Læknablaðið - 15.05.2000, Qupperneq 57
UMRÆÐA & FRÉTTIR / BIÐLISTAR HEILBRIGÐISSTOFNANA
eftir liðspeglunum og 139 flokkuðust undir aðrar
aðgerðir. Á biðlistanum voru sex börn.
Biðlisti bæklunardeildar FSA var yfirfarinn um
áramót og því er gert ráð fyrir að biðlistinn sé nú
nokkuð réttur.
Endurhæfing
Færri bíða eftir endurhæfingu nú en síðasta haust. Á
FSA hefur biðlistinn styst verulega og biðtíminn að
sama skapi styst um 12 vikur frá síðustu könnun.
Nokkuð mikil fækkun er á á biðhsta Reykjalundar og
samkvæmt gögnum embættisins hefur hann ekki ver-
ið styttri síðustu fimm árin.
Geðdeildir
Nú eru í fyrsta sinn birtur biðlisti frá geðdeild Land-
spítalans og verður framhald þar á. Þessi biðlisti er
heildarbiðlisti og nær yfir vistun á nokkrum undir-
deildum og dvalarstöðum sem geðdeild Landspítal-
ans hefur yfir að ráða.
Tæknifrjóvgunardeild
Biðlisti tæknifrjóvgunardeildar er 335 pör. Gera má
ráð fyrir að meðferð heppnist hjá þriðjungi þeirra og
þannig líklegt að um 2/3 af þessum hópi fari aftur á
biðlista á árinu. Auk þess eru framkvæmdar um 250
tæknisæðingar á ári. Meðferðaijöldi er um 350-400
glasafrjóvganir á ári. Biðlistinn er um það bil eitt ár.
Háls-, nef- og eyrnadeildir
Heildarbiðlisti á háls- nef- og eyrnadeildum hefur
lengst. Þegar litið er til einstakra deilda kemur þó í
ljós að fækkun er á FSA.
Hjartadeildir
Biðlisti eftir hjartaþræðingu hefur stöðugt lengst frá
árinu 1996. Frá síðustu athugun á biðlistum, í októ-
ber á síðasta ári, hefur nokkuð fjölgað á biðlistanum
eða um 37 sjúklinga. Hér getur verið um árstíma-
bundna sveiflu að ræða þar sem biðlistinn nær há-
marki á þessum tíma árs en er oftast í lágmarki á
haustin. Fjöldi hjartaþræðinga á Landspítalanum
hefur verið svipaður frá árinu 1997. Árið 1997 voru
framkvæmdar 984 en árið 1999 voru þær 941.
Biðlisti á hjarta- og lungnaskurðdeild lengist
einnig, en biðtími er svipaður og síðasta haust eða
um 10 vikur.
Kvensjúkdómadeildir
Rétt er að gera fyrirvara á heildartölu biðlistans, þar
sem um auknar upplýsingar er að ræða, fimm daga
deild Landspítalans bætist við. Sé litið á aðrar deilir
er almenn fjölgun á biðlistum með undantekningu á
FSA þar sem lítilsháttar fækkun er á biðlistanum og
munar þar helst um fækkun á biðlista eftir sólar-
hringsplássi, úr 71 í 29 sjúklinga.
Lyflækningadeildir
Aðeins bárust upplýsingar frá lyflækningasviði á
Heilbrigðisstofnun Neskaupstaðar. Varast ber að
leggja mat á stöðu mála út frá því.
Lýtalækningar
Biðlisti eftir lýtaaðgerðum hefur lengst nokkuð bæði
á Landspítalanum og á St. Jósefsspítala.
Þvagfæraskurðlækningar
Á heildarbiðlista eru fleiri nú en fyrr í vetur. Mestu
munar um að nú er biðlisti á Sjúkrahúsi Akraness
sem ekki hefur verið áður.
Vífilsstaðaspítali
Lítillega hefur fækkað á biðlista eftir svefnrannsókn-
um en biðtími eftir næturmælingu er þó enn þá tæp
tvö ár, nema sjúklingur sé í forgangshópi. í útskýring-
um frá deildinni kemur fram að forgangur á biðlista
deildarinnar byggi að öðru jöfnu á því að grunur leiki
á að öndunartruflanir valdi röskun á annarri líkams-
starfsemi, svo sem hjartabilun. Einnig eru þeir í for-
gangi sem hafa atvinnu af akstri bifreiða og eru
haldnir dægursyfju.
Æðaskurðdeildir
Hér kemur fram biðlisti tveggja æðaskurðdeilda, á
Sjúkrahúsi Reykjavíkur og Landspítala. Um er að
ræða nýja deild á SHR en eins og komið hefur fram
hafa þessar deildir verið sameinaðar í eina deild.
Öldrunarlækningar
Heildarbiðlisti er nú nokkuð lengri en áður. Sé litið
til einstakra deilda má sjá að biðlisti er að myndast á
FSA þar sem áður biðu sjö en nú 30. Svipað ástand er
á Landspítalanum og verið hefur, en biðlisti á Sjúkra-
húsi Reykjavíkur hefur lengst. Aukningin er eftir
plássi á fimm dagadeild og dagspítala.
Læknablaðið 2000/86 375