Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.02.2014, Blaðsíða 47
9.2. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 47
Ívar Páll Jónsson segir allt sitt líf
hafa verið baráttu gegn því að vera
steyptur í sama mót og aðrir.
Morgunblaðið/Golli
* Ætli þetta eigi ekkirætur í uppeldinu.Faðir minn er mikill hippi
í eðli sínu og við syst-
kinin ólumst upp við ást,
frið, reykelsi og tarotspil.
Pabbi er mikið á móti
staðalmyndum um hlut-
verk kynjanna og við
vissum ekki hvers kyns ég
var fyrr en í fermingar-
veislunni.
Þetta verður spennandi ævintýri. Maður fær ekki áhverjum degi tækifæri til að fara til New York ogsetja upp söngleik,“ segir Bergur Þór Ingólfsson
sem leikstýra mun sýningunni.
Hann segir Revolution hafa allt með sér. „Leikritið er
frumlegt og gott og tónlistin býður upp á mikla möguleika
þótt hún sé ekki dæmigerð söngleikjatónlist. Þetta er ind-
ie-rokk sem fellur mjög vel að mínum smekk. Það eru
þarna áhrif frá Pixies, David Bowie, Radiohead og jafnvel
Portishead. Þetta er alvöruefni með góðum húmor og
spennandi sögu,“ segir hann.
Bergur hafði aldrei hitt Ívar Pál og þurfti að spyrjast
fyrir um hann. „Honum er hvarvetna gefin góð einkunn.
Ívar Páll er augljóslega hæfileikaríkur maður. Það stekkur
ekki hver sem er fullskapaður upp úr leik- og tónskálda-
skúffunni með eitt stykki Off-Broadway-söngleik í fartesk-
inu. Revolution er gott verk með sterk höfundareinkenni,
tilbúið til æfinga. Það hlýtur að koma meira frá Ívari Páli í
framtíðinni. Vonandi lætur hann þó ekki tuttugu ár líða á
milli.“
Ráku upp stór augu
Bergur veit ekki til þess að íslenskur söngleikur hafi verið
settur upp erlendis áður og örugglega ekki í New York.
„Aðstandendur verksins eru helvíti áræðnir að gera þetta
og ég er alltaf til í að stökkva í reið með slíkum hestum.
Ég var í Bandaríkjunum með Karli Pétri Jónssyni fram-
leiðanda um daginn og þar ráku menn upp stór augu þeg-
ar þeir áttuðu sig á því að við ætluðum að byrja svona stórt.
Leiðin er yfirleitt lengri þarna úti.“
Bergur segir það hárrétta ákvörðun að setja verkið upp í
New York. Eðli þess vegna. „Ef við gefum okkur að mark-
hópurinn verði aðallega fólk sem hefur áhuga á frumlegri
rokktónlist eru mun fleiri hausar í þeirri prósentu í New
York en Reykjavík.“
Bergur er lítið farinn að velta viðtökum fyrir sér ennþá.
Aðalatriðið sé að búa til góða sýningu. „Ég myndi segja að
við ættum góða möguleika ef við náum sýnileika. Við erum
staðráðin í að gera stóra og flotta sýningu enda erum við
vön gæðum úr leikhúsinu hér heima. Íslenskt leikhús er á
mjög háum standard í alþjóðlegu samhengi. Það hefur
margsýnt sig.“
Hlakkar til að dveljast í New York
Bergur fer utan í apríl til að fylgjast með áheyrnarprufum
en kemur svo heim aftur til að klára leikárið í Borgarleik-
húsinu. „Þegar ég verð búinn að þvo framan úr mér smink-
ið eftir síðustu sýninguna í júní flýg ég utan. Það verður
gaman að dveljast þar með fjölskylduna í sumar. Stelp-
urnar mínar eru orðnar mjög spenntar.“
Það er stórt tækifæri fyrir íslenskan leikstjóra að leik-
stýra Off-Broadway-sýningu en Bergur er ekki farinn að
velta því fyrir sér hvort það geti undið upp á sig. „Markmiðið
núna er bara að gera þetta eins vel og ég get en það segir sig
sjálft að því betur sem þessi sýning gengur þeim mun fal-
legra verður nafnspjaldið sem maður skilur eftir sig.“Bergur Þór Ingólfsson mun leikstýra Revolution.
Morgunblaðið/Ómar
Alltaf til í að stökkva í reið með slíkum hestum
Sögusvið söngleiksins Revolution er ekki
alveg hefðbundið. „Nú er það?“ spyr Ívar
Páll. „Er þetta ekki bara enn einn söng-
leikurinn sem gerist í olnboganum á
Ragnari Agnarssyni húsgagnamálara?“
Bærinn Elbowville er sumsé samfélag
manna sem komið hefur sér makindalega
fyrir í olnboga manns. Ef til vill framandi
aðstæður en margt minnir þó á venjulegt
jarðneskt samfélag á norðurhjara þessa
heims.
„Þetta er saga um ástir og átök,“ upp-
lýsir Ívar Páll. „Söguhetjurnar eru þrír
bræður, Peter, Alex og Stein, sem tengj-
ast miklum og sterkum böndum. Þegar
Peter og Alex verða ástfangnir af sömu
konunni fer allt í bál og brand. Það endar
með því að annar þeirra yfirgefur bæinn
en hinn verður eftir og kvænist konunni.
Þau stofna fjölskyldu og í leiðinni kemur
hann hagsældarvél á koppinn.“
Erfitt er að toga meira upp úr höfund-
inum en hann bætir þó þessu við: „Verkið
fjallar líka um vonina og mögulega lýsir
það kerfinu sem við búum við. Hvort
skiptir meira máli, fjölskyldan eða efnis-
legir hlutir? Annars er þetta ekki prédik-
un. Fólki er frjálst að draga sínar álykt-
anir. Réttar og rangar.“
Sögusviðið
er olnbogi