Læknablaðið - 15.03.2000, Blaðsíða 47
UMRÆÐA & FRÉTTIR / G A G N A G R U N N U R I N N
Viðauki B við rekstrarleyfi gagnagrunns
Flutningur upplýsinga í
gagnagrunn á heilbrigðissviði
I. Heilsufarsupplýsingar sem skráðar hafa
verið áður en samræmd rafræn sjúkraskrá
hefur verið tekin í notkun.
A. Þjóðskrárupplvsingar
a. Kennitala (notist dulkóðuð).
b. Aldur við skráningu upplýsinga.
c. Kyn.
d. Búseta (sveitarfélag/póstnúmer) við skráningu
upplýsinga.
e. Hjúskaparstaða við skráningu upplýsinga.
B. Kóðaðar og aðrar tölulegar upplýsingar
a. Sjúkdómsgreiningar sem sem skráðar eru í
tölvukerfum heilbrigðisstofnana í ICD-9/ICD-
10 greiningarkerfi.
b. Aðgerðarnúmer.
c. Innritunardagur.
d. Utskriftardagur.
e. Myndgreiningar.
f. Rannsóknaniðurstöður.
g. Lífeðlisfræðilegar upplýsingar.
h. Lyfjameðferð ef hægt er að kóða upplýsingar í
sjúkraskrá og læknabréfum.
II. Heilsfarsupplýsingar sem skráðar eru eftir
að samræmd rafræn sjúkraskrá hefur verið
tekin í notkun.
1. Stofnun
1.1 Kennitala stofnunar
1.2 Deild
1.3 Tegund sérgreinar
2. Auðkenni sjúklings
2.1 Tegund sjúklings
2.2 Kennitala sjúklings á dulkóðuðu formi
2.3 Persónuupplýsingar
2.3.2 Kyn
2.3.3 Hjúskaparstaða
2.3.5 Sveitarfélag
2.6 Atvinna
2.7 Menntun
3. Innritun eða koma á sjúkrastofnun
4. Útskrift af sjúkrastofnun
5. Astæða innlagnar
6. Viðtal og skoðun læknis við komu
7. Lyf við komu
8. Ofnæmi
9. Meðferðaráætlun sérfræðings
10. Upplýst ákvörðun um meðferð
11. Fyrirmæli læknis
12. Lyfjafyrirmæli
13. Lyfjagjöf - Alltaf háð Ivljafyrirmælum, (oft
margar lyfjagjafir við ein fyrirmæli)
14. Mat sérfræðings á meðferð
15. Lyf við útskrift
16. Dagálar
17. Samráðskvaðningar
18. Göngudeildarnótur læknis
19. Upplýsingasöfnun hjúkrunar
20. Hjúkrunarferli
21. Sjúkdómsgreiningar
22. Aðgerðir
23. Skráning á lífsmörkum
24. Göngudeildarnótur hjúkrunarfræðings
25. Ónæmisaðgerðir
26. Skráning annarra heilbrigðisstétta
27. Vísindarannsóknir tengdar sjúkraskrá
4.2 Samskiptaupplýsingar í sjúkraskrá
4.2.1 Rafrænar samskiptaupplýsingar
Rannsóknarbeiðnir og rannsóknarniður-
stöður. Myndgreiningabeiðnir og svör
Lífstíll
Reykir (J/N).
C. Kóðaðar félagslegar upplýsingar.
Heimilt er með samningum að flytja í gagnagrunn
þær félagslegu upplýsingar sem kóðaðar eru í sam-
ræmi við skilgreindar kóðanir í almennu kröfulýsing-
unni og sértæku kröfulýsingunum þegar þær liggja
fyrir þar með taldar upplýsingar sem koma fram í
sjúkdómsgreiningum og aðgerðalýsingum.
D. Erfðafræðilegar upplýsingar.
Erfðafræðilegar upplýsingar sem fengnar eru með
sameindaerfðafræðilegum rannsóknum er eingöngu
heimilt að flytja í gagnagrunn á heilbrigðissviði með
samþykki sjúklings. Heimilt er að flytja í gagnagrunn
á heilbrigðissviði sjúkdómsgreiningar sem fengist
hafa með skoðun á erfðaefni eða öðrum athugunum
(t.d. sjúkdómsgreiningar arfgengra sjúkdóma) og
ennfremur greiningar byggðar á litningarannsókn-
um, t.d. á meðfæddum sjúkdómum eða illkynja sjúk-
dómum.
F. Óskir um viðbótarupplýsingar
Gera má ráð fyrir að á síðari stigum munu rekstrar-
leyfishafi, heilbrigðisyfirvöld, heilbrigðisstofnanir og/
eða sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmenn setja
fram óskir um vinnslu og flutning viðbótarupplýsinga
í gagnagrunn á heilbrigðissviði. Skoða þarf með
hvaða skilyrðum slíkur flutningur yrði heimilaður og
ávallt skal bera óskir um slíkar breytingar undir
tölvunefnd og starfrækslunefnd eins og fram kemur í
inngangi viðauka þessa.
Hvaða upplýsing-
ar eru það sem
fluttar verða í
miðlægan gagna-
grunn á heilbrigð-
issviði?
Það varð ekki Ijóst
fyrr en með útgáfu
rekstrarleyfisins til
Islenskrar erfða-
greiningar hf.
Hér á síðunni eru
taldir upp helstu
flokkar og teg-
undir upplýsinga
sem flytja á í
gagnagrunninn
eftir að búið er að
semja við heil-
brigðisstofnanir
og sjálfstætt starf-
andi heilbrigðis-
starfsmenn um
aðgang að sjúkra-
skrám.
Læknablaðið 2000/86 195