Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.2000, Síða 16

Læknablaðið - 15.05.2000, Síða 16
FRÆÐIGREINAR / BARNAGEÐLÆKNINGAR Umræða Um er að ræða afturskyggna, lýsandi rannsókn á hópi barna sem kom á einu ári til athugunar hjá ofvirkni- teymi göngudeildar BUGL, en stórum hópi þeirra barna sem greinast með ofvirkniröskun er vísað þangað til frekari meðhöndlunar vegna lítils fram- boðs á þessari þjónustu í heilsugæslunni og á öðrum þjónustustigum. Athyglisvert er að flestum börnun- um var vísað af barnalæknum sem jafnframt hófu lyfjameðferð hjá mörgum bamanna. I nýlegri rann- sókn Jensens og félaga þar sem geðlyfjaávísanir á böm í Bandaríkjunum vom skoðaðar kom í ljós að barnageðlæknar ávísuðu oftast en síðan komu heim- ilislæknar og barnalæknar (24). Hlutur heimilislækna virtist hins vegar áberandi lítill í meðferð ofvirkni- röskunar hér á landi. Fáir bamageðlæknar hafa hins vegar verið starfandi utan Landspítalans sem getur skýrt fáar tilvísanir frá þeim. Viðhorf til lyfjanotkunar við ofvirkniröskun eru mismunandi meðal lækna og milli landa. Læknar í Evrópu mæla yfirleitt með atferlismeð- ferð sem fyrstu meðferð og ávísa lyfjum aðeins í alvarlegustu tilvikum (25). í Bandaríkjunum er hins vegar fyrir hendi margra áratuga reynsla af notkun örvandi lyfja og lyfjameðferð oftar ráðlögð sem fyrsta meðferð samhliða atferlismótun (1). Samkvæmt okkar rannsókn virtist meðferðarnálg- un íslenskra lækna vera líkari þeirri bandarísku en evrópsku en tæplega 2/3 barnanna höfðu fengið lyfjameðferð við komu. Mikilvægt er því að hafa í huga að rannsóknin skoðar meðferðarvenjur nokk- ur ár aftur í tímann og þarf ekki að endurspegla nákvæmlega það sem gerist í dag. I rannsókninni var amitriptýlín algengasta byrj- unarlyfið sem ávísað var hér á landi fyrir börn með ofvirkniröskun. Þetta er athyglisvert í ljósi þess að hátt á annað hundrað tvíblindar samanburðar- rannsóknir sýna góðan árangur örvandi lyfja (70- 90%) á einkenni ofvirkniröskunar en þau eru víð- ast hvar annars staðar algengust sem fyrsta lyf (5,26). í nýlegri rannsókn Zarin og félaga í Balti- more, þar sem lyfjagjöf 166 ofvirkra barna var rannsökuð, var metýlfenýdat langmest notað eða í 51% tilfella. Klónidín var næst algengast (20%) en þríhringlaga þunglyndislyf voru einungis notuð í 10% tilvika (27). Þríhringlaga þunglyndislyf eru sá lyfjaflokkur sem næst mest er rannsakaður við of- virkni en vegna aukaverkana eru þau víðast hvar ekki ráðlögð í byrjun meðferðar (28). Hins vegar er algengt að þríhringlaga þunglyndislyf séu ráð- lögð sem annað lyf í meðferð við ofvirkniröskun (26). Minnkandi virkni með tímanum er einnig mun stærra vandamál þessara lyfja en örvandi lyfjanna (28). Margar ástæður geta verið fyrir al- gengi þríhringlaga lyfjanna sem fyrsta lyfi í rann- sóknarhópnum. Um fjórðungur ofvirku barnanna og 42% barnanna sem ekki greindust með of- virkniröskun voru með kvíða og lyndisraskanir. Þegar áberandi tilfinningavandamál eða kippir eru til staðar er notkun metýlfenýdats umdeild (29) en þríhringlaga þunglyndislyf geta þá verið betri valkostur. Ofvirk börn eiga ennfremur oft erfitt með að sofna (30) og kann amitriptýlín, sem yfirleitt er gefið að kveldi, að auðvelda það. Þessi atriði skýra þó vart þennan mun því að algengi fylgiraskana hér er sambærilegt við aðrar rann- sóknir (3) og ekki liggur fyrir að íslensk, ofvirk börn eigi erfiðara með að sofna. Nýleg rannsókn á íslenskum, ofvirkum börnum benti raunar til að þau sofnuðu fyrr en heilbrigð börn (31). Hins veg- ar getur mun lengri verkunartími þríhringlaga lyfj- anna verið kostur. Ekki verður heldur framhjá því horft að mun einfaldara er að ávísa lyfjum sem ekki eru eftirritunarskyld og krefjast því ekki mánaðarlegra endurnýjana. Loks kunna neikvæð viðhorf sumra foreldra gagnvart notkun örvandi lyfja að valda einhverju um ávísanavenjur lækna, sérstaklega ótti þessara foreldra um að lyfin kunni að auka líkur á vímuefnafíkn. Þrátt fyrir að of- virkniröskun auki líkur á vímuefnafíkn hafa rann- sóknir ekki bent til tengsla við notkun örvandi lyfja (32). Klónidín virtist ekki mikið notað hér á landi miðað við rannsókn okkar og mun sjaldnar en fram kom í rannsókn Zarins og félaga (27). Virkni lyfsins er þekkt í meðferð við ofvirknirösk- un þó það sé minría rannsakað en örvandi og þrí- hringlaga lyf (33,34). Lítil notkun lyfsins kann að skýrast af minna afgerandi verkun en örvandi og þríhringlaga þunglyndislyfja (26). Einnig eru auka- verkanir meira áberandi (35). Klónidín er einungis skráð í einum styrkleika í töfluformi hér á landi. Hátt algengi fylgiraskana í þessari rannsókn var í samræmi við sambærilegar rannsóknir (36). Hegðunarraskanir voru mest áberandi en erlendar rannsóknir hafa sýnt 54-67% algengi þeirra hjá of- virkum börnum. Niðurstaða þessara sömu rann- sókna voru að 20-56% barna og 44-50% unglinga greindust með alvarlega hegðunarröskun (con- duct disorder) (37-39). Niðurstöður okkar voru í samræmi hvað varðar algengi vægari hegðunar- röskunar eða mótstöðuþrjóskuröskunar (opposi- tional defiant disorder). Hins vegar var alvarleg hegðunarröskun sjaldgæfari. Skýringin á þessu kann að vera ólíkar þjóðfélagsaðstæður, skóla- kerfi og fleira. Önnur hugsanleg skýring var til- tölulega lágur meðalaldur hópsins (8,1 ár), en rannsóknir benda til að meðalbyrjunaraldur ein- kenna hegðunarröskunar sé um níu ára aldur (40). Þá getur tiltölulega hátt hlutfall stúlkna í hópnum miðað við klíníska hópa í erlendum rannsóknum haft áhrif, þar sem hegðunarröskun er mun al- gengari meðal drengja. Algengi tilfinningaraskana var einnig nokkuð lægra en samkvæmt erlendum rannsóknum (41,42). Þess ber hins vegar að geta 340 Læknablaðið 2000/86
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.