Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.2000, Síða 24

Læknablaðið - 15.05.2000, Síða 24
FRÆÐIGREINAR / ÖLDRUNARLÆKNINGAR pression screen in the nursing home. J Am Ger Soc 1994; 42: 490-3. 11. Tómasson K. Athugun á glöpum hjá öldruðum og áfengissjúk- lingum með auðveldu stöðluðu prófi borin saman við mat starfsfólks. Læknablaðið 1986; 72: 246-59. 12. Folstein MF, Folstein SE, McHugh PR. „Mini-Mental State“. A practical method for grading the cognitive state of patients for the clinician. J Psychiatr Res 1975; 12:189-98. 13. Snædal JG, Guðmundsson G, Jónsson JE. Faraldsfræðileg rannsókn á vitrænni getu aldraðra á tveimur aðskildum svæð- um á íslandi. Læknablaðið 1997; 83: 646-53. ZOMIG' Zeneca Töflur: N 02 CC 03. Hver tafla inniheldur: Zolmitriptanum INN 2,5 mg eða 5 mg. Eiginleikar: Zolmitriptan er sérhæft örvandi efni fyrir 5-HT1D viðtaka í æðum. Áhrif fást innan 1 klst. frá lyfjagjöf og endurspeglast í linun á höfuðverk og öðrum mígrenieinkennum eins og ógleði, ljósfælni og hljóðfælni. Zolmitriptan frásogast hratt og vel (a.m.k. 64%) eftir inntöku og hefur matur ekki áhrif á frásog. Ábendingar: Bráð meðferð á mígreni með eða án fyrirboða (auru). Frábendingar: Ofnæmi fyrir innihaldsefnum lyfsins. Háþrýstingur og vægur ómeðhöndlaður háþrýstingur. Kransæðastífla. Blóð- þurrðar hjartasjúkdómar eða einkenni um slíkt. Kransæðaherp- ingur (Prinzmetals angina). Útlægir æðakrampasjúkdómar. Ekki má nota samtímis lyf sem innihalda ergotamín eða afleiður þess, súmatriptan, naratriptan eða aðra 5-HT1D viðtaka örva. Sjúk- dómar sem tengjast blóðæðum eða blóðnæringu heila eða saga um skammvinna heilablóðþurrð (TIA). Kreatínín klerans < 15 ml/mín. Varúð: Lyfið á einungis að nota þegar greining á mígreni hefur verið staðfest og aðrir hugsanlegir alvarlegir taugasjúkdómar úti- lokaðir. Zomig á ekki að nota við helftarlömunar-, heilastofns- eða sjónlömunarmígreni. Lyfið skal ekki gefa sjúklingum með Wolff-Parkinson-White heilkenni eða hjartsláttartruflanir sem orsakast af annars konar aukaleiðslubrautum í hjarta. Meðganga: Lyfið skal eingöngu nota á meðgöngu ef kostir þess réttlæta hugsanlega áhættu af notkun þess fyrir fóstrið. Dýratil- raunir benda ekki til að lyfið valdi vansköpun. Brjóstagjöf: Ekki er vitað um útskilnað lyfsins í móðurmjólk, og skal því gæta varúðar þegar lyfið er gefið konum með börn á brjósti. Til að draga úr áhrifum á barnið skal forðast að gefa barni brjóst innan 24 klst. eftir inntöku á Zomig. Aukaverkanir: Aukaverkanir eru venjulega vægar, tímabundnar, ekki alvarlegar og hætta sjálfkrafa án sérstakrar meðferðar. Algengar (>1%): Almennar: Þróttleysi, þyngslatilfinning í útlim- um. Herpingstilfinning í hálsi, koki, útlimum og brjósti. Miðtauga- kerfi: Sundl, svefnhöfgi, hitatilfinning, truflun á húðskyni. Melt- ingarfœri: Ógleði, munnþurrkur. Stoðkerfi: Vöðvaslappleiki, vöðvaþrautir. Sjaldgæfar (<1%): Almennar: Þyngslatilfinning í brjósti og hálsi. Prýstingstilfinning í koki, kjálka, hálsi og brjósti. Hjarta- og œðakerfi: Hraðtaktur, hjartsláttarónot, væg blóðþrýst- ingshækkun. Sum einkennin geta verið hluti af mígrenikastinu. Milliverkanir: Ekki skal taka Zomig innan 24 klst. frá því að lyf sem inniheldur ergotamín er tekið vegna aukinnar hættu á herp- ingi í kransæðum. Einnig skal ekki taka lyf sem inniheldur ergo- tamín innan 6 klst. frá því að Zomig er tekið. Sjúklingar sem taka móklóbemíð sem er sérhæfður mónóamínoxídasa-A hemill, skulu ekki taka meira en 5 mg af Zomig á sólarhring. Ef móklóbemíð er tekið í hærri skömmtum en 150 mg tvisvar á dag, skal ekki gefa þessi tvö lyf samtímis. Samtímis meðhöndlun með címetidíni tvö- faldar helmingunartíma Zomig og því skal hámarksdagskammtur Zomig ekki vera meiri en 5 mg. Skammtastærðir handa fullorðnum: Ráðlagður dagsskammtur er 2,5 mg. Lyfið skal taka við fyrstu einkenni mígrenihöfuðverkjar, en getur verkað þótt það sé tekið síðar. Ef ekki fæst fullnægjandi árangur eða einkenni koma aftur innan 24 klst. má taka annan skammt, en þó ekki innan 2 klst. frá upphafsskammti. Ef upphafs- skammtur hefur engin áhrif á mígrenikastið er ólíklegt að annar skammtur hafi áhrif á sama kast. Endurtekin köst má meðhöndla með 5 mg skömmtum hafi 2,5 mg ekki gefið fullnægjandi árangur. Heildardagsskammtur skal ekki vera meiri en 10 mg og lyfið skal ekki tekið oftar en tvisvar á sólarhring. Aldraðir (yfir 65 ára): Ekki hafa verið færðar sönnur á öryggi og verkun Zomig hjá öldr- uðum og því er ekki mælt með notkun þess. Sjúklingar með van- starfsemi lifrar: Mælt er með að sjúklingar með alvarlega vanstarf- semi taki ekki meira en 5 mg af Zomig á sólarhring. Skammtastærðir handa börnum og unglingum: Ekki hafa verið færðar sönnur á öryggi og verkun Zomig hjá börnum og ungling- um, og því ekki mælt með notkun þess. Pakkningar og verð (Aprfl 2000): Töflur 2,5 mg (þynnupakkað): 3 stk. 2.849,-; 6 stk. 5.061,-; 18 stk. 12.770,-. Töflur 5,0 mg (þynnupakkað): 6 stk. 5.544,-; 18 stk. 14.425,-. Greiðslufyrirkomulag: E nema 18 stk.: 0 Afgreiðslutilhögun: Lyfseðilsskylt lyf. Sjá ítarlegri upplýsingar um lyfið í Sérlyfjaskrá. Umboð á íslandi: Pharmaco hf., Hörgatúni 2,210 Garðabær. Upplýsingar veitir AstraZeneca, sími: 535-7151, fax: 565-7366. 348 Læknablaðið 2000/86
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.