Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.02.2014, Blaðsíða 39
Það er ekkert sem
heitir „of mikið“
9.2. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
S
vona þegar
stelpan er
alveg tilbúin
að taka á
móti vorinu – örlítið
farið að birta og
sjást til sólar á milli
haglélja – er svo
ljúft að láta sig
dreyma.
Dreyma um ein-
hver æðisleg föt sem
myndu hressa mann
við í þorramygl-
unni. Þetta er ein-
hvern veginn akk-
úrat tíminn til þess að kaupa sér
bleika skyrtu eða gulan jakka,
það er að segja ef það er ekki til í
fataskápnum nú þegar.
Akkúrat fyrir ári trylltist ég
þegar nýja línan frá Malene Bir-
ger kom og keypti mér skær-
bleika skyrtu sem flýtti vorkom-
unni alveg heilmikið og styrkti
hjartastöðina svo um munaði. Á
sama tíma eignaðist ég líka ljós-
gula skyrtu frá Baum Und
Pferdgarten, sem er, líkt og Mal-
ene Birger, danskt hátískumerki
sem einhvern veginn hittir mig
alltaf í hjartastað. Með fullri virð-
ingu fyrir ítalskri hönnun, banda-
rískri og breskri ná þessi fyrr-
nefndu dönsku tískuhús að fanga
ákveðna stemningu sem skandin-
avískar konur kolfalla fyrir. Smá-
atriðin í hönnuninni, sniðin, lita-
pallettan og stemningin hjá
þessum tveimur fatamerkjum er
einhvern veginn alltaf „to die
for“.
Á dögunum kom tískuhúsið By
Malene Birger með nýtt prent í
töskulínu sinni. Undirtónninn er
hvítur en munstrið sjálft svart.
Munstrið minnir á monogram-
munstur sem hefur nú aldeilis
heillað konur upp úr skónum í
gegnum tíðina.
Ef þú ert svona týpa sem ert
alltaf með allt í stíl, brúna tösku
við brún stígvél og þar fram eftir
götunum, verður þú að róa á ný
mið. Vortískan kallar nefnilega á
ægilega kaótík og við eigum alls
ekki að vera of stíliseraðar.
Glimmerskór við gallabuxur og
gula skyrtu og með dökkbláa
tösku er til dæmis eitthvað sem
gjarnan má vinna með. Þetta
hljómar kannski ekkert vel en
myndin sannar að þetta er nokk-
uð svalt. Eins er mjög svalt að fá
sér litríka kápu eins og þessa
skærbleiku og klæðast henni yfir
gallabuxur og gallaskyrtu. Það er
líka önnur regla sem við brjótum
í sumartískunni. Að vera í galla-
buxum við gallajakka eða galla-
skyrtu þykir til dæmis töff í dag
en þótti það ekki fyrir nokkru.
Tala nú ekki um ef skvísan hefði sett á sig glitrandi belti og farið í
lakkskó við.
Í vortískunni er ekkert sem heitir „of mikið“ … Blandaðu ólíkum
munstrum saman og farðu í liti. Settu á þig djarfan varalit og keyrðu
upp sumarstemninguna í hjartanu. Það er nefnilega alveg sama hvern-
ig veður er, hvaða árstíð eða hvaða mánuður. Ef þú ert bílstjórinn í
þínu eigin lífi þá stjórnar þú – sama hvernig ytri aðstæður eru. Það er
ágætt að minna sig reglulega á það …
martamaria@mbl.is
Bleiki liturinn verður áberandi í
vortískunni ásamt hvítum.
Gallabuxur við gallajakka og bleika
kápu er málið.
Svona lítur munstrið út í töskulínu
By Malene Birger. Taskan fæst í Evu.
Gul skyrta frá By
Malene Birger við
gallabuxur. By Mal-
ene Birger fæst í
Evu á Laugavegi.
Hlébarðaefni við
hlébarðaefni. Það
er dásamlegt.
Þessi föt eru frá
Baum Und Pferd-
garten og fást í
Ilse Jacobsen.
Munstur við
mundur - það
má. Þessi föt eru
frá Baum Und
Pferdgarten og
fást í Ilse Jacob-
sen.
MOSFELLSBAKARÍ
Handverksbakarí
fyrir sælkera
Daglega er bakað bakkelsi
sem fá bragðlaukana til að
kætast.
Hjá okkur er hægt að fá þetta
gamla og góða og einnig
eitthvað nýtt og spennandi.
Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík
s. 566 6145 | mosfellsbakari.is
Hvern ætlar þú að
gleðja í dag?