Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.03.2000, Blaðsíða 57

Læknablaðið - 15.03.2000, Blaðsíða 57
UMRÆÐA & FRÉTTIR / TÆPITUNGULAUST Árni Björnsson skrifar tæpitungulaust Leiðrétting Prologus: Það er mér ljúft og skylt að biðj- ast afsökunar á mál- villu sem ég gerði mig sekan um í síðustu grein vegna óná- kvæms yfirlestrar en þar lét ég okkar ást- sæla heilbrigðisráð- herra slá smiðshögg á í stað þess að reka smiðshögg á, eins og sagt var í sveitinni okkar. Að finna upp hjólið Ágæt grein Arnórs Víkingssonar í síðasta Lækna- blaði ásamt umfjöllun í fjölmiðlum, þar á meðal við- töl í Morgunblaðinu við kennara í læknisfræði um læknavísindi almennt svo og um sameiningu stóru sjúkrahúsanna í Reykjavík í eitt háskólasjúkrahús er tilefni þessara hugleiðinga. Svo komu upp í hugann hendingar úr ljóði eftir Stein Steinarr um hringinn, sem byijar svona: „ Ég geng í hring í kringum allt sem er“. Þau hugrenningatengsl helgast líka af framhaldi ljóðsins, „og innan þessa hrings er veröld þín. Minn skuggi féll um stund á gluggans gler“ og kvæðinu lýkur svona „ég geng í hring í kringum allt sem er og utan þessa hrings er veröld mín“. Innanhringsmaður getur orðið að utanhringsmanni og þannig er því far- ið með mig sem var innanhringsmaður með skugga sem um stund féll á gler gluggans, en er nú orðinn skuggalaus utanhringsmaður, sem getur endurmetið stöðu sína sem innanhringsmanns og skoðað utanfrá þá sem enn eru innan hringsins. Sem innanhrings- maður var ég mikill stuðningsmaður þess að sameina sjúkrahús og sat fleiri fundi um sameiningu og sam- vinnu en tölu verði á komið. En hugmyndin er eldri en sameiningarárátta mín því þegar bygging Borgar- spítalans var ákveðin bauð Jón Sigurðsson, þáver- andi borgarlæknir Ríkisspítölunum samvinnu um byggingu stórs sjúkrahúss í Fossvogi, sem þá var lítt byggt svæði en ráðamenn Ríkisspítalanna þekktust ekki boðið, ennfremur á ég í skrifborðsskúffu erindi frá árinu 1970 eftir sama borgarlækni þar sem hann stingur uppá því að stóru sjúkrahúsin í Reykjavík verði sameinuð undir eina stjórn. Allt síðan hefur hugmyndin um sameiningu sjúkrahúsanna í Reykja- vík, þar á meðal Landakotsspítala (blessuð sé minn- ing hans), komið upp með mismunandi reglulegu millibili en aldrei orðið annað en óljósir samningar um verkaskiptingu og samvinnu, samningar sem sumir hafa verið haldnir, aðrir ekki. Hinsvegar tel ég mér það til tekna að hafa aftur og aftur varað við þeirri þróun sem nú er orðin að veruleika að skipulag sjúkrahúsmála hefur verið tekið úr höndum lækna og er komið í hendur stjórnmála- og embættismanna, sem hafa hagsmuni ríkisvaldsins en ekki neytenda heilbrigðisþjónustunnar að leiðarljósi. Um þetta geta læknar ekki sakast við neina aðra en sjálfa sig. Það er svo ómótmælanleg staðreynd að tilkoma stjórnenda sem ekki eru í neinum tengslum við það sem gerist á sjúkrastofnunum hefur leitt til skrifræðis sem löngu er farið að lifa eigin lífi, líkt og krabbamein, án tillits til þeirra sem þurfa á þjónustu stofnananna að halda. Inní þessa skrifræðisvél hefur svo sogast ágætt heil- brigðisstarfsfólk, sem búið er að gleyma því til hvers það lagði á sig menntun sem hafði það að markmiði að annast sjúka einstaklinga. En það er kannski ekki úr vegi að skoða viðhorf lækna til skjólstæðinga sinna, sjúklinganna. Ég held að við höfum flest lagt útá lækningabrautina til að stunda lækningar og líkna þeim sem við getum ekki læknað. Stundum er ekki laust við að þessi markmið verði þokukennd þegar líður á læknanámið og í stað þeirra komi væntingar um vísindaframa sem leiðir smátt og smátt til þess að menn skjóta sér bakvið vís- indi til að losna við sjúklinga. Þessi „flótti frá sjúk- lingum“ er þó ekki bundinn við læknastéttina því á síðari árum hafa æ fleiri hjúkrunarfræðingar flúið á náðir vísindanna í stað þess að annast sjúklinga. Vís- indarannsóknir eru óaðskiljanlegur þáttur læknis- fræðinnar en þær leysa ekki vanda þeirra hundruða sjúklinga sem nú bíða eftir læknishjálp. Stjórnmála- menn sem fæstir vita neitt um vísindi hafa líka farið að nota þau sem skálkaskjól til að fresta því að sinna ýmsum heilbrigðisvandamálum með skírskotun til þess að vísindi og/eða forvarnir muni leysa þau innan tíðar (samanber gagnagrunninn góða). Allir viðmælendur Morgunblaðsins kvarta undan fjárskorti til vísindarannsókna aðallega grunnvísinda og telja tilkomu rannsóknarfyrirtækjanna sem nú spretta upp hér sem annarstaðar vera vonarglætuna til bjargar. Stundum finnst mér að vísindin nálgist það að vera trúarbrögð, sem með tilheyrandi helgi- haldi muni leysa heilbrigðisvanda mannkynsins ef við erum nógu bænheit. En meðan við getum ekki leyst vanda þeirra 3-400 sjúku, öldruðu einstaklinga, sem samkvæmt vistunarmati bíða eftir viðunandi hæli er ekki líklegt að mikið fjármagn fáist til grunnrann- sókna, eða hver á að forgangsraða? Ef lenging ævinn- ar tengist framförum í læknisfræði bera læknarnir þá ekki einhveija ábyrgð á því að hlúð sé að þeim sem verða öldrunarsjúkdómum að bráð? Hvað hefur breyst síðan dr. Jón Sigurðsson vildi byggja háskólaspítala í Fossvoginum? Aðallega tvennt, það er aldurssamsetning þjóðarinnar tækni við lækningar. Bæta má þriðja atriðinu við, si er fjarskiptatæknin. Breytingin á aldurssamsetning_ þjóðarinnar hefur leitt til þess að fleiri aldraðir með ýmiskonar öldrunarsjúkdóma taka nú meira og meira af starfsorku og tíma heilbrigðisstétta, jafn- framt vex þörfin fyrir vistunarrými fyrir veika aldr- aða, suma með marga sjúkdóma. Breytingarnar á lækningatækni hafa gert það að verkum að hægt er að gera aðgerðir sem voru óhugsandi fýrir hálfri öld og aðgerðir, sem áður kröfðust sjúkrahúsvistar eru gerð- ar á stofum eða göngudeildum sjúkrahúsanna. Samt Læknablaðið 2000/86 203
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.