Læknablaðið - 15.05.2000, Blaðsíða 71
UMRÆÐA & FRÉTTIR / GÖMUL LÆKNISRÁÐ
Pissirýjur og barnamold
Hallgerður
Gísladóttir
skrifar
Höfundur er sagnfræðingur
og starfar á Þjóðminjasafninu.
í BERNSKU MINNI VAR MAMMA SÍ OG Æ að Segja StUttar
skemmtisögur um fólk sem hún þekkti í uppvexti sín-
um. Ein var um Bínu frænku, skrítna skrúfu, sem var
eitthvað uppsigað við húsmóðurina þar sem hún
dvaldi og svo komu heldri gestir. Bína gekk á undan í
bæinn með háværri ræðu svohljóðandi: „Það er lagið
á því, óbreitt yfir öll rúm nema rúmið mitt, óhellt úr
öllum koppum nema koppnum mínum og pissirýj-
urnar hangandi upp um alla baðstofu.“
Ég velti mikið fyrir mér þessum pissirýjum sem
héngu upp um alla litlu baðstofuna í Skálateigi og átt-
aði mig ekki á því fyrr en seinna að þetta voru barna-
bleiur. Þær hétu semsé oftast pissirýjur eða pissitusk-
ur í gamla daga og sumir kölluðu þær leppa. Ég
heyrði ekki talað um bleiur fýrr en ég var orðin full-
orðin sagði eyfirsk heimildarkona fædd 1911.
Orðið bleia mun vera komið úr dönsku, og elsta
dæmið um það í ritmálssafni orðabókar Háskóla Is-
lands er úr ritinu Barnfóstran. Fyrirsögn handa al-
þýðu um rjetta meðferð á ungbörnum eptir J. Jónas-
sen, sem hér kom út árið 1888.
Árið 1963 sendi þjóðháttadeild spumingaskrá til
aldraðra um fæðingar og ungbarnaumönnun. Eitt-
hundrað tuttugu og eitt svar barst og hætt er við að
2000 ungbarnamæðurnar myndu blána í framan við
að heyra um ýmislegt sem aldamótakonurnar þáver-
andi brúkuðu.
Kona úr V-Skaftafellssýslu, fædd nokkru fyrir
aldamótin 1900 sem kallaði bleiur „bamsleppa“ sagði
eftirfarandi um rúm ungbarna:
„Neðst í vöggunni var segltuska, boldang. Þar of-
an á var gott hey. Ofan á því var strigi, og ofan á hon-
um vaðmálsstykki eða lök, og fyrir bleiur voru notað-
ar tuskur úr einhverjum efnum, t.d. sængurverum eða
gömlum fötum. Þær voru kallaðar bamsleppar. Segl-
leppurinn var kallaður bos. Á hann var látin heit
aska. Mamma mín skipti oft á öskunni, en heyinu
sjaldnar, líklega mánaðarlega. Guðsorðabók var lögð
í vögguna, svo ekki yrði skipt um barnið."
Það var einmitt algengt að bleiur, barnsdulur,
bamsleppar eða pissirýjur væru úr einhveiju aflóga
taui, sængurfötum eða nærfatnaði. Gömul millipils
þóttu sérstaklega hentug enda notuð föt mýkri og
þjálli. Þetta var fyrir daga bleiugassins sem nú hefur
vikið fyrir pappírsbleium, en í millitíð voru bleiur
oftast úr flóneli eða „loðtaui" eins og einn heimildar-
manna nefndi það. Þær vom brotnar í þríhyrnu sem
bamið var lagt á, eitt hornið brotið upp á milli fót-
anna, hin tvö ýmist vafin um lærin efst eða utan um
rassinn.
Þvottur og hirðing á bleium var mikið bras fyrir
daga þvottavéla, þar sem stutt var á milli ungbarn-
anna og kannske gaf ekki þurrk dögum og jafnvel
vikum saman. Reynt var að þurrka bleiur á grindum
yfir hlóðunum og mér er minnisstæð saga úr gögnum
þjóðháttadeildar um konu sem herti á bleiuþurrkun-
inni þegar í nauðir rak með því að vefja bleiu um sig
innanklæða og sitja með prjónana sína á hlóðarsteini
að næturlagi.
Sjálf man ég eftir löngum stundum niðri við ána
heima árið 1959 við að skola gasbleiur af tveimur
yngstu systrum mínum, en árið var á milli þeirra. Þær
prýddu síðan girðingarnar meðfram ánni á löngu bili
í þurrkum.
Á þeim dögum notuðu allar ungbarnamæður
naflabindi. Það var nálægt 10 sm breiður og 70-80 sm
langur renningur úr „loðtaui“ sem var vafið utan um
barnið um naflann og fest með bendli. Þetta var haft
á börnunum þangað til naflinn var gróinn. Talað var
um að börn gætu grátið út á sér naflann, ef þau grétu
mikið enda var hann vel passaður.
Þegar barn var reifað var fyrst fótafeiti borin í
kringum naflann, svo var vel soðin léreftsræma eða
bómull látin undir naflastrenginn og síðan naflabind-
ið, sagði heimildarkona af Vestfjörðum.
„Ég man þegar ég var pínulítil, að ég sá konu búa
um nafla á nýfæddu barni. Hún setti smápjötlu með
gati í miðjunni yfir naflann, skóf þar í lítinn hvítasyk-
ur og vafði naflabindinu yfir,“ sagði önnur. Fótafeiti
sem var feiti af sviðalöppum og sykurskaf á eymsli
hafa víst komið áður við sögu í pistlum mínum.
Böm voru oft þvegin með fjörusvampi sem hirtur
var og hreinsaður í þeim tilgangi og gjarnan kallaður
njarðarvöttur eða sjávarfroða. Þau voru yfirleitt
signd þegar skipt var á þeim. Höndin var látin nema
við andlit og brjóst, og sagt: Ég signi þig í nafni Guðs
föður, sonar og heilags anda - þennan dag, ef það var
um morgun, en ef það var signt að kvöldi, þá var sagt,
þessa nótt og alla tíma. Eða að sagt var um leið og
maður bar hendina að enni barnsins: í nafni Guðs,
föður, svo færði maður hendina á brjóstið og bætti
við sonar, síðan var hendin lögð á sitt hvora kinn þess
og bætt við, anda heilags. Sumir luku þessu með því
að segja: Góðir englar verndi þig. Ungbörn virðast
hafa verið signd og blessað yfir þau við öll möguleg
og ómöguleg tækifæri. Að sögn aldamótakonu úr
Arnarfirði var þar gamall siður að ljósmóðirin stryki
blóðið fram af ljósmóðurskærunum með þumli og
vísifingri hægri handar, þegar hún var búin að klippa
sundur lækinn og binda fyrir naflastrenginn, og setti
blóðkross á enni og bijóst á barninu.
En hvað var notað á ungbörn til varnar því að
húðin roðnaði og veiktist áður en til þess gert barna-
talkúm fór að fást í apótekum? Hveiti eða kartöflu-
Læknablaðið 2000/86 387