Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.03.2000, Blaðsíða 39

Læknablaðið - 15.03.2000, Blaðsíða 39
UMRÆÐA & FRETTIR / HEILBRIGÐISMAL Sameinum sjúkrahúsin í nýrri byggingu Inngangur Með breytingum á yfirstjórn stóru sjúkrahúsanna í Reykjavík, Landspítalans og Sjúkrahúss Reykjavíkur, og með einum forstjóra og fyrirætlunum um eina framkvæmdastjórn hafa verið stigin skref til aukinnar samvinnu og/eða sameiningar þeirra. Samhliða þessu hefur farið fram umræða um kosti þess að byggja nýtt sjúkrahús eða koma starfsemi framtíðarinnar fyrir í þeim byggingum sem fyrir eru. Sú umræða er skemmra á veg komin. I. Ýmis rök hníga til þess, að þjóðin geti ekki staðið undir nema einu vel búnu hátæknisjúkrahúsi. Ofan- greind skref má nýta sem áfanga til að mæta þeirri kröfu. Við aukna samvinnu og/eða sameiningu þarf að huga að breytingum á innra skipulagi þessara stofnana/stofnunar til þess að framtíð þjónustunnar verði vel borgið. I því sambandi þarf meðal annars að huga að yfirstjórn heilbrigðismála, skiptingu valds á sjúkradeildum, fyrirkomulagi bráðrar þjónustu og tímasettrar þjónustu, mismunandi rekstrarformum innan sjúkrahússins og kjarasamningum. Koma þarf í veg fyrir faglega stöðnun og einokun á sameinuðu hátæknisjúkrahúsi, meðal annars með tímabundnum ráðningum æðstu stjórnenda sjúkradeilda. Nýta þarf þetta tækifæri til að fella hið nýja sjúkrahús að nú- tímalegum hugmyndum um hinn akademíska þátt í rekstri þess með því að efla tengslin við Háskóla ís- lands, þannig að það þjóni landsmönnum sem kennslu- og rannsóknastofnun jafnt sem sjúkrahús í fremstu röð. II. Það er skoðun stjórna LÍ og LR, að núverandi hús- næði Sjúkrahúss Reykjavíkur og Landspítalans sé óhentugt til sjúkrahúsrekstrar. Núverandi húsnæði er hannað með höfuðáherslu á legudeildir og fellur illa að nútíma sjúkrahúsrekstri sem gerir ráð fyrir allt annarri samsetningu verkefna og tækjabúnaðar en þær byggingar sem hannaðar voru fyrir mannsaldri eða tveim. Prengt er að stoðdeildum og rannsókna- starfsemi, lítið svigrúm er fyrir sérhæfða göngudeild- arstarfsemi og bráðaþjónusta á undir högg að sækja. Starfsaðstaða lækna er víða bágborin. Töluverð bygg- ingarþörf er á báðum stöðum og byggingafram- kvæmdir í gangi. Stjórnir LI og LR telja nauðsynlegt, að mörkuð verði opinber stefna í þessum málum. Stjórnirnar taka undir orð heilbrigðismálaráðherra á aðal- fundi LÍ haustið 1999 og telja, að í framtíðinni eigi að byggja eitt sjúkrahús sem rúmi núverandi starf- semi Sjúkrahúss Reykjavíkur og Landspítalans. Við núverandi aðstæður má efna til margvíslegrar samvinnu sjúkrahúsanna, en endanleg markmið sameiningar nást ekki nema undir einu þaki. Lykil- atriði er að breið pólitísk samstaða sjórnmála- manna og fagaðila náist um framangreint markmið og leiðir að því. III. Samrunaferli er erfitt fyrir stórar stofnanir af þessu tagi og þróun í samstarfi farsælli en bylting. Ýmsar vísbendingar utan úr heimil eru um að sameining stórra heilbrigðisstofnana hafi mistekist eða lítilli hagræðingu skilað nema í framkvæmdastjórn. Til að skila árangri þurfa markmið sameiningar að vera skýr bæði starfsfólki og sjúklingum. Teysta þarf sjálfstæði einstakra sviða einnar stofnunar þannig að forðast megi óhagræði of mikillar miðstýringar. Tryggja þarf að sjúklingar eigi val um lækna og meðferðarúrræði. Stjórnir Læknafélags íslands og Læknafélags Reykjavíkur hvetja stjórnvöld til að grípa ekki til neinna þeirra aðgerða í máli þessu sem líklegar eru til að valda afturför eða ólgu og sundurþykkjú meðal þeirra er málið varðar mest. IV. Stjórnir LÍ og LR setja fram eftirfarandi meginatriði sem þær telja að vinna beri að: 1. Stefna ber að byggingu nýs sjúkrahúss sem rúmi starfsemi Landspítalans og Sjúkrahúss Reykjavíkur. 2. Sérstakar ráðstafanir verði viðhafðar til að fyrir- byggja faglega einokun og stöðnun. 3. Allar ákvarðanir um aukna samvinnu og/eða sam- einingu deilda verði teknar í fullu samráði og í sátt við starfsfólk. 4. Við skipan yfirstjórnar sjúkrahússins þarf að gæta faglegra sjónarmiða í meira mæli en nú er gert og efla þarf áhrif starfsfólks innan hennar. 5. Afnema þarf með Iagabreytingu tvískiptingu fag- legrar stjórnunar á milli lækninga og hjúkrunar og árétta forræði lækna á faglegri yfirstjórn deilda. 6. Koma á í veg fyrir að sveiflur í bráðaþjónustu raski tímasettri þjónustu. 7. Fela á öðrum sjúkrahúsum ákveðin verkefni og nýta þau betur til kennslu og þjálfunar. 8. Flytja þarf verkefni frá sjúkrahúsum til lækna- stöðva og heilsugæslustöðva eða læknastofa og tengja þessa starfsemi jafnframt sjúkrahúsi á þann hátt að upplýsingastreymi sé tryggt og nýta megi þennan þátt frekar til kennslu og rannsókna. Yfirlýsing stjórna Læknafélags íslands og Læknafélags Reykjavíkur um málefni Landspítalans og Sjúkrahúss Reykjavíkur 8. febrúar 2000 Læknablaðið 2000/86 189
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.