Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.02.2014, Page 64

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.02.2014, Page 64
SUNNUDAGUR 9. FEBRÚAR 2014 Vodafone Góð samskipti bæta lífið H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA INTERNET 10 GB 50 GB 100 GB INTERNET 50 GB 150 GB INTERNET 100 GB 250 GB INTERNET 150 GB UM ALLT AÐ 400% GAGNAMAGN MIKLU MEIRA VIÐ HÖFUM AUKIÐ INNIFALIÐ ERLENT GAGNAMAGN Nánar á vodafone.is VERÐ HÆKKAR EKKI OG ÁSKRIFTARLEIÐIN UPPFÆRÐIST SJÁLFKRAFA 1. FEBRÚAR ER NÚ ER NÚ ER NÚ ER NÚ 500 GB INTERNET 250 GB ER NÚ Í gær skrifaði Hamborgarafabrikkan undir samning við Kringluna um opnun nýrrar Hamborgarafabrikku í Kringlunni á vormánuðum. Nýja Hamborg- arafabrikkan verður á slóðum gamla Hard Rock Café þar sem veitingastaðurinn Portið er starfræktur í dag. Það var stór dagur í lífi þeirra Fabrikkubræðra, Simma og Jóa, í gær því fyrir utan að innsigla samn- ing við Kringluna munu þeir félagar bjóða upp á fer- kantað kjöt. Frá opnun Hamborgarafabrikkunnar hefur brauðið verið ferkantað en kjötið hringlaga. Þetta ósamræmi hefur nú verið leiðrétt. Þeir félagar fóru skemmtilega leið til að kynna hornrétta máltíð. Fengu þeir bæjarstjóra Horn- arfjarðar, Ásgerði Gylfadóttur, til vígsluathafnar á Fabrikkunni og tók hún fyrsta bitann. Hornaleikarar úr Sinfóníuhljómsveit Íslands léku á horn sín og sér- stakur heiðursgestur var svo frændi framkvæmda- stjórans, maður að nafni William Horn. STÓR DAGUR HJÁ SIMMA OG JÓA HamBorgaraKringlan Fulltrúar Reita, Kringlunnar og Fabrikkunnar innsigluðu sam- starfið á Hamborgarafabrikkunni undir íslenskri tónlist. Morgunblaðið/Golli Ferkantaða kjötið var ekki eina frétt dags- ins því að á sama tíma var tilkynnt opnun nýrrar Fabrikku í Kringlunni. José Salvador Alvarenga, sem seg- ist hafa verið á reki um Kyrrahafið í 13 mánuði, mætti á blaðamanna- fund í vikunni og sagði heims- byggðinni sögu sína. Alvarenga dvelur nú á Marshall-eyjum en þangað rak hann á vélarlausum bát sínum. Hann er 37 ára gamall og frá El Salvador en fór á hákarlaveiðar frá smábæ í Mexíkó í desember 2012. Vonskuveður skall á og hann og fé- laga hans tók að reka á haf út. Sér- fræðingar hafa sagt að mögulegt sé að lifa ferð sem þessa af en aðrir trúa ekki sögu hans. Búið er að reikna út strauma hafsins og þeir standast. Á blaðamannafundinum kom fram að enn væri ekki hægt að hrekja sögu Alvarenga. Sjálfur segist Alvarenga hafa veitt sér til matar, m.a. skjaldbök- ur, fiska og fugla. Félaga hans hafi hins vegar ekki tekist að melta skjaldbökublóðið og hráa fiskinn og látist úr ofþornun. Hann hafi losað sig við líkið í hafið. Ættingjar mannsins vilja fá svör við ýmsum spurningum. Meðal annars af hverju hann hafi farið með Alvar- enga á veiðar því svo virðist sem þeir hafi ekki þekkst neitt. Alvar- enga þjáist enn af ofþornun en er á góðum batavegi. FURÐUR VERALDAR Saga Alvarenga José Salvador Alvarenga hefur verið á sjúkrahúsi á Marshall-eyjum frá því honum skolaði á land fyrir viku, í rifnum nærbuxum einum fata. AFP ÞRÍFARAR VIKUNNAR Ugur Tütüneker knattspyrnuþjálfari. Ari Kristinsson kvikmyndagerðarmaður. Eggert Þór Bernharðsson, prófessor við Háskóla Íslands.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.