Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.02.2014, Blaðsíða 59
9.2. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 59
LÁRÉTT
1. Er hjá honum ljár og smíðaverkfæri? (7)
4. Æðislegt er það sem á að ferja í burtu. (7)
8. Í vanda færi mig frá í stað á Reykjanesi. (8)
9. Fern úr innkaupaferð sjá um verslunina. (8)
11. Skipun á undan tali. (9)
12. Heimsk og velstæð fá A til að verða full af sorg. (8)
13. Hest og tarf sá nægja til að skapa gleði. (12)
15. Alfagur getur breyst í svað. (7)
17. Ágiskun dýrs. (4)
19. Númer inniheldur líkamshluta sem sindrar. (7)
21. Mengaði brú einhvern veginn með vopninu. (10)
23. Blástur bóka birtist í bómullarvinnslutæki. (9)
25. Sjúk spila. Það er meira en hálfmerkilegt en samt tákn um
vanmátt. (14)
28. Djöfullegi staðurinn fyrir kindur er aðeins sektin. (7)
30. Þýski karlkyns greinirinn er líka ákveðinn á íslensku eins og
sést á húfuhlutanum. (5)
31. Málum með augnatillitum. (5)
32. Festa svipuð sverð. (9)
34. Tók feil í fyrra en er samt varanleg. (5)
35. Skrökvi áin um skepnurnar. (9)
36. Óra óþekkts ákærðir fyrir að vera óskoðaðir. (12)
37. Sá annir einhvern veginn hjá nískum mönnum. (7)
LÓÐRÉTT
1. Hérna sníkjudýr finnast með útlimi. (9)
2. Lemur sníkjudýr að endingu. (7)
3. Ná í kíló af smeðjuskapnum. Það er nostrið. (9)
4. Fyrir hálfþokkalegan kínverskan keisara óttist fugl (9)
5. Ást fær skotna. (9)
6. Virtar sjá kind með útfjólubláu ljósi sem er þar að sögn. (9)
7. Drekkur á landræmum. (6)
10. Þjálfast hestur einn sem yfirmaður. (11)
14. Megi taka úr geislameðferð fyrir ferðalag. (9)
16. „Hreyfi af hverju?“ er sagt. Út af afgirtu svæði. (7)
18. Sekt og neitanir skapa eldunartækið. (12)
20. Alvörugefinn sýnir vafa. (3)
22. Fyrningar. Þar úr koma glæringar. (10)
23. Slefspeldi sem verndar fyrir skít gefur okkur sýnishorn. (10)
24. Spennandi egnir mýri og áfengan drykk enn. (10)
26. Svíða rekald fyrir fiskmeti. (8)
27. Dæmdi brand og gaf upp áætlaðan prís. (8)
29. Við þann síðasta kvinna birtist næstum öll með löginn. (7)
33. Hefur undan þeim næsta. (5)
Fyrsta keppni nýs heimsmeistara
í skák vekur alltaf athygli. Sá „ný-
bakaði“ finnur yfirleitt hjá sér
ríka þörf til að sanna að hann sé
verðugur handhafi krúnunnar.
Þannig var það með Aljekin eftir
sigur í maraþoneinvíginu við
Capablanca í Buenos Aires 1927,
hann varði titilinn 1929 gegn
óverðugum áskoranda, Efim
Bogljubow, en síðan vann hann
mótin í San Remo 1930 og Bled
1931 með fáheyrðum yfirburðum.
Á fyrsta móti sem Spasskí tók
þátt í eftir að hafa velti Petrosjan
úr sessi vann hann glæsilega. Það
fór fram í San Juan í Púertó Ríkó
sumarið 1969.
Anatolí Karpov varð heims-
meistari vorið 1975 án þess að
tefla við Bobby Fischer. Hann var
keyrður áfram af knýjandi þörf til
að sanna sig og vann strax sigur á
sterku móti sem skipt var á milli
Portoroz og Ljubljana í Slóveníu.
Sem heimsmeistari byrjaði
Kasparov á því að skrifa bók um
einvígi nr. 2 við Karpov, nokkrum
vikum síðar tefldi hann stutt ein-
vígi við Jan Timman.
Ekki verður annað sagt en að
Magnúsi Carlsen hafi tekist vel
upp í sinni fyrstu prófraun sem
lauk í Zürich í vikunni. Þetta sex
manna skákmót hófst með stuttu
hraðskákmóti sem ákvarðaði töflu-
röð, síðan var tekið til við umferð
kappskáka og loks umferð at-
skáka. Kappskákirnar giltu tvöfalt
en þar hlaut Magnús 4 vinninga af
fimm og hafði nánast tryggt sér
sigur er atskákirnar hófust. En á
ýmsu gekk í kappskákahlutanum;
hann var t.d. með tapað tafl gegn
Nakamura í 3. umferð en slapp
með skrekkinn og náði sigri.
Nakamura hefur nýverið gefið út
þá yfirlýsingu að á næstu árum
verði hann hættulegasti andstæð-
ingur Magnúsar. Betri færi fá
menn varla gegn heimsmeistaran-
um og hann hlýtur að naga sig í
handarbökin fyrir klúðrið.
Í atskákunum voru Magnúsi
mislagðar hendur og fékk hann
aðeins 2 vinninga en það dugði til
sigurs. Lokaniðurstaðan varð
þessi:
1. Magnús Carlsen 10 v. 2. – 3.
Caruana og Aronjan 9 v. 4. Na-
kamura 7 ½ 5. Anand 5 v. 6. Gelf-
and 4 ½ v.
Skákin við Boris Gelfand var
fyrsta kappskák Magnúsar Carl-
sen sem heimsmeistara og hann
tefldi sem slíkur:
Magnús Carlsen – Boris Gelf-
and
Grünfelds-vörn
1. c4 g6 2. d4 Rf6 3. Rf3 Bg7 4.
g3 c6 5. Bg2 d5 6. Da4
Enn eitt dæmið um sjaldséða
leiki í byrjun tafls hjá Magnúsi.
Hér er oftast leikið 6. cxd5.
6. … O-O 7. O-O Rfd7 8. Dc2
Rf6 9. Bf4 Bf5 10. Db3 Db6
11. Rbd2 Re4 12. e3 Dxb3?!
Dálítið hæpið en erfitt er að
finna góða leiki, t.d. 12. … Da6 13.
Hfc1 ásamt –Bf1 við tækifæri.
13. axb3 Ra6 14. cxd5 cxd5 15.
g4!
Djarfur leikur sem hefur það að
markmiði að opna fyrir biskupinn
á g2.
15. … Bxg4 16. Rxe4 dxe4 17.
Rd2 f5 18. f3 e5!?
Geldur í sömu mynt en örugg-
ara var 18…. exf3 19. Rxf3 Had8
með jöfnu tafli.
19. dxe5 exf3 20. Rxf3 Hae8 21.
Ha5 Rb4 22. Rd4 b6 23. Hxa7
Bxe5 24. Bh6 Hf6 25. h3 Bh5
- Sjá stöðumynd -
26. Rc2!
Sannkallaður heimsmeistara-
leikur. Ef nú 26. … Rxc2 þá kem-
ur 27. Bd5+ Hfe6 28. Hc1! og
vinnur, t.d. 28. .. Rb4 29. Bxe6+
og 29. … Hxe6 strandar á 30.
Hc8+ og mátar.
26. … g5 27. Bxg5 Hg6
28. Hxf5 h6
Enn hangir riddarinn á c2, 28.
… Rxc2 er svarað með 29. Bd5+
Kh8 30. Hxe5! Hxe5 31. Ha8+
Kg7 31. Hg8 mát.
29. Bxh6 Hxh6 30. Rxb4 Bxb2
31. Rd5 Kh8 32. Hb7 Bd1 33. b4
Hg8 34. Re7 Hd8 35. Be4 Bf6 36.
Hxb6 Kg7 37. Hf2
- og Gelfand gafst upp.
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
SKÁK
Magnús Carlsen stóðst fyrstu prófraunina
Verðlaun eru veitt fyrir
rétta lausn krossgátunnar.
Senda skal þátttökuseð-
ilinn með nafni og heim-
ilisfangi ásamt úrlausnum í
umslagi merktu: Kross-
gáta Morgunblaðsins, Há-
degismóum 2, 110 Reykja-
vík. Frestur til að skila
úrlausn krossgátu 8. febr-
úar rennur út á hádegi 14.
febrúar. Vinningshafi
krossgátunnar 1. febrúar
er Helga Hjaltadóttir,
Nestúni 3, Hellu. Hlýtur
hún bókina Sem ég lá fyrir dauðanum eftir William
Faulkner í verðlaun. Uppheimar gefa út.
KROSSGÁTUVERÐLAUN
Nafn
Heimilisfang
Póstfang