Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.02.2014, Page 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.02.2014, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.2. 2014 Heilsa og hreyfing „Krossstig flokka sumir undir fallega hneigingu og ballerínur eru sérstaklega duglegar við þetta,“ segir Fannar Kar- vel, íþróttafræðingur hjá Spörtu heilsurækt. „Stóri rassvöðvinn sem við notum flest sem hlífðarpúða milli setbeina og stólsins nýtist vel í þessari æfingu og þið munið vel eftir mér og þessari æf- ingu nokkra daga eftir að þið hefjist handa.“ Æfingin reynir mest á rassvöðva en tekur einnig á lærum, baki og kálfum að sögn Fannars. Kláraðu annan fótinn í einu og gerðu a.m.k. 10-20 endur- tekningar á hvorn fót í hvert sinn og endurtaktu það 1-3 sinnum. „Þetta er einnig hin fínasta jafnvægis- æfing, semsagt margar flugur í einu höggi!“ ÆFING VIKUNNAR Krossstig 1Stattu upprétt/-ur með axlabreidd á milli fóta. 2Stígðu með vinstri fót afturfyrir þann hægri ogreyndu að tylla honum í gólfið nærri því við hliðina á þeim hægri, ekki fara langt aftur á bak. 3Beygðu þig eins vel í hnjám og þú mögulegagetur og passaðu þig á að beygja bakið ekki mikið. Komdu aftur í grunnstöðu. Morgunblaðið/Rósa Braga V innufíkn er frábrugðin annarri fíkn að mati Hildar þar sem ekki er um að ræða neina beina efnisnotkun sem hægt er að fjarlægja úr lífi fólks. Hildur segir algengt að vinnufíklar leiti sér ráðgjafar vegna afleiðinga vinnufíkn- arinnar en ekki vegna sjálfrar vinnufíkn- arinnar. „Þessi fíkn er mjög oft fal- in þar sem þetta snýst um að gera mikið af einhverju sem annars telst fullkomlega eðlilegt að gera. Vinnufíkn er ekki ólögleg og því er ekki sama fé- lagslega pressa á fólk til að leita sér hjálpar og þegar um annars konar fíkn er að ræða. Margir vinnufíklar eru í afneitun og þeir eiga líka erfitt með að finna tíma til að leita sér ráðgjafar vegna tímaskorts, þeir eru nefnilega alltaf í vinnunni,“ segir Hildur. Um 22% starfsmanna eru með mikla vinnu- fíkn hér á landi samkvæmt rannsókninni en það er sambærilegt við nágrannalönd okkar. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að vinnufíkn sé neikvæð fyrir vinnustaðinn vegna þess hve miklar líkur eru á því að vinnufíklar kulni í starfi. Ungar konur líklegastar Kulnun í starfi er tilfinningalegt, hugarfars- legt og líkamlegt ástand sem lýsir sér í hjálp- arleysi og vonleysi starfsmanna. Ungar konur í sölu- og afgreiðslustörfum eru líklegastar til að kulna í starfi samkvæmt niðurstöðum úr rannsókn Capacent. „Kulnaðir starfsmenn eru oft aðframkomnir af þreytu og afkasta þ.a.l. minna í vinnunni. Þeir eru oft þjakaðir af langvarandi streitu og telja sig ekki metna að verðleikum. Slíkir starfsmenn geta verið mjög móðgunargjarnir og jafnvel kaldhæðnir,“ segir Hildur. Ástæður fyrir kulnun í starfi geta verið af margvíslegum toga að hennar mati. Dæmi um vinnutengdar orsakir eru t.d. takmörkuð stjórn í vinnunni, lítið um viðurkenningu fyrir vel unnin störf, illa skilgreindar eða jafnvel of miklar kröfur, einhæf störf og of mikil pressa. Félagslega einangraðir vinnufíklar Setningin „ég kemst því miður ekki, ég þarf að vinna“ er algeng setning hjá vinnufíklum, segir Hildur. Hún segir algengt að vinnufíklar eigi sér ekki gott félagslíf fyrir utan vinnuna. „Ólíkt því sem kannski margir halda eru bestu starfsmennirnir þeir sem ná að halda jafnvægi á milli vinnu og einkalífs. Vinnufíklar nota oft vinnuna sem afsökun til að sleppa frá félagslegum skyldum sínum á meðan helgaðir starfsmenn eiga oft gott fé- lagslíf utan vinnunnar. Helgaðir starfsmenn vinna oft mikið en passa betur upp á jafnvægi milli vinnu og einkalífs en vinnufíklar,“ segir Hildur. Rannsóknin sýndi fram á að eingöngu 18,9% vinnufíkla finnst alltaf skemmtilegt í vinnunni, sem er mun lægra hlutfall en hjá þeim starfsmönnum sem eru helgaðir starfs- menn. Vinnufíklar telja sig ekki fá næga við- urkenningu fyrir vel unnin störf og eru frekar ósáttir við stjórnun og samstarfsfélaga sína en aðrir. Þá eiga vinnufíklar mun erfiðara með að hætta að hugsa um vinnuna eftir að vinnu- tíma lýkur og þeir verða oftar örmagna af þreytu. „ÉG KEMST ÞVÍ MIÐUR EKKI, ÉG ÞARF AÐ VINNA“ ER ALGENG SETNING HJÁ FÓLKI SEM ER HÁÐ VINNUNNI Vinnufíklar eru ekki endilega bestu starfsmennirnir Bestu starfsmennirnir eru þeir sem ná að halda jafnvægi milli vinnu og einkalífs segir Hildur Jóna vinnusálfræðingur og ráðgjafi hjá Capacent. Morgunblaðið/Rósa Braga VINNUFÍKLAR ERU EKKI ENDILEGA BESTU STARFSMENNIRNIR SAMKVÆMT NÝRRI RANNSÓKN CAPACENT Á ÍSLENSKUM VINNUMARKAÐI. VINNUSÁL- FRÆÐINGURINN HILDUR JÓNA BERGÞÓRSDÓTTIR HJÁLPAR OKKUR AÐ BERA KENNSL Á VINNUFÍKN OG GEFUR GÓÐ RÁÐ TIL AÐ KOMA Í VEG FYRIR KULNUN Í STARFI. Jón Heiðar Gunnarsson jonheidar@mbl.is Hildur Jóna Bergþórsdóttir Flestir vita að gúrkur hafa hreinsandi áhrif á húðina en færri vita að þær geta komið í veg fyrir and- remmu með því að drepa bakteríur í munni. Ef þú ert andfúl(l) þá er gott að þrýsta gúrkusneið upp í efri góm með tungunni í 30 sekúndur til að hreinsa munninn. Gúrkur eru ekki eingöngu vatn eins og margir halda því þar má finna ýmis efni á borð við A-, B- og C-vítamín, kalk og járn. Gúrka gegn andremmu … taka vinnuna með sér heim. … mæta veikir í vinnuna. … vinna um helgar. … vera kulnaðir í starfi. … vera undir mikilli streitu og álagi. … hafa lítið jafnvægi á milli vinnu og einkalífs. … vera óánægðir með stjórnun á vinnustað. Þeir sem eru vinnufíklar eru líklegir til að:  Byrjaðu daginn rólega og ekki sofa fram á síðustu mínútu. Skapaðu hefð á morgnana sem stuðlar að vellíðan, t.d. hugleiðsla, teygjur o.s.frv.  Borðaðu hollt og reglulega, hreyfðu þig og tryggðu þér góðan nætursvefn.  Segðu nei ef þú ert beðin(n) um að taka að þér verkefni í eða utan vinnu sem þú sérð ekki fram á að geta unnið, þannig skapast tími til að vinna að því sem þig langar til að gera og ert góð(ur) í.  Slökktu á símanum, tölvupóstinum eða öðrum samfélagsmiðlum sem taka óþarfa tíma þó ekki sé nema í smástund á hverjum degi.  Gerðu eitthvað skapandi og skemmti- legt, málaðu mynd, farðu í göngutúr með myndavélina, farðu út að róla. Góð ráð til að fyrirbyggja kulnun í starfi

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.