Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.06.2014, Blaðsíða 25
1.6. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25
Viðbættur sykur er orðinn of stór þáttur í mataræði margra. ÍBretlandi er viðbættur sykur 15 prósent af daglegum hitaein-ingum barna á aldrinum 11 til 18 ára að mati Matvælaeftirlits
Bretlands, National Diet and Nutrition Survey. Í manneldismark-
miðum frá Manneldisráði Íslands er hvatt
til þess að sykurneyslu sé stillt í hóf og ekki
komi meira en 10 prósent orkunnar úr fín-
unnum sykri. Miðað við sykurneyslu Ís-
lendinga má áætla að hér á landi sé neyslan
nokkuð umfram ráðlagða neyslu en Íslend-
ingar hafa lengið haldið Norðurlandameti í
sykurneyslu því hér er neysla sykurs tæp
48 kg á mann á ári. Norðmenn innbyrða
ekki nema rúm 30 kg af sykri á mann á ári.
Sykurneysla Ís-
lendinga er því
augljóslega of
mikil en til að
draga úr neysl-
unni þarf að gera
sér grein fyrir því
hvar sykurinn er að finna.
Sykur út á sykrað morgunkorn
Sykurinn leyninst víða og oft gera neytendur sér ekki grein fyrir því
hversu mikill sykur er í algengum vörum sem flestir neyta. Þannig geta
17 prósent af venjulegu kexi verið viðbættur sykur, þó svo kexið sé ekki
þakið súkkulaði eða sykurkremi. Í mörgu morgunkorni getur líka verið
mikill sykur eða allt upp í helmingur af þyngd morgunkornsins. Sumir
bæta svo enn meiri sykri út í morgunkornsskálina og morgunmaturinn
er þá orðinn lítið annað en sælgæti í skál með mjólk út á.
Í Bretlandi hefur verið tekið saman hvar neytendur fá mestan sykur í
daglegri neyslu sinni og ætti engum að koma á óvart að bæði sælgæti og
sykraðir drykkir tróna á toppnum en samanlagt fá Bretar 52 prósent af
öllum viðbættum sykri úr þessum tveimur flokkum. Í einu 100 g súkku-
laðistykki geta verið allt að 60 g af sykri og í sykruðum ávaxtasafa allt
að 10 g í hverjum 100 g. Næst á eftir kemur sætabrauð en þangað sækja
Bretar 20 prósent af daglegri sykurneyslu sinni. Í einni vínabrauðs-
lengju getur allt að helmingurinn verið sykur. Áfengi og mjólkurvörur
reka svo lestina en 11 prósent daglegs sykurs fá flestir Bretar úr áfengi
og 6 prósent úr jógúrt og öðrum mjólkurvörum. Catherine Collins, nær-
ingarfræðingur hjá breska Matvælaeftirlitinu, segir mikilvægt að fólk
geri sér grein fyrir því hversu mikill sykur er í algengum neysluvörum
og ráðleggur fólki að fá sér frekar banana en sælgæti til að sefa syk-
urþörfina.
Gífurlegt magn sykurs er í mörgum algengum neysluvörum sem Íslend-
ingar og aðrar þjóðir í kringum okkur neyta dagsdaglega.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
SYKUR Í
NEYSLUVÖRUM
Allt að helmingur
morgunkorns getur
verið sykur.
Fáir gera sér grein fyrir
magni sykurs í einum svala.
Fanney Hauksdóttir er 21 árs Seltirningur. Hún er stúd-
ent frá Menntaskólanum við Sund og stundar nám í heil-
brigðisverkfræði við Háskólann í Reykjavík. Var kjörin
kraftlyftingakona ársins í fyrra og íþróttamaður Gróttu
og íþróttakona Seltjarnarness. Þá varð hún Íslandsmeist-
ari í bekkpressu í janúar á þessu ári og heimsmeistari
unglinga í síðustu viku.
Gælunafn: Mig dreymdi alltaf um að eiga gælunafn þegar
ég var yngri, en hef bara verið kölluð Fanney.
Íþróttagrein: Kraftlyftingar
Hversu oft æfir þú á viku?Það er mjög mismunandi eftir
vikum. Ég reyni þó að lyfta að minnsta kosti 3-4 sinnum í
viku.
Hver er lykillinn að góðum árangri? Ég myndi segja að
samviskusemi og vinnusemi sé lykillinn að góðum árangri
í nánast hverju sem þú tekur þér fyrir hendur. Mér
finnst líka alltaf gott að setja mér raunhæf markmið
og vinna svo að hverju markmiði fyrir sig. Mark-
miðin þurfa ekki að vera stór hverju sinni, en þegar
nokkrum litlum markmiðum hefur verið náð er
jafnvel stór sigur kominn í hús.
Hvað ráðleggurðu fólki sem vill hreyfa sig meira?
Ég finn það sjálf að þegar ég hef góðan æf-
ingafélaga þá verður allt miklu betra. Það er
auðveldara að hætta við þegar þú æltar
hvort sem er bara einn á æfingu. Þá er
nauðsynlegt að finna eitthvað við sitt hæfi
og vera óhræddur við að prófa nýja hluti.
Hvernig er best að koma sér af stað?
Mér finnst gott að ákveða í byrjun vik-
unnar hvaða daga ég ætla að æfa og klukk-
an hvað, því sumar vikur eru þéttbókaðri en
aðrar. Það er gott að vera búin að gera ráð fyrir
æfingunni, því þá er erfiðara að hætta við hana.
Ég held einnig að ansi margir byrji of geyst og
mæti á æfingar af því þeim finnst þeir þurfa þess
en ekki af því þá langar til þess. Það er góð byrjun
að finna hvað það er sem fær mann til þess að langa
til að fara á æfingu
Hvernig heldurðu þér í formi þegar þú ferð í frí?
Líkaminn hefur alltaf gott af því að hvíla af og til,
hvíldin er jafn mikilvæg og æfingin. Þegar ég fer í stutt
frí þá leyfi ég mér alveg að njóta þess að vera í fríi án
þess að fara á æfingu. En þegar fríið verður langt, t.d. 2
vikur, þá tek ég með mér langa teygju og geri allskonar
skemmtilegar æfingar sem er hægt að gera hvar sem
maður er. Svo er armbeygjustaða eða planki sígild æfing
sem svíkur mann aldrei þegar maður hefur borðað of mik-
inn ís í fríinu.
Ertu almennt meðvituð um mataræðið? Ég er með-
vituð um það að ég þurfi að borða fjölbreyttan, hollan og
orkuríkan mat, en ég tel ekki ofan í mig kaloríur eða neitt
slíkt. Ég er ekki á neinu sérfæði þó að ég sé íþróttamann-
eskja, ég borða bara það sama og allir hinir á heimilinu.
Ég er alin upp við hollt mataræði, en þegar undirstaðan í
mataræðinu er holl, þá getur maður alveg leyft sér einn
og einn ís.
Hvað borðarðu til að halda þér í formi? Ég borða eins
allan ársins hring. Það er ekkert sem ég borða ekki. Besta
blandan er bara að borða fjölbreytt.
Hvaða óhollusta freistar þín? Ég er rosaleg ís-
kona og elska að fara á Hagamel og fá mér bragða-
ref.
Hvað ráðleggurðu fólki sem vill bæta mat-
aræðið? Ég held að ef maður vill breyta mataræðinu
þá sé mjög nauðsynlegt að hætta ekki bara einn
daginn að borða þetta og hitt. Það er gott til
að byrja með að setja sér nokkrar þum-
alputtareglur sem er ekki erfitt að fara eftir
og þá frekar að minnka neyslu í stað þess að
hætta henni.
Hvaða gildi hefur hreyfing fyrir þig?
Hreyfingin skiptir mig miklu máli. Dag-
urinn verður bara miklu betri eftir góða æf-
ingu. Ég næ einnig mun betri einbeitingu í
skólanum þegar ég æfi vel.
Hvað eru algeng mistök hjá fólki við æf-
ingar? Ég held að Íslendingar séu almennt
frekar óþolinmóðir. Við viljum sjá bætingar
eða árangur strax. En þolinmæðin vinnur
alltaf með manni. Það eru líka margir sem gera æf-
ingarnar vitlaust og þá kemur kannski ekki sami ár-
angur og ef maður gerir æfingarnar rétt. Ég held
að það sé mjög mikilvægt að fólk sé óhrætt að spyrja
aðra um leiðbeiningar eða fá þjálfara til að kenna
manni áður en maður byrjar.
KEMPA VIKUNNAR FANNEY HAUKSDÓTTIR
Kraftmikill verkfræðinemi
Volgt sítrónuvatn er hressandi byrjun á deginum. Sítrónur eru
mjög hollar en þær eru bakteríudrepandi og styrkja ónæmiskerfið.
Í þeim er einnig að finna citric acid, kalk, C-vítamín og magnesíum
sem hjálpar að styrkja líkaman og hressir okkur við á morgnana.
Sítrónuvatn á morgnana* Það er erfitt að sigraeinstakling sem gefstaldrei upp.
Babe Ruth
Sérsmíðaðar baðlausnir
Gler, gluggar, glerslípun & speglagerð frá 1922
Mörkinni 4 | 108 Reykjavík | Sími: 565 0000 | Fax: 555 3332 | glerborg@glerborg.is | www.glerborg.is
• Einangrunargler
• Gluggar (Ál og PVC-plast)
• Hurðir (Ál og PVC-plast)
• Speglar
• Gler
• Hert gler
• Lagskipt öryggisgler
• Litað gler
• Sandblástur
• Álprófílar
• Máltöku- og uppsetningaþjónusta
Við leggjum metnað okkar í að bjóða sérhæfðar
og vandaðar lausnir á baðherbergi. Við bjóðum
upp á sérsmíðaða spegla, sturtuklefa og sturtu-
skilrúm. Þá erum við komnir með nýja útgáfu af
ljósaspeglunum okkar vinsælu.
Á heimasíðu okkar glerborg.is er gott yfirlit
yfir það sem er í boði. Auk þess bjóðum við alla
velkomna í Mörkina þar sem fagfólk veitir góða
þjónustu og allar þær upplýsingar sem þarf.