Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.02.2014, Blaðsíða 23
9.2. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23
Það hefur væntanlega ekki farið fram hjá neinum að Vetrarólymp-íuleikarnir voru settir í Sotsjí í Rússlandi í gær. Rússar hafa lagtallt kapp á að leikarnir verði sem glæsilegastir og ljóst er að þetta
verða dýrustu Ólympíuleikar allra tíma. Spekingar telja að kostnaður
Rússa sé um 5.800 milljarðar króna.
Í Grikklandi hinu forna fengu sigurvegarar Ólympíuleikanna krans
fléttaðan úr ólífuviði fyrir afrek sín. Þessir fornu kappar voru alsælir með
látlaust höfuðskrautið enda var það heiðurinn
sem skipti þá mestu máli. Rússar framleiddu
hins vegar 1300 verðlaunapeninga fyrir leikana í
ár og mikil vinna og kostnaður liggur að baki
framleiðslu þeirra.
Í ljósi þeirra vandamála sem fyrirfinnast í
Rússlandi gt ég ekki annað en velt því fyrir mér
hvort ekki væri meira í anda leikanna að taka
aftur upp ólífuviðarkransana. Þannig væri hægt
að nýta þá fjármuni sem sparast í þágu al-
mannaheilla, umhverfismála eða jafnvel í rétt-
indabaráttu samkynhneigðra.
Ég ætla ekki að fjalla nánar um viðkvæm
rússnesk málefni á borð við umhverfismál,
mannréttindabrot og samkynhneigð í þessum stutta pistli heldur ætla ég
að skoða raunverulegt gildi rússnesku verðlaunapeninganna. Þeir eru
nefnilega ekki allir þar sem þeir eru séðir þrátt fyrir gríðarlegan til-
kostnað.
Raunin er sú að það er lítill sem enginn munur á verðlaunapeningunum
sem veittir eru fyrir fyrsta og annað sætið. Gullpeningurinn sem veittur
verður í verðlaun á þessum leikum er úr 525 grömmum af silfri, sem er
sama magn og í silfurpeningnum. Eini munurinn liggur í því að gullpen-
ingurinn er húðaður með sex grömmum af gulli og því er gullinnihald
hans eingöngu um 1%.
Ég mæli með því að allir njóti þess að horfa á Vetrarólympíuleikana í
Sotsjí enda er andi Ólympíuleikanna svo sannarlega göfugur. Mikilvægt
er þó að vera meðvitaður um að stundum er ekki allt sem sýnist þótt allt
líti vel út á gljáfægðu yfirborðinu. Ekki láta gullhúðunina blekkja ykkur!
AFP
GULLHÚÐAÐIR
ÓLYMPÍULEIKAR
Heilbrigt líf
JÓN HEIÐAR
GUNNARSSON
K
raftlyftingamaðurinn Auðunn Jónsson er einn
fremsti íþróttamaður sem íslenska þjóðin hefur
alið. Hann hefur um árabil verið í flokki bestu
kraftlyftingamanna heims en hann hefur unnið
til fjölda verðlauna hér heima og erlendis. Hann varð
meðal annars heimsmeistari í réttstöðulyftu árið 2012 og
Evrópumeistari í réttstöðulyftu á síðasta ári.
Hversu oft æfir þú á viku?
Fimm sinnum.
Hvernig æfir þú?
Mínar æfingar snúast nær eingöngu um að lyfta lóð-
um.
Henta slíkar æfingar fyrir alla?
Já, ekki spurning, ef þeir ætla að styrkja sig.
Hvernig er best fyrir nýliða að koma sér af stað?
Koma í kraftlyftingaaðstöðu Breiðabliks í Kópavogi.
Hver er lykillinn að góðum árangri?
Það er margþætt: Agi, þolinmæði, skipulag og sam-
viskusemi. Auk þess að lifa heilbrigðu lífi, þ.e. borða,
hvíla og sofa rétt.
Hvað er það lengsta sem þú hefur hlaupið?
Það er líklega 6-7 kílómetrar.
Hvað ráðleggurðu fólki sem vill hreyfa sig meira?
Setja sér gott plan, skipuleggja æfingaprógramm og
fylgja því eftir.
Hvernig væri líf án æfinga?
Ég byrjaði svo ungur að æfa að ég þekki nánast ekk-
ert lífið án æfinga en ég mun komast að því seinna.
Hvað er það lengsta sem hefur liðið á milli æfinga hjá
þér?
Ég hef oft ætlað að taka mér góða hvíld eftir mikla æf-
ingatörn og keppni en er yfirleitt kominn aftur
af stað eftir u.þ.b. viku.
Hvernig heldurðu þér í formi þegar þú
ferð í frí?
Fer nú ekki mikið í frí en ef ég fer þá æfi
ég alltaf.
Hvað borðarðu til að halda þér í formi?
Dagarnir hjá mér byrja á hafragraut og sex
eggjum, annars reyni ég að borða fjölbreyttan
og hollan mat. Gott mataræði er mjög mik-
ilvægt til að ná góðum árangri.
Hvaða óhollustu ertu veikur fyrir?
Súkkulaðirúsínum.
Hvað ráðleggurðu fólki sem
vill bæta mataræðið?
Hafa matinn fjölbreyttan og
reyna að borða oftar og minna í
einu, borða mikið af ávöxtum,
sleppa gosi og drekka mikið
vatn.
Hvaða gildi hefur hreyfing
og líkamsrækt fyrir þig?
Hreyfing og líkamsrækt
hefur alltaf haft gríðarlega
mikið gildi fyrir mig og ef ég dett út úr rútínunni er eins
og það hafi slæm áhrif á allt annað í lífinu.
Hver eru erfiðistu meiðsli sem þú hefur orðið fyrir?
Axlarmeiðsli, en ég er búinn að fara í fimm axl-
araðgerðir, fjórar á hægri öxl og eina á vinstri. Eftir síð-
ustu aðgerð var tvísýnt hvort ég gæti haldið áfram
keppni en ég hef náð alveg ótrúlega góðum bata.
Hver eru heimskulegustu meiðslin sem þú hefur orð-
ið fyrir?
Ég hef meitt mig á ótrúlega mörgum stöðum í gegnum
tíðina en sennilega eru heimskulegustu meiðslin þegar
ég missti 50 kg lóð á stóru tána á mér og hún margbrotn-
aði.
Hvað eru algeng mistök hjá fólki við æfingar?
Algengustu mistök við æfingar eru að fólk rembist oft
við að lyfta of þungu, því maður fær meira út úr því að
lyfta aðeins léttara og gera hlutina betur fyrir vikið.
Hver er fyrirmynd þín?
Jón Auðunsson, pabbi minn.
Hver er besti íþróttamaður allra tíma?
Spretthlauparinn Usain Bolt.
Hvað var hámark ferilsins?
Þegar ég varð Evrópumeistari í samanlögðu 1998 og
þegar ég vann gullið í réttstöðu á HM 2012 og að sjálf-
sögðu þegar ég fékk viðurkenninguna Íþróttakarl Kópa-
vogs 2013 fyrir stuttu.
Mestu vonbrigðin? Þegar ég tapaði heimsmeistaratitl-
inum á HM 1999 með minnsta hugsanlega mun gegn
Rússanum Maxim Podtynni.
Skemmtileg saga frá ferlinum?
Eftir HM í Indlandi 2009 fórum við Vigfús aðstoð-
armaður minn í smáskoðunarferð um Nýju-Delí. Við
löbbuðum mikið um og lentum inni í hverfi sem virt-
ist vera notalegasta hverfi en svo þegar fór að
skella á myrkur leist okkur ekki alveg á hvar við
vorum staddir og þótti fólkið í hverfinu frekar
skuggalegt. Þá segi ég þessa fleygu setningu við
Fúsa: „Eigum við ekki bara að láta lítið fara fyrir
okkur og koma okkur héðan?“ Þetta fannst
Fúsa mjög fyndið því við vorum
þarna tveir hvítir víkingar,
annar hátt í tveir metrar og
u.þ.b. 85 kg og ég 140 kg
og litum því út eins og
tölustafurinn 10 og
skárum okkur mjög
úr mannfjöldanum.
Skilaboð að
lokum?
Lifðu í núinu
og vertu jákvæður,
lífið er allt of
stutt til að
eyða orku í
það neikvæða.
AUÐUNN JÓNSSON ER ÍÞRÓTTAMAÐUR VIKUNNAR
Sex egg í morgunmat
Morgunblaðið/Golli
Sérfræðingar telja að óhollt mataræði valdi næstum jafnmörgum krabbameinstilfellum og
reykingar. Óhollt mataræði er einnig stærsti einstaki áhættuþátturinn varðandi slæma
heilsu og offitu Íslendinga. Hollt mataræði er mikilvægasti þátturinn í að öðast heilbrigðan
líkama og þar skiptir sérstakega miklu máli að auka neyslu á fæðu úr jurtaríkinu.
Hollt mataræði skiptir öllu máli* Að halda líkamanum viðgóða heilsu er skylda þvíannars getum við ekki haldið huga
okkar sterkum og skýrum. Búdda
Auðunn
Jónsson