Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.05.2000, Page 20

Læknablaðið - 15.05.2000, Page 20
FRÆÐIGREINAR / ÖLDRUNARLÆKNINGAR Mat á þunglyndi aldraðra Þunglyndismat fyrir aldraða — íslensk gerð Geriatric Depression Scale (GDS) Margrét Valdimarsdóttir1 Jón Eyjólfur Jónsson1 Sif Einarsdóttir2 Kristinn Tómasson3 Ágrip Markmið: Tilgangur rannsóknarinnar var að þýða og staðfæra Geriatric Depression Scale (GDS) spum- ingalistann, en hann gefur vísbendingu um þunglyndi aldraðra og er mikið notaður erlendis bæði við lækn- ingar og rannsóknir. Listinn samanstendur af 30 spumingum og er þægilegur í notkun, þar sem sjúk- lingurinn krossar við já eða nei eftir því sem við á. Stytt útgáfa GDS byggist á 15 af spurningum löngu útgáfunnar. Efniviður og aðferðir: GDS var þýddur yfir á ís- lensku og aftur yfir á ensku. Einstaklingar fæddir 1933 eða fyrr voru valdir til þátttöku í rannsókninni. Sjúklingar með heilabilun voru útilokaðir með MMSE (Mini Mental State Examination) prófi. Að lokum var 71 einstaklingur á aldrinum 65-87 ára met- inn með tilliti til þunglyndis, annars vegar með stöðl- uðu geðgreiningarviðtali (CIDI-a, Composite Inter- national Diagnostic Interview; 1993) þar sem stuðst var við greiningu á þunglyndi samkvæmt alþjóðlegri tölfræðiflokkun sjúkdóma og skyldra heilbrigðis- vandamála, 10. endurskoðuðu útgáfu, ICD 10 (Inter- national Statistical Classification of Diseases and Related Health Problems, lOth revision), og DSMIII (Diagnostic and statistical manual of mental disor- ders, 3. útgáfa) og hins vegar með GDS spurninga- listanum. Niðurstöður: Niðurstöður sem fengnar voru með GDS spurningalistanum voru sambærilegar við nið- urstöður úr viðtali. Viðmiðunargildi 13/14 var valið samkvæmt hagstæðustu gildum á næmi (0,77), sér- tæki (0,95), jákvæðu forspárgildi (0,77) og kappa (0,72). í rannsókninni greindust 13 einstkalingar með meðalalvarlegt og alvarlegt þunglyndi, en enginn með vægt þunglyndi. Alyktun: íslensk útgáfa GDS er áreiðanleg aðferð til að leita að þunglyndi hjá öldruðum. ENGLISH SUMMARY Valdimarsdóttir M, Jónsson JE, Einarsdóttir S, Tómasson K Validation of an lcelandic version of the Geriatric Depression Scale (GDS) Læknablaðið 2000; 86: 344-8 Objective: The GDS is a widely used tool world wide, both in clinical practice and in research of the elderly. The objective was to translate and validate the Geriatric Depression Scale (GDS) in lceland. The short version of the GDS was also studied. Material and methods: GDS was translated from English to lcelandic and backtranslated. Individuals, both hospitalised and healthy, born 1933 or before were inclu- ded in the study. Those who had MMSE (Mini Mental State Examination) score under 23 were excluded. Seventy-one individuals were examined for depression both with a structured interview, Composite International Diagnostic Interview; 1993 (CIDI-a) and with the GDS. Results: The GDS results were comparable to the results from the interview. The cutoff score for depression was chosen 13/14 according to the most favorable values of sensitivity (0.77), specificity (0.95), positive predictive value (0.77) and kappa (0.72). One cutoff was chosen because in our study there were persons with moderate or severe depression but no one with mild depression was detected. Our cutoff score for depression was identical with the cutoff score in the original american GDS version, but the original american version included a cutoff for mild depression also. Conclusions: The lcelandic GDS is a reliable method to screen for depression among the elderly. We conclude that GDS is an useful tool in unravelling depressive illness amongst the elderly although not diagnostic per se. Key words: depression, geriatric, rating scale. Correspondance: Jón Eyjólfur Jónsson. E-mail: jonejon@rsp.is Frá 'öldrunarmatsdeild Landspítalans, :Kennarahá- skóla Islands, 3Vinnueftirliti ríkisins. Fyrirspurnir og bréfaskipti: Jón Eyjólfur Jónsson öldrunarmatsdeild Landspítala Hringbraut. Netfang: jonejon@rsp.is Lykilorð: þunglyndi, aldraðir, spurningalisti, réttmœti. Inngangur Þunglyndi meðal aldraðra er algengt vandamál. Um það bil 33% kvenna og 18% karla geta búist við að fá þunglyndi einhvern tímann á lífsleiðinni (1), en um 8% aldraðra eru taldir vera þunglyndir á hverjum tíma (2). Sennilega er tíðnin mun hærri í raun (3) og hafa tölur allt að 15% verið nefndar (4). Þunglyndi getur verið erfitt í greiningu, ekki síst meðal aldraðra. Ástæðan er meðal annars einangrun þess aldraða í þjóðfélaginu auk þekkingarleysis bæði þeirra og að- standenda, sem telja vonleysi einstaklingsins eðlileg- an hluta ellinnar og leita því ekki hjálpar. Mikilvægt er að hafa áreiðanlegt og hagkvæmt mælitæki, sem einnig er þægilegt í notkun, til að skima fyrir og meta þunglyndi hjá þessum aldurshópi. Þetta er sérlega mikilvægt í ljósi þess að meðal þeirra sem eru 65 ára og eldri er notkun geðdeyfðarlyfja mikil, en á árinu 1998 var hún 120 staðlaðir dagskammtar (SDS) á hverja þúsund íbúa 65 ára og eldri, en til samanburð- ar var notkunin 16,5 SDS hjá aldurshópnum 15-24 ára (5). Geriatric Depression Scale (GDS) er spurn- X k 344 Læknablaðið 2000/86

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.