Læknablaðið - 15.05.2000, Blaðsíða 64
UMRÆÐA & FRÉTTIR / UMFERÐARSLYS / FORMANNARÁÐSTEFNA
í Bandaríkjunum geta unglingar tekið
bflpróf 16 ára gamlir en ökuréttindi þeirra
eru takmörkuð með ýmsum hætti þar til
þeir fá full réttindi. Takmarkanir á ökurétt-
indum eru afar breytileg eftir fylkjum en al-
gengt er að þeim sé bannað að aka að næt-
urlagi og/eða með farþega. Höfundar grein-
arinnar leggja til að bann við akstri með
farþega verði alls staðar sett inn í reglur um
ökuréttindi unglinga.
Drusla handa unglingnum?
„Ungir karlmenn eru áhættuhópur út af
fyrir sig,“ segir Stefán Yngvason og styðst
þar við margar rannsóknir á atferli ungra
bflstjóra í umferðinni. Margir hafa veit því
fyrir sér hvort þar sé bara um að kenna
þroska- og reynsluleysi eða hvort þarna sé á
ferðinni einhverskonar fíkn eftir spennu,
jafnvel afbrigði af sjálfseyðingarhvöt.
Úr því verður ekki skorið hér en margir
hafa bent á að ef til vill þurfi að endurskoða
ökukennsluna og auka fræðslu og þjálfun
ungra bflstjóra. Það er verið að bæta úr ýmsu
hvað það varðar, svo sem með umferðar-
skólanum sem tryggingafélögin starfrækja
og einnig með reglum um æfingaakstur.
„Þetta getur hvort tveggja stuðlað að
betri ökukennslu. Sá sem tekur bflpróf á
ekki að geta fengið skírteinið eftir eins til
tveggja mánaða ökukennslu að sumarlagi.
Það ætti ekki að afhenda þeim skírteinið
fyrr en þeir væru búnir að sækja umferðar-
skólann og aka í heilt ár undir leiðsögn ætt-
ingja. Fyrr eru þeir ekki búnir að kynnast
því að aka í alls konar aðstæðum og færð,“
sagði Brynjólfur.
Við skulum ljúka þessari samantekt með
ábendingu til foreldra sem Brynjólfur vill
koma á framfæri.
„Það hefur færst í vöxt að foreldrar
kaupi bfl handa unglingnum þegar hann fær
bílpról'. Þá er gjarnan keyptur gamall, sht-
inn og ódýr bfll með því hugarfari að skað-
inn sé þá ekki svo mikill þótt hann lendi í
árekstri. Vel má vera að bflhræið sé ekki
mikils virði en sá sem lendir í árekstri á
svona bfl slasast meira en ella vegna þess
hversu lélegur bfllinn er. En því miður virð-
ist vitneskja fólks um öryggi bifreiða ekki
vera nóg og úr því þurfum við að bæta.“
-ÞH
Heimildir
1. Um þetta birtist fróöleg grein í Scientific Ameri-
can síðastliöiö haust: McDonald JW and the Re-
search Consortium of the Christopher Reeve
Paralysis Foundation. Repairing the Damaged
Spinal Cord. Scientific American 1999; 281: 64-73.
2. Chen L-H, Baker SP, Braver ER, Li G. Carrying
Passengers as a Risk Factor for Crashes Fatal to
16- and 17-Year-Old Drivers. JAMA 2000; 283:
1578-82.
Formannaráðstefna LÍ
Boðað er til formannaráðstefnu samkvæmt 9. grein
laga Læknafélags íslands föstudaginn 12. maí næst-
komandi í Hlíðasmára 8. Ráðstefnan hefst kl. 10:00.
Dagskrá:
10:00-12:30
Skýrsla formanns LÍ, afgreiðsla ályktana 1999, kjara-
mál og störf stjórnar
Skýrslur formanna aðildarfélaganna
Skýrsla formanns Félags íslenskra heimilislækna
Skýrsla formanns Félags sjálfstætt starfandi heimilis-
lækna
Skýrsla formanns Sérfræðingafélags íslenskra lækna
Skýrsla formanns samninganefndar sjúkrahúslækna
Skýrsla formanns samninganefndar sérfræðinga
Starfsemi Fræðslustofnunar lækna
Starfsemi Lífeyrissjóðs lækna
Starfsemi Læknablaðsins
Starfsemi orlofsnefndar
Starfsemi öldungadeildar
Starfsemi siðfræðiráðs
Starfsemi orðanefndar
12:30-13:30 Matarhlé
Samskipti lækna og lyfjafyrirtækja
Áfangaskýrsla - Jón G. Snædal varaformaður LÍ kynnir
Umræður
Símenntun lækna
Áfangaskýrsla - Stefán B. Matthíasson formaður
Fræðslustofnunar lækna kynnir
Umræður
Kjaramál/kjararáð
Umræður
15:00-15:30 Kaffihlé
Áframhald skýrslna
Umræður
Önnur mál
17:00 Fundarlok
19:00 Kvöldverður
haldinn á Grand Hóteli, Sigtúni 38, fyrir fulltrúa á fundin-
um og stjórn Læknafélags íslands ásamt mökum
382 Læknablaðið 2000/86