Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.03.2000, Blaðsíða 50

Læknablaðið - 15.03.2000, Blaðsíða 50
S M A S J AI N Læknar munið söfnun vegna málshöfðunar ■ Læknar, auk ýmissa annarra einstaklinga, hafa í samvinnu við Mannvernd ákveðið að höfða mál á hendur ríkinu í þeim tilgangi að fá úr því skorið hvort gagnagrunnslögin samrýmist stjórnarskrá, mannrétt- indasáttmála og alþjóðlegum skuld- bindingum. Réttarhöldin verða um- fangsmikil og kostnaðarsöm. Fjáröfl- un er hafin og byggist fjármögnun að talsverðu leyti á framlögum frá lækn- um sem er annt um persónufrelsi sjúklinga sinna og trúnað við þá. Reikningur vegna söfnunarinn- ar hefur verið opnaður í Lands- bankanum: 0101-05-260480. Þau sem vilja leggja málinu lið eru hvött til að sýna það í verki. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Mannverndar: www.mannvernd.is Fyrir hönd undirbúningshóps PÉTUR HAUKSSON Sýning um sögu lækn- ingarannsókna sett upp í K-byggingu Landspítalans ■ Sýningin sem hékk lengi uppi á veggjum Þjóðarbókhlöðunnar í til- efni af 40 ára afmæli rannsóknar- deildar Landspítalans hefur nú verið sett upp að stofni til í K-byggingu spítalans. Að vísu hafa munirnir ver- ið settir í geymslu en um 500 myndir á nokkrum tugum sýningarspjalda verða til sýnis í K-byggingunni á næstunni. Á þessum veggspjöldum gefur að líta glefsur og skyndimyndir úr sögu læknisfræði á íslandi og geyma þær mikinn fróðleik. að eyða lengri tíma við störf erlendis. Ef litið er á tölur um fjölda lækna í greininni hér að framan má sjá að fjöldi þeirra verður nær óbreyttur eftir fimm ár. Eftir 12 ár hefur þeim fækkað um tæpan fimmtung. Til að við- unandi ástand verði þegar kemur fram á ann- an áratug þessarar aldar þurfa að minnsta kosti 25-30 myndgreiningarlæknar að hafa snúið aftur úr sérnámi er þeim tímamörkum verður náð. Miðað við endumýjun síðustu ára er slíkt fjarlægur möguleiki. Úrbætur Af framansögðu má sjá að það er brýn ástæða til að bæta stöðu sérgreinarinnar í þeim tilgangi að laða að henni unga lækna. Vekja þarf áhuga á myndgreiningu meðal læknastúdenta og unglækna. Auka þarf þátt myndgreiningar innan læknadeildar eins og sjálfsagt er þegar miðað er við aukið vægi greinarinnar innan læknisfræðinnar. Oft þurfa ungir læknar nánari kynni af sérgrein til að fá á henni nægjanlegan áhuga til að vilja leggja hana fyrir sig sem lífsstarf. Röntgendeildir þurfa að að vera með í þeim blokkarstöðum sem unglæknum er boðið upp á á kandídatsári. Víða erlendis tíðkast að sérstaklega vel sé gert í kjömm við ung- lækna sem starfa innan sérgreina þar sem skortur er á sérfræðingum og kemur slíkt stýritæki einnig til greina hér. Huga þarf að hvemig þeim læknum sem nú starfa verður best gert kleift að uppfylla skyldur sínar við sjúklingana, og greinina, við erfiðar aðstæður. Tekjumöguleikar og vinnuaðstaða verða að vera fyllilega sam- bærileg við það sem gerist meðal annarra sérgreina. Leggja þarf meira í vinnuaðstöðu en gert hefur verið en þannig má bæði bæta gæði og afköst. Aukin notkun stafrænna röntgenrannsókna gæti verið þýðingarmik- ill liður í þessu auk annarra tækninýjunga. Leiða má að því rök að sívaxandi vinnu- álagi verði best mætt með því að rekstur starfseminnar verði í höndum læknanna sjálfra eða að tekin verði upp afkastahvetj- andi kerfi. Stærsti hluti ábyrgðar á starfsem- inni hvílir nú á læknum. Eðlilegt er að þess- ari ábyrgð fylgi stjórn á sem flestum eða öll- um þáttum starfseminnar enda þekkja læknar hér gerst til. Þetta eykur einnig starfsánægju þeirra sem þetta á við. Lokaorð Vonandi vekja þessi orð menn til umhugs- unar og jafnvel einhverja til aðgerða. Nú- tímaleg læknisfræði sem stenst þær kröfur sem til hennar eru gerðar verður ekki rekin á íslandi nema myndgreining sem sérgrein sé þess umkomin að sinna hlutverki sínu. Félag eldri borgara mótmælir lokun deilda á sjúkrahúsum Félag eldri borgara í Reykjavík hefur sent frá sér ályktun þar sem það „mótmælir kröftuglega fækkun sjúkrarýma á hjúkrun- ar-, geð- og handlækningadeildum eins og fram kemur í fjárhagsáætlun stóru sjúkra- húsanna í Reykjavík fyrir árið 2000.“ í ályktuninni er bent á að stór hluti þess fólks sem er á biðlistum sé eldra fólk. Vitn- að er til ýmissa kannana á biðlistum sem sýna meðal annars eftirfarandi: • Síðastliðin fjögur ár hafa að staðaldri verið um 7.000 manns á biðlistum. • Allt að 65% sjúklinga á bæklunarlistum bíða í 6-12 mánuði eftir aðgerð þrátt fyrir verulegar þjáningar á biðtímanum og draga fram lífið á sterkum verkja- og svefnlyfjum. • Áður fyrr gengu sjúklingar með gall- steina fljótlega undir aðgerð en nú er algengt að yfir 60% þeirra komist ekki í aðgerð fyrr en ástand þeirra hefur stór- versnað og batalíkur minnkað. • Nú bíða yfir 200 aldraðir eftir hjúkrunar- plássi á Reykjavíkursvæðinu, en 30-40% þeirra eru of veikir til þess að bíða heima. • Skortur á sjúkrarýmum á geðdeildum veldur því að margt fársjúkt fólk fær ekki vistun en reikar um götur með lyf í vasa sem það hefur ekki rænu á að taka inn. í ályktuninni er fjallað nokkuð um bolla- leggingar um afköst sjúkrastofnana og klykkt út með þessari spurningu: „Hvaðan koma þær hugmyndir stjórnenda og stjórn- málamanna um afköst sjúkrastofnana sem stangast þvert á athuganir þeirra er sinna veiku fólki daglega?" 198 Læknablaðið 2000/86
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.