Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.02.2014, Síða 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.02.2014, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.2. 2014 Matur og drykkir H ópurinn sem hittist þetta kvöld samanstendur af æskuvinkonum mínum og mökum þeirra en við stelpurnar erum úr Hólahverfinu í Breiðholti,“ segir Hrefna Lind Ásgeirsdóttir sem efndi til matarboðs föstudagskvöld eitt í austurbæ Reykjavíkur. Þemað var steik og frábært meðlæti. „Við hittumst um það bil 6 sinnum á ári og reynum að miða við að sem flestir geti mætt en það er aldrei alveg þannig því við erum svo mörg. Við miðum við að hafa alltaf eitt- hvert þema. Þannig höfum verið með ind- verskt þema, asískt eldhús, tapas, sérstakt jólaþema og núna langaði okkur í steik svo að það var steikarþema. Allir útbúa einhvern rétt eða meðlæti þannig að þetta er ekki mikið mál. Við erum í matarklúbbi og hittumst svona annan hvern mánuð eða bara þegar flestir sjá sér fært að mæta og við reynum að rótera á milli hvar við hittumst.“ Hópurinn ákveður hvað hver útbýr með því að ráðfæra sig á Facebook-síðu sem hann heldur úti í kringum matarklúbbinn. Meðlætið var einkar veglegt þetta kvöld og margar nýj- ungar á boðstólum. „Ég held að við höfum toppað okkur í þetta skiptið og þetta var frábært kvöld. Kjötið var svo vel heppnað og safaríkt og það lögðu allir sig hundrað prósent fram við meðlætið og gerðu eitthvað svolítið öðruvísi. Ég og mað- urinn minn vorum sammála um að af mörgu góðu hefði aspasinn verið bestur enda klár- aðist hann fyrst. Við sjálf vorum með kúrbíts- franskar og þá má sérstaklega nefna að Dag- mar vinkona mín kom með sósu sem er uppskrift frá tengdamóður hennar, svokölluð Stekkjarbólssósa, sem er eins konar ættarsósa þeirra. Hún passaði mjög vel með frönskunum og öllu grænmetinu og kom á óvart því hráefnið er ekki eitthvað sem manni dettur í hug að setja saman.“ Chimicurry-sósan er bragðmikil steikarsósa sem passaði vel með kjötinu og auð- vitað bernaise-sósan. Pitsur og súpur klikka ekki með stóra hópa Hrefna Lind er alla jafna dugleg að halda mat- arboð. Fyrir utan þennan hóp býður hún gjarn- an vinum og fjölskyldu í mat og þá ekki endi- lega flókið borðhald heldur heimilismat og pitsur eru þar vinsælar. Hún hefur skoðað mat- reiðslubækur og horft á matreiðsluþætti frá því að hún var krakki en er þó ekki á því að fara mikið eftir uppskriftum heldur notar hún það sem hún veit sem grunn í að gera eitthvað upp úr sjálfri sér. „Þegar ég er með mjög stóra hópa er ég allt- af með súpu og alltaf þá sömu, beikon- og tóm- atsúpu því hún klikkar aldrei. Heimatilbúnar pitsur er líka svo þægilegt að útbúa því maður getur undirbúið allt áður og á þá ekkert eftir nema skella þeim í ofninn. Ég lærði það af móður minni að vera alltaf með matinn tilbúinn á réttum tíma þannig að maður geti sinnt gest- unum. Það er því líka sniðugt að hafa til dæmis mexíkóska veislu þar sem allt þarf ekki að vera hundrað prósent heitt. Við í matarklúbbnum er- um þó yfirleitt með matinn hálftilbúinn þegar við mætum og klárum eldamennskuna í eldhús- inu þar sem boðið er haldið.“ Vinkonurnar úr Hólahverfinu ásamt eiginmönnum, frá vinstri: Dagmar Ýr Sigurjónsdóttir, Eva Björk Sigurjónsdóttir, Hildur Guðbjörnsdóttir, Selma Gunnarsdóttir, Gunnella Hólmarsdóttir, Bjarni Már Magnússon, Hrefna Lind Ásgeirsdóttir, Eðvarð Atli Birgisson, Birgir Steinarsson, Atli Már Sigurðsson, Fjölnir Freyr Haraldsson, Björn Ingvarsson og Þórhalla Austmann Harðardóttir. Morgunblaðið/Ómar ALLS KYNS SÓSUR OG GÓÐGÆTI Meðlætisveisla með steik HANN ER STÓR MATARKLÚBBURINN SEM HITTIST FÖSTUDAGSKVÖLD EITT Í LAUGALÆKJARHVERFINU. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Hrefna Lind stingur steikunum inn í ofninn. Það er jafnan mikil stemning í eldhúsinu hjá hópnum þar sem lögð er lokahönd á eldamennskuna. Húsbóndinn; Bjarni Már Magnússon opnar rauðvínsflöskurnar. *Ég held að við höfum toppað okkur í þetta skiptið ogþetta var frábært kvöld. Kjötið var svo vel heppnaðog safaríkt og það lögðu allir sig hundrað prósent fram við meðlætið og gerðu eitthvað svolítið öðruvísi. 

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.