Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.02.2014, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.2. 2014
HEIMURINN
Jay Leno
DAMASKUS
,
fordæmt árásirnar.
Umræðan um mál Schapelle
Corby hefur að hluta til snúist
um ímynd. Ljósmyndir af henni
fóru strax eins og eldur í sinu
um heiminn og þegar horft var
í heiðblá augun áttu margir
vont með að trúa því að þessi
stúlka gæti verið að segja
ósatt. Það eitt gerir hana þó
ekki saklausa. Ef til vill eru aug-
un jafnvel hennar beittasta
vopn?
Færa má þetta heim á
umræðuna um meinta
sekt eða sakleysi banda-
rísku konunnar
Amöndu Knox sem
öðru sinni hefur verið
dæmd fyrir sama morðið
á Ítalíu.
Eru þetta kven-
djöflar með
ásjónur engla?
F
á dómsmál hafa vakið
meiri athygli í Ástralíu
í seinni tíð en mál
hinnar 36 ára gömlu
Schapelle Corby. Nýr
vindingur var í málinu á föstu-
dag þegar Corby var látin laus
eftir níu ár í fangelsi í Indóne-
síu. Um reynslulausn er að ræða
og að óbreyttu verður Corby að
halda sig í Indónesíu til ársins
2017. En hún getur alltént um
frjálst höfuð strokið á ný.
Í október 2004 flaug förð-
unarskólaneminn Schapelle Corby
ásamt bróður sínum og tveimur
vinum frá Brisbane til Balí í
þeim tilgangi að halda upp á þrí-
tugsafmæli systur sinnar sem bú-
sett er á Balí. Við komuna til
eyjunnar opnuðu tollverðir far-
angur þeirra af handahófi og
fundust þá rúmlega fjögur kg af
marijúana í tösku Corby. Var
hún þegar í stað tekin höndum.
Tuttugu ára fangelsi
Fyrir dómi lýsti Corby yfir sak-
leysi sínu. Hún hefði aldrei séð
téð fíkniefni áður og einhver
hlyti að hafa komið þeim fyrir í
farangri hennar. Dómarinn hlust-
aði ekki á þær röksemdir og
dæmdi Corby í tuttugu ára fang-
elsi.
Málið vakti heimsathygli og
þótti mörgum málsmeðferðin
ómakleg. Samkvæmt indónes-
ískum lögum þurfti Corby að
sanna að einhver annar hefði
komið efnunum fyrir og það
tókst lögmönnum hennar ekki.
Fátt vann með hinni ákærðu
við rannsókn málsins. Engar
myndbandsupptökur voru til af
handtöku hennar og stóð orð
gegn orði. Tollverðir héldu því
fram að Corby hefði verið með
mótþróa þegar taskan var skoðuð
en hún hafnaði því alfarið. Engin
fingraför voru heldur tekin af
töskunni og umbúðunum sem
innihéldu efnin.
Auðvelt að opna töskur
Balí er vinsæll ferðamannastaður
og þangað leggur mikill fjöldi
Ástrala leið sína á ári hverju.
Fyrir vikið gátu margir sett sig í
hennar spor. Auðvelt er að opna
ferðatöskur, svo lítið ber á, og
koma þar fyrir fíkniefnum. Eyði-
leggja þar með ekki bara fríið
heldur mörg ár fyrir viðkom-
andi. Mögulega allt lífið.
Lögmenn Corby héldu
því fram að málið tengd-
ist fíkniefnasmyglhring
sem starfsmenn á flugvell-
inum í Brisbane ættu aðild
að en ekki tókst að
sanna það. Því fór
sem fór.
Ítarlega var fjallað
um málið í áströlskum fjölmiðlum
í kjölfarið og meðal annars rætt
við ferðamenn sem höfðu fundið
fíkniefni í fórum sínum eftir að
hafa flogið frá Ástralíu til Balí.
90% trúðu á sakleysi
Í könnun sem gerð var í Ástralíu
meðan á réttarhaldinu yfir Corby
stóð kom í ljós að 90% þátttak-
enda trúðu á sakleysi hennar.
Burtséð frá því hvort hún væri
sek þótti mörgum refsingin alltof
hörð. Corby hafði aldrei komist í
kast við lögin áður og engar vís-
bendingar voru um að hún hefði
nokkurn tíma neytt fíkniefna.
Margt hefur verið dregið fram
í dagsljósið síðan Corby var
dæmd. Greinar og bækur skrif-
aðar og nú stuttist í frumsýningu
kvikmyndar sem byggist á mál-
inu. Meðal annars hefur faðir
hennar, sem nú er látinn, verið
gerður tortryggilegur og hann
spyrtur við fíkniefnamisferli. Þá
varð uppi fótur og fit þegar lög-
maður úr teyminu sem varði
Corby var staðinn að því að
múta dómurum í Indónesíu.
Af því tilefni mælti að-
allögmaður hennar þessi fleygu
orð: „Ef til vill er ég ekki hr.
Hreinn en ég er hreinn í þessu
máli. Það er enginn lögmaður í
heiminum algjörlega hreinn.“
Fyrirmyndarfangi
Schapelle Corby hefur verið
fyrirmyndarfangi í þessi níu ár
og þess vegna er hún nú laus úr
prísundinni. Það þýðir þó ekki að
hún geti snúið heim til Ástralíu í
bráð. Skilorðið felur í sér að hún
þarf að dveljast áfram í Indóne-
síu til ársins 2017. Talið er að
hún ætli að búa hjá systur sinni
í Kuta, sem er vinsæll ferða-
mannastaður á Balí, og vinna í
brimbrettabúð mágs síns. Hlut-
verk hennar verður að hanna
bikíní.
Sat hún
saklaus inni?
EFTIR NÍU ÁR Í FANGELSI Í INDÓNESÍU VAR ÁSTRALSKA
KONAN SCHAPELLE CORBY LÁTIN LAUS FYRIR HELGI. HÚN
VAR GRIPIN MEÐ RÚM FJÖGUR KG AF MARIJÚANA Á FLUG-
VELLINUM Á BALÍ EN HEFUR HALDIÐ FRAM SAKLEYSI SÍNU.
Amanda Knox
BLÁU AUGUN ÞÍN
Schapelle Corby horfir um öxl. Myndin er tekin í Kerobokan-fangelsinu á Balí árið 2008. Hvað verður nú um Corby?
AFP
*Hvernig getum við sem þjóð staðið hjá og látið unga konurotna í erlendu fangelsi þegar efinn er svona mikill? Ástralski leikarinn Russell Crowe. AlþjóðamálORRI PÁLL ORMARSSON
orri@mbl.is