Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.02.2014, Blaðsíða 19
Af helstu borgum
Bandaríkjanna er
Philadelphia e.t.v. sú
sem síst kemur upp í
hugann sem áfanga-
staður í sumarfríinu.
En einmitt þess vegna
er hún ódýrari en flestar hinna borganna og ekki eins mettuð
af ferðaþjónustutilboðum. Þarna blómstrar hins vegar menn-
ing og nýlega var hið sögufræga Barnes Foundation-
listaverkasafn fært í nýtt húsnæði í miðbæ Philadelphiu. Þar
er því heilmikið að skoða á tiltölulega litlu svæði; við Avenue
of the Arts eru ýmiss konar söfn, t.d. tónlistarsafn og
skemmtilegt safn sem heitir Please Touch. Þá er leikhúslífið í
Philadelphia litskrúðugt og ekki slæmt að skella sér á leiksýn-
ingu þar. Inn á milli eru svo allavega skemmtilegir veitinga-
staðir og sjarmerandi krár.
PHILADELPHIA Stórborgin Buenos Aires í Arg-
entínu er oft kölluð „París Suð-
ur-Ameríku“. Hvað er hægt að
gera þar? Jú, dansa tangó, borða,
versla og svo dansa aðeins meiri
tangó. Buenos Aires er heims-
borg, uppfull af sögufrægum
stöðum, fjölbreyttum söfnum og
iðandi næturlífi. Eitt safnanna er tileinkað Evu Perón, þar
sem hægt er að skoða muni úr hennar eigu og glæsilegan
fatnað forsetafrúarinnar sálugu. Rómansk-amerískri list
eru gerð góð skil í Museum of Latin American Art en þar
má sjá verk eftir Fridu Kahlo, Diego Rivera og fleiri. Það er
einfaldlega allt sem hugurinn girnist í Buenos Aires. Önnur
góð ástæða fyrir að fara þangað í ár er að gistináttaverð
hefur lækkað um 8% frá því í fyrra. BudgetTravel mælir
með Hotel Boutique Racó de Buenos Aires sem stendur
örlítið fyrir utan borgina en nálægt jarðlestastöð, gistingin
kostar frá um 7.500 kr. nóttin.
BUENOS AIRES
SEÚL
Í höfuðborg Suður-Kóreu, Seúl,
er iðandi bræðingur menningar
og popptísku. Um þessar mundir
er K-popp allsráðandi í borginni
svo ef þú ert aðdáandi Gangnam
Style er þetta rétti tíminn til að
heimsækja Seúl. Að auki hefur
hótelgisting þar lækkað um 9% í
verði frá síðasta ári. Saga borgarinnar er litrík og merkar bygg-
ingar nánast á hverju götuhorni. Gamall byggingarstíll er enn
við lýði í Bukchon Hanok-hverfinu og um leið og ferðamenn
eru hvattir til að skoða það eru þeir beðnir að fara hljóðlega
um göturnar þegar þeir skoða lágreist húsin, til að virða frið-
helgi íbúanna. Vandað handverk er stolt Kóreubúa og er bæði
hægt að sjá slíkt á Han Sangsu Embroidery-safninu og fá tveggja
klukkutíma kennslu í útsaumi. En hún fer fram á kóresku svo
það er vissara að læra dálítið í málinu áður en ferðalagið hefst.
Suður-Afríka er heldur betur vinsæll áfanga-
staður en í ár hefur orðið 8% lækkun á hót-
elgistingu í landinu. Það er því tilvalið að
drífa sig loksins í safaríferð eða bara
hanga með mörgæsunum sem rölta
frjálsar um Boulders Beach í Höfðaborg.
Strendurnar þar eru rómaðar; vest-
anmegin er Atlantshafið með fallegum sól-
setrum og góðum sólbaðsströndum, aust-
anmegin er Indlandshafið sem er tilvalið til
sunds eða brimbrettaiðkunar. Jóhann-
esarborg er svo að sjálfsögðu sögufræg og
hægt að skoða þar safn um Nelson Man-
dela og aðskilnaðartímabilið. Vefsíðan mælir
með Parliament Hotel sem er á öruggu svæði í
Jóhannesarborg og er morgunverður innifalinn
í gistingunni sem kostar frá um 7.700 kr. nóttin.AFP
9.2. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
Þessi eyja í Karíbahafinu er sann-
kölluð sumarleyfisparadís og er
þar að finna fjölmarga dvalarstaði
þar sem allt er innifalið, en verðlagn-
ingin samt lægri en á þeim sól-
arstöðum sem hafa verið hvað vin-
sælastir undanfarin misseri. Þarna er
þó engu minni sól, sandur eða sjór.
Tveggja manna herbergi á fimm stjörnu hóteli getur verið frá um
25.000 krónum nóttin en þeir sem velja fábrotnari gististaði ættu að
leita fyrir sér í gamla sjávarþorpinu Las Terranas, þar er verðlag enn
lágt, strendurnar hreinar, sjórinn tær og ekki of margt fólk. Hægt er
að skoða náttúrulífið á eynni í Los Haitises-þjóðgarðinum og síst er
verra að skoða eyjuna með því að leigja kajak og róa um skipa-
skurðina og vötnin sem prýða hana.
DÓMINÍSKA LÝÐVELDIÐ
JÓHANNESARBORG
Suðurlandsbraut 12 l 108 Reykjavík l S. 557-5880 l kruska@kruska.is l kruska.is
SENDUM Í FYRIRTÆKI OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ 11-21
Á Krúsku færðu
yndislegan og
heilsusamlegan
mat.
Opið frá 11-21
alla virka
daga