og vel. Ég hvet einnig allan almenning, alla sem hlut eiga að máli, til að standa vörð um réttlætið og hagsmuni sína og veita stjórnvöldum sterkt aðhald og hvatningu. Annars fer illa eða eins og t.d. það, sem ég óttast. Hvað ætlar ríkisstjórnin að gera varðandi skulda- leiðréttingu heimilanna? Eftir Kjartan Örn Kjartansson »Ef það á að kosta aðgerðirnar úr ríkissjóði er líklegt að þær verði ekki stórar í sniðum. Kjartan Örn Kjartansson Höfundur er fyrrverandi forstjóri. – www.framavid.com. Jónína Michaelsdóttir átti viðtöl við nokkra íslenska áhrifamenn í bók sem út kom á fimmtíu ára af- mæli lýðveldisins árið 1994. Meðal viðmælenda hennar var Jón- as heitinn Ha- ralz bankastjóri. Í viðtalinu segir Jónas meðal annars frá störf- um sínum fyrir nýbyggingarráð á árum nýsköp- unarstjórn- arinnar. Einar Olgeirsson, formað- ur Sósíalistaflokksins, taldi það fásinnu að tveir bæir, Hveragerði og Selfoss, væru að byggjast með svo stuttu millibili. Hann áleit því rétt að slá þeim í einn bæ og hafði meira að segja fundið bæjarstæðið – miðja vegu milli þeirra tveggja – og þangað fór nýbyggingarráð í skoðunarferð. Grípum niður í sam- talið við Jónas: „Ekkert meira varð úr málinu, en þetta var dæmigert fyrir hugs- unarháttinn á þessum tíma. Trúin á skipulag að ofan var algjör og þar með skilningsleysi á sjálfkrafa þróun“ og hann bætti svo við: „Gengið var út frá því að í koll- inum á fáum sérfræðingum væri meira vit en í samanlögðum kollum alls fjöldans. Það sem gerðist af sjálfu sér var alltaf vit- leysa.“ Mér hefur orðið hugsað til þessara orða Jónasar í ljósi fyr- irliggjandi aðalskipulags Reykja- víkur sem gilda á til ársins 2030. Þar er gert ráð fyrir að flugvöll- urinn hverfi þvert á skoðun borg- arbúa sjálfra og þvert á þarfir at- vinnulífsins. Áætlað er að þrengja að höfninni þegar fyrir liggur að mikil tækifæri eru í hvers kyns hafnsækinni starfsemi. Áætlanir eru uppi um að torvelda bílaum- ferð á sama tíma og mikill meiri- hluti borgarbúa kýs að ferðast með eigin bíl. Og þá á ekki að byggja eitt einasta sérbýli í Reykjavík til ársins 2030 á sama tíma og kannanir sýna að mikill meirihluti fólks kysi helst að búa í slíku húsnæði. Skipulagshyggjan er algjör í nútímanum, en þrettán af fimm- tán borgarfulltrúum Reykvíkinga hafna sjálfkrafa þróun sem bygg- ist á óskum, vonum og þrám borgaranna sjálfra. Þess í stað skal líf borgaranna skipulagt í þaula eftir fastmótuðum kenni- setningum. Getur verið að vofa kommúnismans gangi enn ljósum logum? BJÖRN JÓN BRAGASON Vofa kommúnismans Eftir Björn Jón Bragason Björn Jón Bragason

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.