Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.02.2014, Blaðsíða 34
gerða að það er engu líkara en spilari
leiksins sé kominn í flugstjórasæti geim-
skipsins, þar sem hann mætir óvinum sín-
um og hættum,“ sagði í tilkynningu frá
CCP þegar leikurinn var kynntur árið
2013.
Það sem er merkilegt við Oculus-
gleraugun er eftirvæntingin eftir þeim.
Þau eru ekki komin í búðir. Þrátt fyrir það
eru þau margverðlaunuð og verðlaunin á
CES er enn ein rósin í hnappagat Oculus.
Þeir blaðamenn sem hafa fengið að prófa
hafa allir hrifist svo mikið af þessari tækni
að úti um allt internet er hrós og mikil gíf-
uryrði um ágæti þeirra. Eftirvæntingin er
nú þegar orðin mikil hjá væntanlegum
kaupendum og er talað um að samspil
Oculus og CCP muni skila fyrirtækjunum
báðum milljónum dollara. Ekki minnkaði
eftirspurnin og lofið á gleraugun
eftir hátíðina þar sem al-
menningur fékk að
prófa.
Hilmar sjálfur
orðinn
spenntur
Hilmar Veigar
Pétursson, fram-
kvæmdastjóri
CCP, var stadd-
ur á CES-
sýningunni og
var tekinn tali af
tæknivefsíðum og
tækniblöðum. „EVE:
Valkyrie byrjaði sem
þróunarverkefni hjá
nokkrum starfs-
mönnum CCP,
eitthvað sem þá
langaði til að
O
culus-töluvleikjagleraugnanna
er beðið með gríðarlegri eft-
irvæntingu. Gleraugun eru
sett á og tölvuleikurinn birtist
nánast lifandi fyrir framan spilarann. Þau
eru ekki enn komin í búðir þrátt fyrir að
vera nánast tilbúin. Stefnt er á að þau
komi í búðarhillur seint á þessu ári eða
snemma á því næsta. Í desember safnaði
Oculus VR, framleiðandi gleraugnanna, 75
milljónum dollara í hlutabréfaútboði, rúm-
lega níu milljörðum króna þegar nýjasta
útgáfa af þessu undratæki var kynnt.
Vandamálið við þrívíddargleraugu hefur
verið að fólk verður hreinlega veikt og
kastar upp. Nýjasta útgáfan af Oculus sem
kynnt var á CES-hátíðinni í Las Vegas í
janúar miðar að því að gera hreyfingar
eðlilegri. Allir vildu prófa og allir vildu
kaupa. Biðröð var eftir að fá að setjast í
stólinn og prófa.
Framleiðendur Oculus vilja hinsvegar
bíða og koma með fullkomna vöru á mark-
að en ekki eitthvað sem er alltaf að bila,
hvað þá að láta tölvuleikjaspilara vera að
kasta sífellt upp. Íslenska tölvuleikjafyr-
irtækið CCP hefur aðstoðað við gerð gler-
augnanna með leiknum EVE: Valkyrie sem
verður fyrstu persónu flugleikur. Leikurinn
byggist á nýrri tækni á sviði sýndarveru-
leika þar sem spilurum er gefinn kostur á
að gerast flugmenn í geimskipum í EVE-
heiminum. Er markmiðið að sá er spilar
leikinn finnist að hann sé í raun og veru
að taka þátt í bardaganum.
Fjárfesting sem skilar sér
„EVE: Valkyrie er hraður og óvæginn þar
sem spilarar eigast við í skotbardögum.
Sýndarveruleikinn sem leikjahönnun EVE:
Valkyrie byggist á gerir upplifunina ein-
staklega raunverulega og þannig úr garði
gera. Leiksins er nú þegar beðið með mik-
illi eftirvæntingu – og var farið að gera
það löngu áður en við fórum að tala um
hann. Við höfum stór plön fyrir EVE:
Valkyrie og ég get ekki beðið eftir því að
geta sagt ykkur meira í lok árs,“ var haft
eftir Hilmari.
CCP réði Owen O’Brian til að stýra
framleiðslu og þróun EVE: Valkyrie. Mun
O’Brian starfa á Newcastle-skrifstofu fyr-
irtækisins, en hann er með áralanga
reynslu frá tölvuleikjafyrirtækinu DICE í
Svíþjóð, sem er í eigu Electronic Arts.
O’Brian stýrði meðal annars framleiðslu á
leiknum Mirror’s Edge, en það var fyrstu
persónu hasarleikur.
Safnaði milljón á 36
klukkustundum
Markmið Oculus er að gleraugun verði
ekki dýr fyrir tölvuleikjaspilara. Hug-
myndin að baki þrvívíddargleraugunum er
komin frá ungum tölvusnillingi að nafni
Palmer Luckey sem vildi gera þrívídd-
argleraugu sem væri betri en önnur sem
væru fyrir á markaðnum. Einhver sem
myndu virka með nýjustu tölvuleikjunum
og væru ódýr. Hugmyndi Luckey var
strax vel tekið og tók einungis 36 klukku-
tíma að safna milljón dollurum gegnum
hópfjármögnunarsíðuna Kickstarter þegar
hugmyndin var kynnt. Alls söfnuðust 2,4
milljónir dollara til að koma þróun gler-
augnanna af stað.
Gleraugun eru með tvo sjö tomma skjái
og hefur hönnun þeirra einnig fengið verð-
skuldaða athygli. Þau þykja nokkuð töff.
Sjónsviðið er 90° lóðrétt og 110° lárétt
þannig að ekki er mikill munur á gleraug-
unum og sjónsviði mannsins. Stefnt er á
að gleraugun verði með 1.080 punkta upp-
lausn.
Gestir á CES-sýningunni
með Oculus-gleraugun
að spila EVE: Valkyrie.
AFP
Skjáskot úr EVE: Valkyrie.
Sýnt hvernig
leikjaspilari sér í
Oculus-
gleraugunum.
OCULUS-ÞRÍVÍDDARGLERAUGU VALIN BESTA VÆNTANLEGA TÆKNINÝJUNG Á STÆRSTU RAFTÆKJAHÁTÍÐ HEIMS
Hönnuð í kringum EVE online
Á RAFTÆKJASÝNINGUNNI CES Í LAS VEGAS FENGU OCULUS-GLERAUGUN VERÐLAUN SEM BESTA VÆNTANLEGA TÆKIÐ. ÞRÁTT FYRIR AÐ VERA EKKI
KOMIN ÚT ER OCULUS NÚ ÞEGAR ORÐIN MARGVERÐLAUNUÐ GRÆJA ENDA MUNU ÞAU BREYTA LEIKJASPILUN TIL FRAMTÍÐAR. GESTIR OG GANG-
ANDI GÁTU PRÓFAÐ TÆKIÐ Á SÝNINGUNNI OG ÞAR VAR EVE ONLINE-LEIKURINN NOTAÐUR TIL SPILUNAR. BIÐRÖÐ MYNDAÐIST VIÐ BÁS OCULUS.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Gler-
augun hafa
bæði vakið
athygli fyrir gæði
en einnig hönnun og
hversu þægilegt það er
að vera með þau
á sér.
*Græjur og tækniVonir eru bundnar við að nýr forstjóri tæknirisans Microsoft nái að bæta hag fyrirtækisins »36