Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.02.2014, Page 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.02.2014, Page 2
Framhaldsskólanemendur sýndu kennurum samstöðu í kjarabaráttu sinni í vikunni með því að koma saman á Austurvelli. Kennarar í framhaldsskólum fóru í verkfall hinn 7. nóv- ember árið 2000 og þá sýndu nemendur þeirra einnig stuðning sinn í verki með því að efna til setuverkfalls í fjármálaráðuneytinu eins og sést á myndinni að ofan. Þannig vildu nemendurnir hvetja ráðamenn til að binda enda á verkfallið. Því lauk reyndar ekki fyrr en tveimur mánuðum síðar en kennsla hófst í framhaldsskólum að nýju 8. janúar 2001. AUGNABLIKIÐ Morgunblaðið/RAX NEMENDUR STYÐJA SÍNA KENNARA ÞÁ OG NÚ Morgunblaðið/Þórður 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.2. 2014 Ævintýrin enn gerast segir í lag- inu. Engu er líkara en Ívar Páll Jónsson söngleikjahöfundur hafi haft það að leiðarljósi þegar hann fór af stað í þá vegferð að fá söng- leik sem íslensk leikhús höfðu hafnað settan upp í sjálfri New York-borg. Hann gafst ekki upp og nú er fjármagn til að setja upp sýningu í einni af höfuðborgum söngleikjamenningar í heiminum tryggt. Ævintýrið getur hafist. Ív- ar Páll og samstarfsmenn hans segja okkur sögu verksins í blaðinu í dag. Tónleikahald stærstu popp- stjarna veraldar jafnast á við stærstu söngleiki í umfangi. Ung- ar popptónlistarkonur virðast vera undir sífellt aukinni pressu að koma fram nánast naktar og reyna að ögra með klámfengnum tilburðum. En hvaðan kemur þessi pressa? Hver biður eig- inlega um þetta? Rýnt er í þessi mál í úttekt í blaðinu í dag. Í fréttaskýringaþættinum 60 mín- útur var nýverið fjallað um tón- listarkonuna Taylor Swift, en hún er ein þeirra sem taka ábyrgð sína sem fyrirmynd ungra stúlkna al- varlega og hefur tekið fyrir það að koma fram nakin á myndum eða vera með ögrandi framkomu á sviði. Hún telur sig einfaldlega ekki þurfa á því að halda. Sem er rétt hjá henni því aðeins 21 árs gömul hefur hún selt á annan tug milljóna platna og er eitt stærsta nafnið í heimi popp- og kántrí- tónlistar í Bandaríkjunum. Samt fækkar hún ekki fötum. Hvers vegna ætli aðrar hæfileikaríkar tónlistarkonur á borð við Rihönnu finni sig knúnar til að ganga sífellt lengra í sinni framkomu og fækka fleiri spjörum? Biðjum við – neyt- endur – um þessa nekt? Og ættum við þá kannski að hætta því? Ævintýri eru skemmtileg og vonandi endar ævintýri hins al- íslenska söngleiks sem nú er kom- inn í útrás vel. Og vonandi haldast spjarirnar á flestum þátttak- endum líka. RABBIÐ Nekt og ævintýri Eyrún Magnúsdóttir Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Útgefandi Óskar Magnússon Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hvað? Námskeið í lifandi hlutverkaleik. Hvar? Hótel Square á Hlemmi. Hvenær? Laugardag kl. 16. Nánar: Frítt námskeið í lifandi hlut- verkaleik. Þátttaka er frjálst val. L.A.R.P.-námskeið Hvað? Listasmiðjur fyrir fjölskylduna. Hvar? Menningar- miðstöðinni Gerðubergi. Hvenær? Laugardag kl. 13-16. Nánar: Fjölskyldum boðið að taka þátt í fjölbreyttum og spennandi listasmiðjum. Andlitsmálning, skuggaleikhús, bún- ingasmiðja og fleira. Aðgangur ókeypis. Heimsdagur barna Í fókus VIÐBURÐIR HELGARINNAR Hvað? Flóamarkaður. Hvar? Hinu húsinu. Hvenær? Laugardag kl. 13-17. Nánar: Ungt fólk selur af sér spjarirnar ásamt alls kyns smávöru. Heitt á könn- unni. Markaður Hins hússins Hvað? Styrkt- artónleikar. Hvar? Hörpu. Hvenær? Sunnudag kl. 20. Nánar: Tónleikar til styrktar rannsóknum á arfgengri heilablæðingu. Fram koma Bubbi Morthens, Þórunn Antonía, Ka- leo og fleiri. Verð 3.900 kr. Ég á líf Hvað? Klassík í Salnum. Hvar? Salnum, Kópavogi. Hvenær? Sunnudag kl. 16. Nánar: Ný klassísk kammertónleika- röð þar sem margir af bestu listamönn- um landsins koma fram. Verð 3.300. Kammermúsík Hvað? Matarfjör. Hvar? Ikea. Hvenær? Alla helgina milli 13 og 17. Nánar: Ikea kynnir nýj- ar heimapítsur, brauð- stangir og fleira. Boðið upp á smakk og kennslu við handbrögðin. Smakk í Ikea * Forsíðumyndina tók Golli.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.