Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.02.2014, Side 48

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.02.2014, Side 48
48 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.2. 2014 líklega hvor annan upp. Gunnlaugur er snill- ingur.“ Snjall Íkorni Þegar formið lá fyrir beið Ívar Páll ekki boðanna, gerði beinagrind að handriti og safnaði saman lögum sem hann átti, samdi við þau nýja texta í anda verksins, og bætti við fleiri lögum. Tók upp demó. Því næst hringdi hann í Stefán Örn Gunnlaugsson, tónlistarmann og upptökustjóra. Þann er hefur aukasjálfið Íkorni. „Ég þekkti Stefán ekkert á þessum tíma og veit ekki hvað hann hefur haldið. Ég var blaðamaður á Morg- unblaðinu og kynnti mig þannig. Eflaust hefði ég alveg eins getað sagst vera fótaað- gerðafræðingur á Sauðárkróki.“ Hann hlær. Eftir að hafa kynnt sér efnið var Stefán til í samstarf, Ívari Páli til ómældrar gleði. „Stefán Örn er mesti tónlistarsnillingur sem ég hef komist í tæri við. Hann bjó til hljóð- heim og útsetti lögin áður en þau voru tekin upp með hljómsveit. Þetta var mikil törn, ég vaknaði oft klukkan fjögur eða fimm á morgnana og sinnti þessu áður en ég mætti í vinnuna á Morgunblaðinu.“ Þegar handritið og tónlistin voru tilbúin var næsta skref að koma verkinu á fram- færi. Ívar Páll komst snemma að þeirri nið- urstöðu að Revolution ætti meira erindi á erlendan markað en innlendan. Fyrir því eru einkum tvær ástæður. „Annars vegar er það stíllinn. Þetta er indie-tónlist sem höfð- ar til ákveðins markhóps og þess vegna er betra að vera á stóru markaðssvæði. Hins vegar er það umfangið. Verkið er stórt í sniðum og þar sem söngleikjamarkaðurinn er lítill hér heima er vænlegra að freista gæfunnar erlendis.“ Fyrst var stefnan sett á Lundúnir og fyrir atbeina Óskars Eiríkssonar, framleiðanda hjá Theater Mogul, komst Ívar Páll í sam- band við leikhúsmenn þar í borg og efnt var til smiðju, workshop, þar sem unnið var með verkið. Hann segir þá vinnu hafa verið ánægjulega og upplýsandi. Ólst upp við ást og frið Við nánari athugun komust Ívar Páll og fé- lagar að þeirri niðurstöðu að New York væri jafnvel ennþá hentugri markaður en Lund- únir. Var skónum þá stefnt þangað. Tónlistin úr Revolution hefur aðeins einu sinni verið flutt opinberlega en Eyþór Ingi Gunnlaugsson og Jana María Guðmunds- dóttir sungu fáein lög fyrir útvalda gesti á Kex hosteli síðastliðið sumar. Ívar Páll segir viðbrögðin hafa verið vonum framar. „Þetta var mjög ánægjuleg stund. Ég sá í andlitum gesta að þeir kunnu að meta það sem þeir heyrðu.“ Eitt er að semja söngleik, annað að frum- sýna hann í New York. Einhver gæti spurt hvort Ívar Páll sé brjálaður. „Ég myndi svara því játandi,“ segir hann kíminn. „Ég veit yfirleitt ekki hvar ég enda og ruglið tekur við. Ætli þetta eigi ekki ræt- ur í uppeldinu. Faðir minn er mikill hippi í eðli sínu og við systkinin ólumst upp við ást, frið, reykelsi og tarotspil. Pabbi er mikið á móti staðalmyndum um hlutverk kynjanna Alþjóðlega framleiðslufyrirtækiðTheater Mogul, sem er með höf-uðstöðvar í Reykjavík, er meðfram- leiðandi að sýningunni. Fyrirtækið er með skrifstofu í New York sem koma mun að ráðningu listrænna stjórnenda og leikara, auk þess að annast daglegan rekstur sýning- arinnar þegar þar að kemur. Óskar Eiríksson, framkvæmdastjóri Theater Mogul, segir verkefnið leggjast mjög vel í sig. Fyrir því eru einkum tvær ástæður. Í fyrsta lagi er vöntun á frumlegum söngleik af þessu tagi. „Menn hafa lengi tal- að um skort í nýju söngleikjaefni, bæði í New York og London. Það er eins og menn þori ekki að gera neitt nýtt. Einmitt þess vegna á Revolution mikla möguleika á því að vekja athygli. Ég er gríðarlega spenntur að sjá hvað verður úr þessu,“ segir Óskar. Í öðru lagi hefur áhugi á Íslandi sjaldan verið meiri í Bandaríkjunum. „Ég er nýkom- inn heim úr þriggja vikna ferð um Bandarík- in og man varla eftir öðrum eins áhuga á landi og þjóð. Við erum hálfgerðar baráttu- hetjur í hugum fólks vegna þess hvernig við höfum tekið á bankahruninu. Hvort sem það viðhorf er rétt eður ei. Fyrir vikið er mikið talað um okkur vestra og mikill áhugi á öllu sem er íslenskt. Svo er fólk vant því að frá- bær tónlist komi frá Íslandi, Björk, Sigurrós og Of Monsters and Men. Revolution gæti því varla komið inn í betra umhverfi. Þessi uppfærsla á eftir að kalla á mikla umfjöllun í pressunni.“ Óskar Eiríksson framleiðandi hjá Theater Mogul er gríðarlega spenntur fyrir verkefninu. Morgunblaðið/Eggert Á eftir að kalla á mikla umfjöllun PI PA R\ TB W A • SÍ A • 14 03 90 Skipuleggðu skrifstofuna með ritföngum frá Rekstrarlandi afsláttur a f öllum ritföngum 30% Hafið samband við sölumenn Rekstrarlands eða næsta útibú Olís. Rekstrarland er byggt á fyrrum rekstrarvörudeild Olís og er dótturfyrirtæki Olíuverzlunar Íslands hf.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.