Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.02.2014, Qupperneq 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.02.2014, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.2. 2014 Á árinu 2008 fór af stað umræða um lögmæti svokallaðs seðilgjalds, eða gjalds sem lagt er á hvers kyns kröf- ur og byggist á kostnaði við það að gefa út og sýsla með kröfuna. Til- kynningargjald er í raun annað nafn á sams konar gjaldi. Undanfari málsins er sá að í janúar það ár skil- aði starfshópur á vegum við- skiptaráðherra, sem þá var Björgvin G. Sigurðsson, af sér skýrslu um heimildir fjármála- fyrirtækja til gjald- töku. Lagði hóp- urinn til að gjöldin yrðu bönnuð eða fjármálafyr- irtækjum settar skorður við inn- heimtu þeirra. Í febrúar 2008 setti ráðherra fram til- mæli til fjármálafyrirtækja um að þeir myndu stilla gjaldinu í hóf. Í til- mælum ráðherra sagði meðal ann- ars: „Fjármálafyrirtækjum er óheimilt að innheimta seðilgjöld og sambærilegar fylgikröfur, sem sam- ið hefur verið um greiðslu á við neyt- endur, vegna krafna sem innheimtar eru fyrir kröfuhafa á grundvelli þjónustusamnings, nema að upp- fylltum neðangreindum skilyrðum: – Fjárhæð gjalds endurspegli raunkostnað við útsendingu seðla. – Neytendum standi til boða raun- hæfur gjaldfrjáls valkostur, svo sem að greiða með millifærslu. Haft skal til hliðsjónar að staðgreiðsla á starfsstöð fyrirtækis, ein og sér, telst ekki raunhæfur valkostur. – Neytendur fái reikning vegna viðskipta, lögum samkvæmt, á papp- ír eða rafrænt.“ Gjaldið sem innheimt er vegna út- gáfu krafna á sér þó enn stoð í lög- um, þrátt fyrir að afnám þeirra hafi ítrekað verið tekið upp á Alþingi. Krafa á hendur neytendum um að þeir greiði þessi gjöld byggist á 4. gr. innheimtureglugerðar frá 2009: „Hámarksfjárhæð innheimtukostn- aðar, m.a. innheimtuþóknun … tek- ur mið af þeim kostnaði sem kröfu- hafi verður fyrir vegna innheimtunnar og nauðsynlegur og hóflegur getur talist.“ Reglugerðin var sett til bráðabirgða eftir hrun og engar breytingar hafa verið gerðar. Það er kröfuhafans að ákvarða gjaldið og meta sjálfur hvað telst „nauðsynlegt og hóflegt.“ Tilkynningargjald er innheimt meðal annars til að borga bönkunum fyrir stofnun kröfu. Morgunblaðið/Golli Engin lög sem banna gjöldin Á vefsíðu Greiðslumiðlunar eru þrjátíu íþróttafélög talin upp sem eru viðskiptavinir fyrirtækisins, en greiðslukerfi þess er sérstaklega markaðs- sett fyrir íþróttafélög og fé- lagasamtök. Motus, eitt stærsta innheimtufyrirtæki landsins, er eigandi Greiðslu- miðlunar og sér því einnig um innheimtu gjalda sem fara í vanskil hjá íþróttafélögunum. Samkvæmt heimildum hafa íþróttafélögin þó fulla stjórn á því hvaða vanskilakröfur fara í innheimtu. Þar sem um tóm- stundir barna er að ræða er yfirleitt reynt að finna leið til að aðstoða foreldra sem ekki geta greitt á tilskildum tíma. Neytendur eru rukkaðir um tilkynningargjald vegna greiðsluseðla frá ýmsum fyrir- tækjum og stofnunum. Al- gengt er að upphæðin hlaupi á einhverjum hundraðköllum í hvert sinn. Þegar gjöldin, sem oft eru lögð á greiðsluseðla sem berast mánaðarlega eru lögð saman og skoðuð yfir heilt ár geta upphæðirnar orðið ansi háar. F oreldrar geta verið að greiða tugi þúsunda fyrir íþróttaiðkun og tóm- stundir barna sinna. Barnmargar fjölskyldur finna sérstaklega fyrir þessu. Ofan á gjöld sem greidd eru íþróttafélög- unum fyrir sjálfa iðkunina bætist svokallað tilkynningargjald. Mörg af stærstu íþróttafélögum landsins, þau sem hafa flesta iðkendur innan sinna raða, notast við sama greiðslukerfið, Nóra, til að taka við greiðslum for- eldra. Við hverja greiðslu sem innt er af hendi með greiðsluseðli í heimabanka bætast 390 krónur við. „Kjósi greiðandi æfingagjalda að fá greiðsluseðil í Nóra kerfinu er áskilið greiðslu- og umsýslugjald samkvæmt kynntum skilmálum þar um,“ segir Bjarni Þór Óskarsson, stjórnarmaður í Greiðslumiðlun, inntur eftir skýringum á gjaldtök- unni. Gjaldið er óháð upphæð reiknings Hann segir gjaldið leggjast á alla greiðsluseðla sem fara í gegnum Nóra kerfið enda fylgi kostnaður hverri einustu greiðslu. „Kostnaður- inn er að hluta aðkeypt þjónusta frá viðskiptabanka Greiðslumiðlunar og að hluta vegna umsýslu og þjónustu Greiðslumiðlunar, auk virð- isaukaskatts.“ Gjaldið sem lagt er á greiðslu- seðlana er fast og þannig óháð þeirri upphæð sem greidd er. For- eldri sem fékk reikning vegna frí- stunda barns gegnum greiðslugátt íþróttafélags fékk 7% álag á reikn- ing sinn vegna hins svokallaða til- kynningargjalds. Heildarupphæð reiknings var upphaflega 35.570 krónur. Að frádregnum 30.000 króna frístundastyrk stóð eftir reikningur til greiðslu að upphæð 5.570 krónur. Foreldrið valdi að fá greiðsluseðil í heimabanka en við það hækkaði heildarupphæð reikn- ingsins í 5.960 krónur. Innheimt tvisvar á ári Tökum dæmi af foreldri sem greið- ir fyrir íþróttaiðkun þriggja barna sem hvert stundar tvenns konar íþróttir. Vilji foreldri geta greitt fyrir iðkunina með því að fá greiðsluseðil í heimabanka þarf að greiða alls sex slíka á hvorri önn. Tilkynningargjaldið að upphæð 390 krónur er því greitt tólf sinnum yf- ir árið. Alls myndi upphæðin því nema 4.680 krónum á ári, bara í til- kynningargjald til Greiðslumiðlunar fyrir utan sjálf gjöldin fyrir iðk- unina. Tilkynningagjald er stytting á heitinu „tilkynningar- og greiðslu- gjald“ og kröfuhafinn ákvarðar upphæð þess. Ef greiðandi kröfu vill skipta greiðslum í fleiri en einn hluta, eins og algengt er að for- eldrar geri með gjöld fyrir tóm- stundir og íþróttir, þarf að greiða tilkynningargjald fyrir hverja greiðslu. Sé kröfunni skipt í þrjár greiðslur kostar það alls 1.170 krón- ur. Íþróttafélögin greiða hóflegt gjald fyrir leigu á greiðsluþjón- ustukerfinu Nóra, eða rúmar 10 þúsund krónur á mánuði. Í staðinn losna þau við kostnað sem áður hlaust af því að sýsla sjálf með allar greiðslur og sjá um innheimtu. Hins vegar greiða foreldrar aukalega til Greiðslumiðlunar í formi tilkynning- argjaldsins svo segja má að kostn- aðurinn hafi einfaldlega færst til. Foreldrar sem greiða fyrir íþróttaiðkun barna sinna geta valið hvort þeir greiða með kreditkorti eða fá greiðsluseðil. Kortagreiðslur kosta líka en þar er ekki rukkað fyrir hverja greiðslu líkt og ef greiðsluseðill er valinn. Foreldrar hafa þó í mörgum til- vikum val um þriðja kostinn, að greiða beint inn á reikning íþrótta- félags og setja upplýsingar í skýr- ingu með millifærslunni. Forsvars- menn nokkurra íþróttafélaga sem blaðamaður ræddi við sögðust jafn- an taka því vel ef foreldrar vildu sleppa við gjöld vegna greiðsluseðla og greiða beint. Flestir geta nú valið að greiða rafrænt fyrir íþróttaiðkun barna sinna með greiðslugátt á heimasíðu viðkomandi íþróttafélags, sama hver íþróttin er. En það er þó ekki ókeypis að velja þá leið að fá greiðsluseðil í heimabanka. Íþróttafélögin greiða fyrir aðganginn að greiðslugáttinni en foreldrar greiða fyrir greiðsluseðlana. Morgunblaðið/Árni Sæberg Borgað fyrir að fá að borga FJÖLDI ÍÞRÓTTAFÉLAGA NOTAST VIÐ GREIÐSLUÞJÓNUSTUNA NÓRI SEM REKIN ER AF GREIÐSLUMIÐLUN EHF. Í EIGU INN- HEIMTUFYRIRTÆKISINS MOTUS. FYRIR HVERN EINASTA GREIÐSLUSEÐIL SEM SENDUR ER ÚT Á VEGUM ÍÞRÓTTAFÉLAGS SEM NOTAR NÓRA RUKKAR GREIÐSLUMIÐLUN FAST TILKYNNINGARGJALD AÐ UPPHÆÐ 390 KRÓNUR. VILJI FORELDRAR SKIPTA GREIÐSLUM UPP MARGFALDAST GJALDIÐ. TILKYNNINGARGJALD, SEÐILGJALD OG ÚTSKRIFTARGJALD ERU ALLT NÖFN Á ÞVÍ GJALDI SEM TEKIÐ ER FYRIR ÞAÐ AÐ FÁ AÐ GREIÐA FYRIR TILTEKNA ÞJÓNUSTU Í HEIMABANKA EÐA GEGN- UM GREIÐSLUGÁTT, ÓHÁÐ UPPHÆÐ REIKNINGS OG ÞVÍ HVORT HANN ER GEFINN ÚT EINGÖNGU RAFRÆNT EÐA EKKI. HUNDRAÐKALLAR SEM SAFNAST UPP * Að borga reikninga kostar sitt. En þá á eftir að taka með íreikninginn að það þarf að borga fyrir að fá að borgareikninga. Bankinn fær sitt og kröfuhafinn líka. ÞjóðmálEYRÚN MAGNÚSDÓTTIR eyrun@mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.