Hrund - 01.11.1967, Page 40
.Ællir íslendingar láta sér mjög annt um að búa heimili sín eins hlýlega og
kostur er. Við munum öðru hverju birta myndir og greinar um híbýla-
prýði og húsateikningar, ýmist efni fengið hér heima eða erlendis frá. Að
þessu sinni sjáum við nokkrar hugmyndir sem e.t.v. verða einhverjum að
gagni.
Hvernig væri að flytja sólina
með sér inn í húsið? Þessi for-
stofa er máluð hlýjum, sól-
gulum lit og myndar fallegan
bakgrunn að þessum gömlu
húsgögnum.
2 Hvernig væri að gera stofu-
vegginn að einum stórum bóka-
skáp? Það er ekki nauðsynlegt
að eiga fjöldann allan af bók-
um, heldur má raða alls konar
fallegum hlutum í hillurnar og
jafnframt hafa gagn af þeim.
Þetta er ágæt lausn fyrir þá, sem
eru með stóra veggi, en eiga
ekki mikið af málverkum.
^ Nú virðist mjög vinsælt að
klæða veggi sama munstri og
gluggatjöldin og jafnvel sjálf
húsgögnin líka. Þetta getur far-
ið vel í stórum stofum en er
sennilega býsna leiðigjarnt til
lengdar.
^j. Ljós viðarhúsgögn henta vel
ungu fólki; þau eru létt og
þægileg og ekki viðkvæm. Hver
hlutur þjónar sínum tilgangi
og hvergi er óþarfa íburður.
Takið eftir hekluðu púðunum.
Hvernig væri að útbúa gesta-
stofu uppi á háalofti? Þessi
mynd getur eflaust f)örgað í-
myndunaraflið.
40