Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.06.2014, Side 30
Matur
og drykkir
Ekki gleyma kapers
*Nú þegar sumarsalöt verða á boðstólum í öllmál má benda á að þótt fetaostur og ólífurhafi verið allsráðandi í salötum undanfarinnaára má ekki gleyma hinu mjög svo retrómeðlæti kapers. Bæði er það gott með fíntskornum tómötum, rauðlauk og fersku kórí-ander og með kjöti og kjúklingi. Einnig passar
það vel með reyktum laxi og í alls kyns létta
pottrétti.
Þ
að er um að gera að hafa
nóg af hollu nasli í bíl-
ferðalagið í sumar. Þannig
má koma í veg fyrir að
detta ofan í óhollt sælgæti og
skyndibitafæði þótt vissulega sé víða
hægt að fá hollan og góðan mat.
Hér má finna nokkrar uppástungur
að einstöku ljúfmeti fyrir ferðalagið
sem er gott að grípa með í bílinn.
Ef kælibox er ekki meðferðis er
gott að miða matinn út frá því að
komast hjá því að nota kjöt og osta
og þessar uppástungur miðast við
það. Þetta má útbúa hvar sem er á
leiðinni.
TAMARÍNRISTAÐAR
MÖNDLUR OG FRÆ
Þetta þarf að útbúa
heima áður en geymist
vel. Setjið möndlur með
hýðinu á og fræ að eigin
vali á vel heita pönnu og
hellið 3. msk. af tam-
arínsósu yfir og blandið
öllu vel saman. Takið af
pönnunni eftir nokkrar
mínútur eða þegar tam-
arínsósan á pönnunni er
farin að brenna.
HARÐFISKUR
Harðfiskur klikkar aldrei
og er einstaklega þjóð-
legt veganesti í ferðalag-
ið. Smjör verður fljótt
lint í sumarhitanum og
ef ferðalangar vilja eitt-
hvað til að bleyta upp í
harðfiskinum er ótrúlegt
en satt; ótrúlega gott að
nota bláberjasultu með
og rifsberjagel. Þá er
kókosolía, örfáir dropar,
virkilega gott á fiskinn
og ekki þarf að geyma
hana í kælinum.
MANGÓ, HNETUR OG RÚSÍNUR
Þurrkaðir ávextir standa alltaf fyrir sínu.
Einn allra besti ávöxturinn til að snæða
þurrkaðan er mangó, hann bragðast eins
og hreinasta sælgæti. Við þurrkað mangó
er gott að blanda rúsínum og hnetum.
BARNAGULRÆTUR OG
BROKKÓLÍ MEÐ PESTÓ
Vandað pestó úr eðalhráefnum er hægt að
nota með ýmsu. Sniðugt er hafa meðferðis
hinar svokölluðu baby carrots og brokkólí í
boxi og grípa svo í pestóið til að dýfa ofan í.
Ef þið eruð með hnetusmjörið eða hummus
meðferðis er það líka afar gott.
HOLLT OG EINFALT
Góðgæti án kælibox í bílferðina
MARGIR ERU Á LEIÐ Í
STYTTRI OG LENGRI BÍL-
FERÐIR Í SUMAR. GOTT ER
AÐ HAFA EITTHVAÐ HOLLT
MEÐFERÐIS OG HÉR ERU
NOKKRAR UPPÁSTUNGUR
SEM ÞURFA EKKI KÆLIBOX.
Júlía Margrét Alexandersdóttir
julia@mbl.is
FLATKÖKUR
MEÐ AVÓKADÓ
OG HUMMUS
Þetta er mjög ein-
falt að útbúa og
hægt að gera það
hvar sem er á
ferðalaginu. Ef
fólk vill ekki flat-
kökur er ekki
síður gott að
smyrja bara avó-
kadó með hum-
mus.
SULTUSAMLOKUR MEÐ BANÖNUM
Enn ein máltíðin sem þarf ekki að geyma í kæli á leiðinni
samanstendur af grófu, niðurskornu brauði, góðri sultu
og banönum. Þetta má útbúa hvar sem er á leiðinni.
Smyrja brauðið með sultunni og skera banana ofan á í
hvelli. Bláberjasulta passar einkar vel með banönunum.
EPLI MEÐ
HNETUSMJÖRI
Gott hnetusmjör úr
meira en 99 pró-
sent jarðhnetum
og engu aukalega
er allra best að
hafa með eplum.
Eplin eru skorin
niður í litla bita og
svo er hnetusmjör-
inu smurt ofan á.
Þetta kemst vel á veg
með að koma í stað fyrir
snickers. Ekki gleyma servíettum.
Einfalt og bæði hægt að skera niður
eplin og smyrja á leiðinni.
Morgunblaðið/Styrmir Kári