Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.06.2014, Page 3
gamma er aðalstyrktaraðili Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Við erum stolt
af samstarfi okkar við hljómsveitina og ánægð með að geta tekið höndum
saman með ástríðufullu fagfólki um þetta mikilvæga starf.
www.gamma.is
Baksviðs með Sinfóníuhljómsveit Íslands� �
Mæðgurnar Inga Rós Ingólfsdóttir og Guðrún Hrund Harðardóttir eru samstíga í tónlistinni.
Guðrún Hrund:Maður hefur verið viðloðandi sveitina
alla tíð. Í Háskólabíói fékk ég að vera í fatahenginu og
hljóp svo inn á svið sem blómadama. Inga Rós: Einmitt,
það veitti þér auðvitað innsýn í þennan heim mjög
snemma. Guðrún Hrund: Já, þetta var dýrmætt.
Þekktar tónlistarfjölskyldur eru þó
nokkrar í tónlistarsögunni, bæði þegar
kemur að tónskáldum og flytjendum.
Í því sem stundum er kallað sígild tónlist
er Bach fjölskyldan án ef þekktasta
dæmið en tónlist Johanns Sebastian
Bach er reglulega að finna í efnisskrá
Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Ef tónlistarfjölskyldur fyrirfinnast á
Íslandi þá tilheyra þær Inga Rós
Ingólfsdóttir og Guðrún Hrund
Harðardóttir svo sannarlega einni slíkri
og báðar þekkja þær vel til verka
meistara Bach.
Þær mæðgur eiga strengina sameigin-
lega, strjúka strengi sellósins og
víólunnar sem líkt og faðmast bæði í
tónhæð og hljómi. Í góðu sinfónísku
tónverki er engin rödd mikilvægari en
önnur og í bestu tónverkunum finnst
hlustandanum jafnvel að ekki sé hægt
að hnika til einum einasta tóni, svo
fullkominn er tónheimurinn.