Læknablaðið - 15.03.2000, Side 39
UMRÆÐA & FRETTIR / HEILBRIGÐISMAL
Sameinum sjúkrahúsin í nýrri byggingu
Inngangur
Með breytingum á yfirstjórn stóru sjúkrahúsanna í
Reykjavík, Landspítalans og Sjúkrahúss Reykjavíkur,
og með einum forstjóra og fyrirætlunum um eina
framkvæmdastjórn hafa verið stigin skref til aukinnar
samvinnu og/eða sameiningar þeirra. Samhliða þessu
hefur farið fram umræða um kosti þess að byggja nýtt
sjúkrahús eða koma starfsemi framtíðarinnar fyrir í
þeim byggingum sem fyrir eru. Sú umræða er
skemmra á veg komin.
I.
Ýmis rök hníga til þess, að þjóðin geti ekki staðið
undir nema einu vel búnu hátæknisjúkrahúsi. Ofan-
greind skref má nýta sem áfanga til að mæta þeirri
kröfu. Við aukna samvinnu og/eða sameiningu þarf
að huga að breytingum á innra skipulagi þessara
stofnana/stofnunar til þess að framtíð þjónustunnar
verði vel borgið. I því sambandi þarf meðal annars að
huga að yfirstjórn heilbrigðismála, skiptingu valds á
sjúkradeildum, fyrirkomulagi bráðrar þjónustu og
tímasettrar þjónustu, mismunandi rekstrarformum
innan sjúkrahússins og kjarasamningum. Koma þarf í
veg fyrir faglega stöðnun og einokun á sameinuðu
hátæknisjúkrahúsi, meðal annars með tímabundnum
ráðningum æðstu stjórnenda sjúkradeilda. Nýta þarf
þetta tækifæri til að fella hið nýja sjúkrahús að nú-
tímalegum hugmyndum um hinn akademíska þátt í
rekstri þess með því að efla tengslin við Háskóla ís-
lands, þannig að það þjóni landsmönnum sem
kennslu- og rannsóknastofnun jafnt sem sjúkrahús í
fremstu röð.
II.
Það er skoðun stjórna LÍ og LR, að núverandi hús-
næði Sjúkrahúss Reykjavíkur og Landspítalans sé
óhentugt til sjúkrahúsrekstrar. Núverandi húsnæði er
hannað með höfuðáherslu á legudeildir og fellur illa
að nútíma sjúkrahúsrekstri sem gerir ráð fyrir allt
annarri samsetningu verkefna og tækjabúnaðar en
þær byggingar sem hannaðar voru fyrir mannsaldri
eða tveim. Prengt er að stoðdeildum og rannsókna-
starfsemi, lítið svigrúm er fyrir sérhæfða göngudeild-
arstarfsemi og bráðaþjónusta á undir högg að sækja.
Starfsaðstaða lækna er víða bágborin. Töluverð bygg-
ingarþörf er á báðum stöðum og byggingafram-
kvæmdir í gangi.
Stjórnir LI og LR telja nauðsynlegt, að mörkuð
verði opinber stefna í þessum málum. Stjórnirnar
taka undir orð heilbrigðismálaráðherra á aðal-
fundi LÍ haustið 1999 og telja, að í framtíðinni eigi
að byggja eitt sjúkrahús sem rúmi núverandi starf-
semi Sjúkrahúss Reykjavíkur og Landspítalans.
Við núverandi aðstæður má efna til margvíslegrar
samvinnu sjúkrahúsanna, en endanleg markmið
sameiningar nást ekki nema undir einu þaki. Lykil-
atriði er að breið pólitísk samstaða sjórnmála-
manna og fagaðila náist um framangreint markmið
og leiðir að því.
III.
Samrunaferli er erfitt fyrir stórar stofnanir af þessu
tagi og þróun í samstarfi farsælli en bylting. Ýmsar
vísbendingar utan úr heimil eru um að sameining
stórra heilbrigðisstofnana hafi mistekist eða lítilli
hagræðingu skilað nema í framkvæmdastjórn. Til að
skila árangri þurfa markmið sameiningar að vera skýr
bæði starfsfólki og sjúklingum. Teysta þarf sjálfstæði
einstakra sviða einnar stofnunar þannig að forðast
megi óhagræði of mikillar miðstýringar. Tryggja þarf
að sjúklingar eigi val um lækna og meðferðarúrræði.
Stjórnir Læknafélags íslands og Læknafélags
Reykjavíkur hvetja stjórnvöld til að grípa ekki til
neinna þeirra aðgerða í máli þessu sem líklegar eru
til að valda afturför eða ólgu og sundurþykkjú
meðal þeirra er málið varðar mest.
IV.
Stjórnir LÍ og LR setja fram eftirfarandi meginatriði
sem þær telja að vinna beri að:
1. Stefna ber að byggingu nýs sjúkrahúss sem rúmi
starfsemi Landspítalans og Sjúkrahúss Reykjavíkur.
2. Sérstakar ráðstafanir verði viðhafðar til að fyrir-
byggja faglega einokun og stöðnun.
3. Allar ákvarðanir um aukna samvinnu og/eða sam-
einingu deilda verði teknar í fullu samráði og í sátt
við starfsfólk.
4. Við skipan yfirstjórnar sjúkrahússins þarf að gæta
faglegra sjónarmiða í meira mæli en nú er gert og
efla þarf áhrif starfsfólks innan hennar.
5. Afnema þarf með Iagabreytingu tvískiptingu fag-
legrar stjórnunar á milli lækninga og hjúkrunar og
árétta forræði lækna á faglegri yfirstjórn deilda.
6. Koma á í veg fyrir að sveiflur í bráðaþjónustu raski
tímasettri þjónustu.
7. Fela á öðrum sjúkrahúsum ákveðin verkefni og
nýta þau betur til kennslu og þjálfunar.
8. Flytja þarf verkefni frá sjúkrahúsum til lækna-
stöðva og heilsugæslustöðva eða læknastofa og
tengja þessa starfsemi jafnframt sjúkrahúsi á þann
hátt að upplýsingastreymi sé tryggt og nýta megi
þennan þátt frekar til kennslu og rannsókna.
Yfirlýsing stjórna
Læknafélags
íslands og
Læknafélags
Reykjavíkur um
málefni
Landspítalans og
Sjúkrahúss
Reykjavíkur 8.
febrúar 2000
Læknablaðið 2000/86 189