Læknablaðið - 15.03.2000, Blaðsíða 7
FRÁ RITSTJÓRN
Engin sátt enn um gagnagrunn
á heilbrigðissviði
Gagnagrunnur á heilbrigðissviði er til um-
ræðu í Læknablaðinu. í þetta sinn er reynt að
gefa yfirlit yfir það nýjasta; greint er frá viðbrögð-
um við veitingu rekstrarleyfisins til handa ís-
lenskri erfðagreiningu og fyrirhugaðri málsókn
Mannverndar og ýmissa einstaklinga á hendur ís-
lenska ríkinu. A síðustu tímum hafa hlutimir
gerst svo hratt að erfitt er fyrir Læknablaðið, sem
kemur mánaðarlega, að velja til frásagnar það
sem lesendur hafa enn áhuga á jafnframt því
reyna að upplýsa lækna um heildarstöðu mála.
Þótt allmargir læknar hafi lýst afdráttarlausri
skoðun sinni á gagnagrunninum, til lasts eða lofs,
hefur Læknablaðið einnig orðið þess vart að til
eru þeir sem vilja tjá sig af mikilli varfærni um
málið, og bera ýmsu við. Klínískum læknum
finnst ef til vill að þeir séu staddir í átökum milli
hagsmuna sjúklinga og vilja heilbrigðisyfirvalda,
og að þeir eigi að sýna báðum aðilum hollustu, en
það kann að reynast torratað. Margir eru búnir
að gera upp hug sinn um hvernig brugðist muni
við og væntir Læknablaðið þess að fá að heyra og
birta skoðanir lækna um málið.
VlLHJÁLMUR RAFNSSON
Efnisyfirlit 1999 í réttri stærð!
Frágangur
fræðilegra greina
Höfundar sendi tvær gerðir
handrita til ritstjórnar
Læknablaðsins, Hlíðasmára
8, 200 Kópavogi. Annað án
nafna höfunda, stofnana og
án þakka sé um þær að
ræða. Greininni fylgi
yfirlýsing þess efnis að allir
höfundar séu lokaformi
greinar samþykkir og þeir
afsali sér birtingarrétti til
blaðsins.
Handriti skal skilað með
tvöföldu línubili á A-4
blöðum. Hver hluti skal
byrja á nýrri blaðsíðu í
eftirtalinni röð:
• Titilsíða, höfundar, stofn-
anir, lykilorð
• Agrip og heiti greinar á
ensku
• Agrip á íslensku
• Meginmál
• Þakkir
• Heimildir
Töflur og inyndir skulu vera
á ensku eða íslensku, að
vali höfunda.
Tölvuunnar niyndir og gröf
komi á disklingi ásamt út-
prenti. Tölvugögn (data) að
baki gröfum fylgi með.
Sérstaklega þarf að semja
um birtingu litniynda.
Eftir lokafrágang berist allar
greinar á tölvutæku formi
með útprenti. Taka skal
fram vinnsluumhverfi.
Sjá upplýsingar um frágang
fræðilegra greina:
http://www.icemed.is/laekna
bladid
Þeir áskrifendur Læknablaðsins sem binda
það inn eða halda því til haga með öðrum hætti
hafa eflaust lent í nokkrun erfiðleikum með að
koma efnisyfirliti ársins 1999 sem að vanda fylgdi
fýrsta tölublaði þessa árs heim og saman við tölu-
blöð ársins. Astæðan var sú að í fögnuði okkar
yfir nýju útliti og stærra broti blaðsins hvarflaði
ekki annað að okkur en að prenta efnisyfirlitið í
sama broti og nýja blaðið en gleymdum því í flýt-
inum að vitaskuld tilheyrir það gamla árinu.
Nú höfum við bætt úr þessu með því að prenta
efnisyfirlitið í gamla brotinu og geta þeir sem vilja
haft samband við ritstjórnina og fengið það sent
um hæl, sér að kostnaðarlausu. Við biðjumst vel-
virðingar á þessu óðagoti.
Umræðuhluti
Skilafrestur er 20. undan-
farandi mánaðar, nema
annað sé tekið fram.
Læknablaðið 2000/86 159