Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.02.2014, Page 27

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.02.2014, Page 27
É g held að stílinn endurspegli að ég hafi alltaf haft gaman af gömlum hlutum og ég vil helst að hlutir hafi sál og sögu. En á sama tíma er heimili ekki safn. Fullkomið heimili fyrir mér er heimili sem endurspeglar íbúana og þróast með þeim,“ segir Linda sem er fatahönnuður að mennt og hefur mikinn áhuga á innanhússhönnun og tísku. Linda og Rúnar, sem eiga synina Ísak og Nóel, segja mikilvægt að heimilið sé ákveðinn rammi utan um heimilislífið og að þar líði öllum vel. „Ég vil að heimilið endurspegli okkur og uppfylli þarfir okkar ásamt því auðvitað að það sé fallegt umhverfi sem gaman er að vera í.“ Linda verslar mikið til heimilisins á mörkuðum erlendis og segir jafnframt að fólk þurfi að vera með- vitaðra um það sem það kaupir og gera kröfur um að hlutirnir endist. „Það fara allt of miklar auðlindir í það að framleiða dót sem fólk hendir svo bara. Þannig eyð- ast upp auðlindirnar okkar og jörðin fyllist af rusli.“ Linda og Rúnar fjárfestu í íbúðinni árið 2005 og breyttu öllu skipulagi í samráði við arkitekt og bættu við svölum. Þau rifu niður alla veggi þannig að íbúðin var meira en fokheld. Kvistina smíðuðu þau síðan á Baðherbergið er rúmgott og bjart. Herbergi Ísaks, fimm ára, er skemmtilega innréttað. Rúmfötin eru frá Ferm living. Stofan er hlýleg. Svefnsófinn er í miklu uppáhaldi hjá fjölskyldunni og þar kúra þau gjarnan saman við sjónvarpið. Rammi heimilislífsins LINDA JÓHANNSDÓTTIR OG RÚNAR KARL KRISTJÁNSSON GERÐU UPP FALLEGA RISÍBÚÐ Í HLÍÐUNUM. HEIMILIÐ ER EINSTAKLEGA PERSÓNULEGT OG BJART ENDA HAFA ÞAU MIKLA ÁSTRÍÐU FYRIR ÞVÍ AÐ GERA FALLEGT Í KRINGUM SIG. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is VIL HELST AÐ HLUTIR HAFI SÁL OG SÖGU íbúðina en þeir eru fimm talsins, enda íbúðin einkar björt. „Svalakvisturinn og eldhúsið er sennilega sá staður sem við erum mest á. Það besta við íbúðina okkar, fyrir utan alla gluggana, er hvað hún er opin og allir sjá alla,“ bætir Linda við að lokum. Hillan, sem er úr IKEA, var nýlega úðuð neonbleik. Iittala-vasarnir geyma hluta af listasafni Lindu. 9.2. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27 – fyrir lifandi heimili – OG D a l s b r a u t 1 • A k u r e y r i OP I Ð V i r k a d a g a k l 1 0 – 1 8 o g l a u g a r d a g a 1 1 - 1 6 E I T T S Í M ANÚME R 5 5 8 1 1 0 0 VERTU MEÐ OKKUR Á KOMDU Í HÖLLINA EÐA HEIMSÓTTU OKKUR Á HUSGAGNAHOLLIN.IS RIALTO La-Z-boy sjónvarpssófi. Svart leður á slitflötum. 205 x 90 H:105 cm. 359.990 Fullt VeRð: 459.990 LA-Z-BOY RIALTO – SJÓNVARPSSÓFI

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.